Flottur flugdagur án drápsvéla

  • Það er fagnaðarefni að þessum herflugvélum var meinuð þátttaka í flugdeginum.

herþyrla 1
Með þátttöku þeirra hefði þessi dagur auðvitað breyst í hersýningu í rússneskum eða Bandarískum sið. Slíkur herveldastíll á ekki heima í Reykjavík. 

herþota

Vonandi munu borgaryfirvöld meina erlendum herskipum að koma hér í Reykjavíkurhöfn í framtíðinni. 

Ég veit að margir eru mér ósammála í þessu efni og er mér sama um það.

Því það eru enn margir sem trúa því að þessi vígtól sé hér af einstæðri fórnfýsi herveldanna til að vernda íslendinga fyrir vondum körlum úti í heimi.

,,Sérfræðingur í varnarmálum Bandaríkjanna segir að staðsetning Íslands hafi náð fyrra mikilvægi hvað öryggismál snertir vegna umsvifa Rússa í Norður-Atlantshafi. Hann segir að Íslendingar muni án efa verða meira varir við bandaríska sjóherinn í framtíðinni.
 

Bandarísk stjórnvöld endurræstu flotastarfsemi bandaríska sjóhersins í Norfolk fyrir tveimur vikum.  Það er sá armur flotans sem sér um öryggismál Austurstrandarinnar og í Norður-Atlantshafi.  Ástæðan er aukin spenna í samskiptum við Rússa".(RUV, 8.sept)


mbl.is Borgin bannaði þátttöku herflugvéla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband