Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
20.9.2017 | 17:13
Greinilegt er hver hugur þessa fjármálamanns er
- Allar götur frá hruni hafa erlendir aðilar hirt fleiri og fleiri íslensk fyrirtæki upp í skuldir.
- Eða keypt á tombóluverði eftir að Sjálfstæðisflokkurinn komst í ráðuneytin á ný.
Hamast hefur verið að byggja upp ýmis stór-fyrirtæki fyrir tilstuðlan þessa flokks bæði á vettvangi ríkisvaldsins og á vegum sveitarstjórna.
Þetta þýðir að arður af atvinnulífinu á Íslandi fer í auknum mæli til útlanda. Ísland er að verða eins og hvert annað þróunarland.
Á Íslandi fer fyrst og fremst fram frumvinnsla í stórum stíl er byggir á íslenskum auðlindum í fyrirtækjum nánast alltaf í eigu útlendinga.
Nú er veruleg hætta á því að erlendir aðilar hirði fjárfestingar innlendra aðila í ferðaþjónustunni.
Slíkt getur ekki gengið til lengdar og mun leiða til lífskjaraminnkunar er fram líða stundir.
![]() |
Óvissa eitur í beinum fjárfesta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2017 | 14:24
Það verður að gera úttekt á stjórnsýslu OR í byggingarmálum frá upphafi.
- Slíka úttekt verður borgarstjórn að láta gera í samstarfi með öðrum meðeigindum. Ekki dugir að stjórn OR geri slíka úttekt ein og sér.
- En þetta hús var byggt undir forystu Alfreðs Þorsteinssonar borgarfulltrúa Framsóknaflokksins.
- Þá væri spurt hvort einhver lausatök hafi verið á þessari framkvæmd allri í óþökk annarra borgarfulltrúa.
Það er ljóst að ef lýsingar aðila á göllum nýju byggingu Orkuveitunnar eru réttar eins og fram kemur í eftirfarandi lýsingu:
Niðurstaða úttektar verkfræðistofunnar Eflu á skemmdunum var að margskonar ágallar hefðu verið á uppsetningu útveggjarins; pressulistar óþéttir, skrúfur of langar, plötur fyrir innan klæðningu ýmist ekki nægjanlega þykkar, langar eða breiðar, samskeyti platnanna óþétt, lekar í kverkum, gleri og með opnanlegum fögum, og þá hafi frágangur dúks verið ófullnægjandi þannig að vatn komst auðveldlega á bak við hann.
Þá er nánast ljóst að eitthvað hefur verið að, alveg frá upphafi. Ekki dugir að rannsaka bara það tímabilið frá 2009 eins og fulltrúi Framsóknarflokksins vill.
Í upphafi byggingar eru auðvitað gerðir samningar og verktakar taka að sér verkefni og undir gangast ákveðna skilmála um hvernig skuli framkvæma verkið.
Voru þeir eðlilegir og eftirfylgnin eðlileg?
![]() |
Útiloka ekki bótakröfu á eigin ráðgjafa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.8.2017 | 10:59
Hvað með sorpið?
- Það er að verða marktæk vitundarvakning með burðarpokanna. Það er auðvitað frábær þróun
Æ fleiri nota nú fjölnota burðarpoka í innkaupum fyrir heimilin.
Það er auðvitað löngu kominn tími til þess að verslanir almennt bjóði upp á pappírspoka.
- En vandinn með sorpið er óleystur.
Gerð er sú krafa í öllum fjölbýlishúsum að sorp sé sett í plastpoka sem fer um sorprennurnar eða í tunnurnar séu þær ekki við rennur.
Þá er um að ræða matarafganga og umbúðir vegna matvæla. Reikna má með að Sorpa hafi uppi sömu kröfur.
Annar úrgangur, pappír og plast fer ópakkaður í viðeigandi tunnur.
![]() |
Ofgnótt af plasti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2017 | 22:04
Þingflokksformaður Pírata var skírmæltur í morgun
- Hann skóf ekki utan af því hann Einar Brynjólfsson, þingflokksformaður Pírata, í ræðu sem hann hélt á aðalfundi Pírata sem var settur í morgun.
Hann sagði m.a.: Það var alveg ljóst að ekki kæmi til greina af okkar hálfu að taka þátt í samstarfi með hinum gjörspilltu stjórnmálaflokkum, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki, enda höfðum við gefið það út fyrir kosningar,
Það er langt síðan að ég hef heyrt alþingismann lýsa hægri flokkunum með jafn skýrum hætti. En merklegt finnst mér að hann hafi ekki minnst einu orði á útibú Sjálfstæðisflokksins, hægri flokksins ,,Viðreisn" sem varla getur talist vera sérstakur siðbótarflokkur.

![]() |
Nýtt framkvæmdaráð Pírata kynnt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2017 | 16:40
Er þessi atvinnugrein algjörlega úti á túni?
- Í gögnum ríkisstjórnar og bændasamtakanna eru fjórar röksemdir sem eiga að réttlæta umfangs mikinn stuðning við landbúnað í formi innflutningshafta og niðurgreiðslna.
Þær eru:
1. verðvernd fyrir neytendur, Þetta stenst reyndar enga skoðun því ef reynt væri að selja þessar vörur á verðum sem framleiðendur þurfa myndu þær ekki seljast. Það er ástæðan fyrir niðurgreiðslunum. Það er verið að gera íslenskar landbúnaðarvörur seljanlegar.
2. að spara gjaldeyri, það er mjög vafasamt að þessi staðhæfing standist, enda ekki tilgangurinn. Ef það væri staðreyndin kæmu fjölmargar aðrar atvinngreinar til greina.
3. að halda landi í byggð og vinna gegn fækkun bænda. Hið rétta er, að hér verið að halda uppi bændum og fyrirtækjum þeirra. Öllum virðist sama um fólkið sem er launafólk í dreifðustu byggðum landsins.
4. fæðuöryggi þjóðarinnar. Því miður getur landbúnaðurinn ekki staðið undir því markmiði að tryggja fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar. Það er langur vegur í frá.
Kanski hefur miðstýring bændasamtakanna eyðilagt þessa grein. Hún er skuldsett langt upp fyrir alla möguleika greinarinnar til að standa undir slíkum ofurskuldum.
- Ef bændastéttin ætlar sér að misnota endalaust velvilja launafólks í þéttbýlinu endar það bara á einn veg. Velviljinn hverfur og er reyndar farið að bera alvarlega á því.
Hvenær á að taka á vanda landsbyggðarinnar með heilstæðum hætti svo allir íbúar í dreifðustu byggðunum njóti þess?
Ekki bara þeir sem stunda atvinnurekstur í einhverri mynd og greiða nú þegar sáralitla skatta.
![]() |
Verðhrunið ægilegt áfall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2017 | 10:04
Umhverfisvitund fólks og fyrirtækja er vaxandi
- Þetta er auðvitað flott framtak sem fjöldi fólks hefur tekið þátt í.
Nú er vandamálið á hinum endanum því enn verður að setja sorp í tunnurnar í plastpokum.
Í fjölbýlishúsum með sorprennum er það algjör regla að svo sé gert. En innkaupapokar frá verslunum hafa gjarnan verið notaðir til þess.

![]() |
Skoða hærra gjald á alla poka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.8.2017 | 10:00
Eiga skattgreiðendur að niðurgreiða erlenda framleiðslu?
- Vissulega breytir þessi ákvörðun miklu um hvernig virðisaukaskattsafslætti af bókum er varið.
En nú er svo komið að flestar bækur útgefnar á Íslandi eru prentaðar og framleiddar erlendis. Kínverjar ku vera duglegir í þessari starfsemi fyrir íslenskar útgáfur.
Er það eðlilegt að íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði erlenda iðnaðarframleiðslu með skattaívilnunum?

![]() |
Finnar prenta jólabækur Forlagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |