Undirstaða kapitalismans.

  • Frjálshyggju lífeyrissjóðirnir eru það svo sannarlega og einnig undirstaða mikils misréttis fólks á Íslandi
    *
  • Kvika frjálshyggjunnar var svo sannarlega strokin öfugt í Kviku-þættinum í gærkvöld.  

Ragnar Þór snerti aldeilis við viðkvæmum streng er hann minntist á lífeyrissjóð verslunarmanna.

Ragnar þór,1. maí 2018

Þessa helstu undirstöðu hins íslenska kapitalismans sem lífeyrissjóðirnir eru við hlið fiskveiðiheimildanna og kerfisbundis mismununar í skattamálum.

Allt skulu þetta vera ósnertanlegir hlutar fjármagnselítunnar og skal vera undir yfirráðum hennar.

Auðvitað geta samtök launafólks sett fulltrúa sína í verkfall er starfa í stjórnum lífeyrissjóðanna rétt eins og aðra starfandi félagsmenn sem eru í verkfalli og þá einnig þá félaga sem starfa á skrifstofum þeirra.

Verkfallsvakt getur þá einnig komið í veg fyrir að aðrir stjórnarmenn gangi í þeirra verk sem eru í verkfalli.

Staðreyndin er auðvitað sú að launafólk greiðir frá 15,5% af launum sínum í sjóðina og upp í rúmann fimmtung allra launa sinna. Þetta eru óheyrilega há iðgjöld.

Eigendur fyrirtækjanna eða fjármagnseigendur greiða ekkert af þessum iðgjöldum. Auk þess greiðir launafólk öll tryggingagjöldin þar til viðbótar.

  • Það eru engin lög í landinu sem geta afnumið verkfallsrétt fólks er starfar hjá þessum sjóðum, bara svo því sé komið til skila. Atvinnurekendur borga afar litla skatta sjálfir.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Var brugðið eftir ummæli Ragnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Belgingur?

  • Undanfarnar vikur hefur útvegsbóndi norðan úr landi verið með mikinn derring gagnvart þjóðinni
    *
  • Stundin hefur verið að varpa nokkru ljósi á viðskipti þessa manns sem virðist telja sig vera hafinn yfir þjóðina og hagnast greinilega á kostnað hennar og jafnvel annarra þjóða.

Derringurinn virðist vera vegna þess að Seðlabankamenn telja sig hafa áreiðanleg gögn í fórum sínum er sýna að útgerðarfélagið Samherji hafi farið á svig við gjaldeyrishaftalög eftir hrunið.

  • Væntanlega verður þetta fyrst ljóst eftir að Davíð hrökklast úr seðlabankanum.

Það er ljóst að Samherji hefur ekki verið sýknaður af ákærum Seðlabankans. Seðlabankinn útskýrði nánar þetta atriði í tilkynningu sinni með því að segja að mistök hafi verið gerð við lagasetningu um gjaldeyrishöftin á sínum tíma:

„Þá er að mati embættisins ekki hægt að sakfella vegna meintra brota sem urðu á tímabilinu 15. desember 2008 til 31. október 2009 sakir þess að samþykki viðskiptaráðherra við útgáfu reglna nr. 1130/2008 um gjaldeyrismál sem settar voru í desember 2008 var ekki tryggt með viðunandi hætti. Taldi embættið því ekki líklegt að saksókn myndi leiða til sakfell-ingar stjórnenda félaganna og því rétt að endursenda málið til Seðlabanka Íslands til meðferðar og ákvörðunar um hvort ætluð brot í málinu gefi tilefni til beitingu stjórnsýsluviðurlaga.“

Stundin segir frá viðskiptum Þorsteins og hvernig þau og viðskipti Samherja eru rekin í skattaskjólum. Einnig hvernig helstu eigendur Samherja koma sér hjá því að greiða tekjuskatta með eðlilegum hætti.

Samherji eins og flest útgerðarfyrirtæki njóta gríðarlegra styrkja og fríðinda frá íslensku samfélagi með því m.a. að fénýta fiskimið landsins fyrir lítið.

STUNDIN.IS
 
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og stærsti eigandi útgerðarfélagsins Samherja, á tæplega 40 milljarða króna eignir í eignarhaldsfélaginu sínu sem heldur utan um hlutabréfaeign hans í fyrirtækinu. Stærstu eignir félagsins eru hlutabréf í Samherja og tengdum félögum. Á mó...

mbl.is Fundargögnum skilað til ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband