Eina leiðin til jákvæðra breytinga fyrir samfélagið er að kjósa VG

  • Annars verður bara óbreytt ástand á Íslandi, vilja kjósendur það?
    *
  • Vilja kjósendur óbreytta hagsmunagæslu atvinnurekenda og spillingarástand á Íslandi? 
    * 
    Atkvæði greidd fylgislitlum framboðum munu nákvæmlega engu breyta
    *
  • Reynslan sýnir,að Sjálfstæðisflokkurinn sveiflar slíkum framboðum í kringum sig að vild sinni.

Stefna flokka og málamiðlanir

  • Í gegnum tíðina hefur staða flokkana verið ærið misjöfn þegar kemur að valdajafnvægi í samfélaginu
    *
  • Sjálfstæðisflokkurinn, flokkur samtaka atvinnurekenda á Íslandi hefur alltaf haft ómælt fjármagn og gríðarlega sterkan stuðning af þessu baklandi sínu
    *
  • Dæmi um þetta eru tugir auglýsinga á hverju kvöldi hjá sjónvarpsstöðvunum. Hver borgar, varla arfa rýr flokksjóður Sjálfstæðisflokksins? 

Þá hefur flokknum tekist að skjóta öflugum rótum innan ASÍ í gegnum lífeyrissjóðakerfið og einnig vegna þess að flest félög byggingariðnaðarmanna í ASÍ eru blönduð félög launamanna og atvinnurekenda.

Eina vinstri stjórnin á Íslandi var ekki bara undir hælnum á Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Heldur einnig undir hælnum á heildar samtökum atvinnurekenda í landinu og þeim aðilum í ASÍ sem höfðu mesta hagsmuni af stórframkvæmdum sem áttu sinn hlut í hruninu í þjónustu við erlenda aðila.

Sjálfstæðisflokknum hefur tekist að hjúpa sig sauðagæru og þannig hefur hann getað látið líta svo út að hann annist hagsmuni allra stétta með sama hætti.

Þetta er auðvitað rangt og undir gærunni þrífst mikil spilling og hagsmunagæsla fyrir yfirstéttina í landinu er fylgir gjarnan gömlum valdaflokkum.

Það sem skiptir mestu máli á vettvangi Alþingis er að flokkur hafi sem flesta þingmenn. Slíkir flokkar flokkar þurfa nánast aldrei að gefa eftir í stefnumálum sínum í samstarfi við aðra flokka.

Valdaflokknum hefur gefist best að starfa með hinum gamla valdaflokknum er hefur um flest sömu viðhorf.

Til að breyta þessu í næstu kosningum er lausnin að styrkja vinstri flokk svo í sessi að hann hafi fleiri þingmenn en gamli valdaflokkurinn. Í skoðanakönnunum síðustu dagana virðist Vinstri hreyfing hafa slíkt fylgi sem getur breytt öllu.

Ef kjósendur vilja í raun hverfa frá spillingunni og valdbeitingunni sem hefur grasserað alla áratugina frá lýðveldisstofnuninni er þarna tækifærið til breytinga.

Kjósendur eiga rétt á því að vita hvað tekur við eftir kosningar. Það er því ekki nema sanngjarnt að þeir flokkar sem eiga hvað mesta samleið lýsi yfir hvaða flokkum þeir vilja starfa með eftir kosningar. Ef menn vilja félagshyggjustjórn þá liggur beinast við…
STUNDIN.IS

mbl.is Undrandi á ummælum Þorgerðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Alveg gæti ég hugsað mér að kjósa VG ef Gunnarsstaða Móri og Svandís Svafarsdóttir væru ekki meðal frambjóðenda.

Hrossabrestur, 19.10.2017 kl. 12:37

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

en þú værir auðvitað alveg tilbúinn á kjósa Sjálfstæðisflokkinn þótt Bjarni sé þar formaður. M lista þótt Sigmundur Davíð sé þar og Framsókn þótt Sigurður Ingi sé þar. Viðreisn þótt bæði Benedikt og Þorgerður Katrín séu þar. Samfylkinguna þótt sá flokkur hafi barið í gegnum ríkisstjórn á sínum tíma Bakka stóriðju ákvörðun og olíuleitar brölt. Það lá við stjórnarslitum.

Ég er bara að benda á það, að málamiðlanir eru flokkum erfiðar. Eftir því sem þingflokkar stjórnmálanna eru fámennari er auðvelda fyrir stóran valdaflokk að valta yfir slíkan flokk. Það er bara einn raunverulegur valkostur vilji fólk breyta stöðunni.

Kristbjörn Árnason, 19.10.2017 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband