Hvenær ætla íslensk stjórnvöld að taka afstöðu gegn þessum hryðjuverkum fasistanna sem stjórna Ísrael?

  • Her Ísraelsmanna gerir ítrekaðar skotárásir á vopnlaust fólk sem mótmælir landráðum Síonista á Paletísku landi. Með tæknilega háþróuðum Bandarískum vopnum
    *
  • Er það virkilega þannig, að íslenskur utanríkisráðherra og ríkisstjórn Katrínar Jakopsdóttur styðji þessi hryðjuverk Ísraelsmanna?

Í dag minnast Palestínumenn Nakba eða hörmunganna þegar meira en 700.000 manns voru hraktir frá heimkynnum sínum í kringum stofnun Ísraelsríkis fyrir réttum 70 árum eða árið 1948.

Hvenær ætla íslensk stjórnvöld að taka afstöðu gegn þessum hryðjuverkum fasistanna sem stjórna Ísrael? Hvenær?

Minna má á samþykkt Alþingis Íslendinga frá 2011 um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu og hefur vinasamband við þessa kúguðu þjóð.

Palestínuþjóðin er ein af vinaþjóðum íslensku þjóðarinnar.

Ekki má gleyma þátttöku Bandaríkjanna í þessari helför Ísraela gegn fólkinu í Palestínu. Fólkinu sem lifði í þessu landi og á það með réttu.

Bandaríkin komu í veg fyrir að send væri út yfirlýsing á vegum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Í drögum að yfirlýsingunni er kallað eftir sjálfstæðri og gagnsærri rannsókn á ofbeldinu við landamæri Ísraels og Gaza í dag.

Að minnsta kosti 55 Palestínumenn hafa fallið fyrir byssukúlum ísraelskra hermanna og yfir 2.400 Palestínumenn eru særðir. Hverskonar fólk eru ráðamenn í Bandaríkjunum?

  • Hvernig má það vera, að girðing sú sem herveldið setti upp utan

    um íbúa Casa með hervaldi séu viðurkennd landamæri Ísraels?
RUV.IS
 
Minnst 59 Palestínumenn liggja í valnum eftir mótmælin á Gaza í gær, flestir skotnir til bana. Að minnsta kosti 2.400 eru sárir. Boðuð eru frekari mótmæli á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna í dag.

mbl.is Táragasið drap ungbarn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband