Besta ríkisstjórn á Íslandi til þessa

  • Nokkur atriði af því sem ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu gerði:

• Afnámu sérstök lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna sem sett voru þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni til heiðurs.

Jóhanna og Steingrímur• Breyttu lögum um Seðlabankann. Þá var í fyrsta sinn í sögunni gerð hæfniskrafa til Seðlabankastjóra sem fram til þess dags komu flestir úr stjórnmálum með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur öll.

• Settu á sérstakan hóp sérfræðinga úr Seðlabankanum og utan hans til að leggja mat á efnahagslífið með tilliti til vaxta

• Breyttu lögum um skipan dómara sem komu í veg fyrir vina- og ættingjaráðningar í stöðu dómara

• Verðbólga fór úr 20% í 3% á kjörtímabilinu.

• Vextir lækkuðu úr 10% í 5% á kjörtímabilinu

• Halli á rekstri ríkissjóðs fór úr 216 milljörðum í núll á kjörtímabilinu. (Náðu þeim árangri með því að afla tekna til jafns við óhjákvæmilegan niðurskurð).

• Sérstakur þrepaskiptur tekjuskattur var lagður á, því hærri sem launin voru því hærri skattprósenta.

• Hækkuðu ekki skatta á lægstu laun

• Lögðu á auðlegðarskatt

• Endurgreiddu um þriðjung af vöxtum sem fólk greiddi af húsnæðislánum sínum

• Settu 12 milljarða í sérstakar vaxtabætur

• Hækkuðu almennar vaxtabætur

• Gripu til ýmissa aðgerða sem tugþúsundir heimila nýttu sér og eru verðlagaðar á um 85 milljarða króna

• Opnuðu nýjar leiðir fyrir ungt fólk til að hefja
aftur nám í stað þess að vera án atvinnu. (Nærri 1.500 nýir námsmenn fóru í Háskóla Íslands vegna þeirra aðgerða).

• Tóku upp víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjar leiðir til náms fyrir ungt fólk

• Vörðu atvinnu með því að auka tekjur í stað þess að skera endalaust niður

• Settu sanngjarnt veiðigjald á útgerðina fyrst allra þjóða

• Læstu þrotabú gömlu bankanna inni í landi með lagasetningu í mars 2012. Án þeirra laga væri ekki hægt að semja um lausn á uppgjöri þrotabúanna. Framsókn og íhaldið greiddu atkvæði á móti
lagasetningunni.

• Settu lög um hvernig á að standa að sölu fjármálafyrirtækja í eigu eða hlutaeigu ríkisins til að koma í veg fyrir aðra einkavæðingu. Íhaldið og framsókn greiddu atkvæði á móti.

• Sögðu upp öllum aukasamningum við starfsfólks stjórnarráðsins, t.d. vegna notkunar á bíl og fleira. Aðeins greitt samkvæmt reikningum eftir það

• Skáru verulega niður í utanlandsferðum ráðherra, þingmanna og embættismanna

• Aðeins formenn þingmanna fóru erlendis á fundi og varamenn fóru ekki í þeirra stað

• Lækkuðu laun þingmanna og hæstu laun embættismanna

• Settu siðarelgur fyrir ríkisstjórn og ráðherra

• Fækkuðu ráðuneytum úr 18 í 8

• Fækkuðu ráðherrum úr 12 í 8

• Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti

• Settu fram og samþykktum áætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda

• Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans

• Fækkuðu þingnefndum

• Buðu stjórnarandstöðunni upp á formennsku í nefndnum

• Breyttu gjaldþrotalögum til að hjálpa því fólki sem komst ekki undan gjaldþroti

• Efldu fjármálaeftirlitið á kostnað bankanna

• Breyttu lögum um bankastarfsemi m.a. til að gera lágmarkskröfur um hæfni stjórnenda þeirra sem ekki hafði verið gert áður

• Lækkuðu dráttarvexti

• Breyttu reglum íbúðalánasjóðs til að draga úr greiðslubyrði heimila

• Gerðu umfangsmikla kjarasamninga í miðri kreppunni árið 2011

• Náðu að halda friði á vinnumarkaðinum allt kjörtímabilið þrátt fyrir alla erfiðleikana

• Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%

• Fjölguðu framhaldsskólum til að auka námsframboð fyrir ungt fólk

• Minnkuðum atvinnuleysi úr tæpum 10% í 4%

• Sendu AGS úr landi fyrr en áætlað var í upphafi

• Byrjuðu að endurgreiða lán sem norðurlöndin veittu okkur

• Endurgreiddum Færeyingum allt það sem þeir lánuðu okkur af rausnarskap sínum

• Losuðu okkur undan hryðjuverkjalögum sem Bretar settu á okkur undir hægristjórninni

• Héldu heilbrigðiskerfinu gangandi sem var ekkert sjálfsagt að hægt væri að gera

• Gerðu samkomulag við stjórnendur og starfsfólk Landspítalans um aðhald í rekstri til fjögurra ára og síðan uppbyggingu m.a. nýtt sjúkrahús

• Settu nokkrar stórframkvæmdir í gang í vegamálum

• Samþykktu og fjármögnuðu að fullu sérstaka fjárfestingaráætlun sem núverandi ríkisstjórn sló af

Hæddust ekki að almenningi

• Gerðu ekki grín að mótmælendum

• Kvörtuðu ekki undan gagnrýni, heldur svöruðu henni með rökum

• Létu vinna ótal greiningar og skoðanir á stöðu almennings, nánast alltaf í samráði við aðra stjórnmálaflokka

• Veittu stjórnarandstöðunni aðgang að efnahagsráðgjöfum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum við að skoða og gera úttektir á hugmyndum og tillögum sem andstaða vildi láta gera.

Nokkuð gott. Ekki satt?".


mbl.is Baráttan verður snörp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Eftir minni:

Er seðlabankastjórinn eitthvað hæfur?  Mér synist ekki.

Í kreppu á að vera *verðhjöðnun.*  Það þarf einbeittan brotavilja að viðhalda verðbólgu.

Þau skiluðu af sér skuldugu búi.  Sem er enn verið að reyna að borga niður.

Skattar hækkuður sko víst á lægstu launin - og ofaná það komu jaðarskattar.  Hellingur af þeim.  Sá eftirminnilegasti var sykurskatturnn - sem lagðist einmitt á kaffi.  Vegna þess að augljóslega!

Auðlegðarskatturinn lagðist á eignir óháð því hvort þær gáfu eitthvað af sér - þannig fóru nokkrar gamlar ekkjur á hausinn.  Og amk eitt fyrirtæki.

Þau keyptu skuldir bankanna á minnir mig 4% af raunvirði, og seldu b0nkunum þær á 4%, sem svo aftur rukkuðu fólk um 100%.  Sem er einmitt ástæða þess að bankarnir græða núna.

Vaxtabætur, segirðu?  Fuck that.

Veiðigjaldið setti allmörg útgerðarfyrirtæki á hausinn.  Þar með safnaðist kvótinn á færri hendur.

"Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti" Þurfum það eins og augu á innanverð nýrun.

"Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans" Þau vissu alveg að þau fengju ekki sama fylgið aftur.  Þetta var ekki fyrir *okkur.*

"Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%" samt dró talsvert úr fja´rlögum til spítalanna, svo eftir var tekið.  Og hefur enn ekki gengið til baka.

Þau létu einfaldlega eins og mótmælendur væru ekki þarna.

Svöruðu gagnrýni með skætingi.  Jóhanna er jú manneskjan sem braut viljandi lög sem hún hafði skömmu áður tekið þátt í að semja, og innt eftir því hnussaði hún bara.

Þetta lið var að auki að dæla pening í allskyns vitleysu - Evrópusambandið, Hamas hryðjuverkasamtökin, umhverfisráðuneytið...

Þetta var verst.

Athugaðu: bara það sem ég man.  Allt hitt er örugglega bull í þér líka.

Ásgrímur Hartmannsson, 9.10.2017 kl. 09:08

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

"Eins og hjá ættingja mínum í OZ er bara gras í höfðinu á mér og þar með enginn heili. M.ö.o. ekki marktækur "

Þessi höfundarlýsing stendur fyllilega undir væntingum.

Mitt komment er þetta:

https://youtu.be/5hfYJsQAhl0

Jón Steinar Ragnarsson, 9.10.2017 kl. 10:15

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

eg hef greinilega snert einhverja viðkvæma strengi. En sannleikanum er sérhver sárreiðastur. Einkum var þetta erfitt hjá þeim sem voru búnir að koma sér í þrot fyrir hrun. 

Kristbjörn Árnason, 9.10.2017 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband