Hér glampar á skattamisréttið

  • Það er ekki undarlegt að eigendur atvinnufyrirtækja á Íslandi séu viðkvæmir fyrir sköttum eins og auðlegðarskatti og auknum skatti á mjög stórar eignir
    *
  • Eini tekjuhópurinn á Íslandi sem nýtur allra persónuafslátta til frádráttar á sköttum er þeir sem eru í hæsta tekjuhópnum
    *
  • Það ætti öllum að vera ljóst, að bæði Fréttablaðið ásamt 365-miðlum og Morgunblaðið hafa alltaf staðið með Sjálfstæðisflokknum í öllum sínum málflutningi gegn réttlátum kröfum launafólks á Íslandi um jafnrétti í skattamálum. .

peningar

Því þessi hópur, atvinnurekendur eða fjárfestar þ.e.a.s. þeir sem eiga atvinnufyrirtækin í landinu og eru oft ekki starfsmenn þeirra greiða aðeins kr. 28,5 í fjármagnstekjuskatt samkvæmt áætlun fyrir 2018.

En þessi hópur fólks hefur megintekjur sínar af fjárfestingum sínum í gegnum eignarhaldsfélög og fjárfestingasjóði. Þeirra tekjur bera aðeins 20% heildarskatt.

Það er launfólk sem greiðir skattana á Íslandi en ekki fyrirtækin sjálf sem slík og eigendur þeirra. En það er réttlætismál að það skattamisrétti sem þrífst á Íslandi verði afnumið jafnvel þótt það skili ekki því fjármagni strax og bæti úr skaða í hvelli sem áratuga skattamisrétti hefur valdið.

Fyrirtæki og eigendur þeirra greiða aðeins skatta af nettótekjum og ekkert útsvar. Á meðan launfólk greiðir skatta af brúttótekjum og flata skatta eins og útsvar, tryggingagjöldin tæp 7% af brúttólaunum og t.d. 15,5% af brúttólaunum í lífeyrissjóðaskattinn, í því liggur aðalmunurinn.

Hluta af þessu misrétti má ma. annars sjá úr þessari frétt Moggans, en atvinnurekendur túlka þetta sér í hag og matreiða að sjálfsögðu. Hér er auðvitað skattamisréttið á ferð.

  • Enginn hefur haldið því fram til þessa að þessar skattabreytingar einar dugir til að bæta skaðann af misréttinu og til að kosta nauðsynlega uppbyggingu á innviðum á Íslandi. 
  •  
  • Stórsamtök atvinnurekenda hafa þegar bent á, að það vanti þegar um 400 milljarða til að laga þjóðvegi, hafnir og holræsi og þá er allt heilbrigðis-, skóla- og félagskerfið óneft. 

,,Tekju­skatt­ur ein­stak­linga skilaði 160,6 millj­örðum króna í fyrra. Það er um 70% meira en árið 2009, þegar skatt­ur­inn skilaði 94,7 millj­örðum. Töl­urn­ar eru á verðlagi hvors árs.

Þetta kem­ur fram í grein­ingu Rík­is­skatt­stjóra fyr­ir Morg­un­blaðið. Þar kem­ur og fram að lægsta þrepið í tekju­skatt­in­um skilaði 150,3 millj­örðum í fyrra. Til sam­an­b­urðar skilaði milliþrepið 5,4 millj­örðum og efsta þrepið 4,9 millj­örðum. Hlut­fall þess­ara tveggja þrepa var 3,3 og 3% af sam­an­lögðum tekju­skatti í fyrra".

Upptaka hátekju- og auðlegðarskatta gæti skilað 5 til 13 milljörðum. Forstöðumaður hjá SA segir tugmilljarða kosningaloforð ekki fjármögnuð nema með hækkun skatta á…
WWW.VISIR.IS
 

mbl.is Skilar 70% meira en 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband