Sem fuglinn frjáls

  • Ég er frjáls og fullvalda, sagði fugl í búri. Ég get sveiflað vængjum mínum að vild minni og get sagt hvað sem er
    *
  • Ég get jafnvel talað illa um eiganda búrsins án þess að hann refsi mér eða skammist. Hann gefur mér sérvalið korn
    *
  • Hann verndar mig fyrir öllum ljótu köllunum og fyrir það er ég þakklátur. Hann breiðir teppi yfir búrið þegar honum þóknast
    *
  • En ég er algjörlega frjáls gjörða minna og hugsana, þ.e.a.s. algjörlega fullvalda
    *
  • Einstaka sinnum fæ ég að fljúga um herbergið þegar búrið er þrifið.
  • Mynd frá Kristbjörn Árnason.
  •  
 

mbl.is Fullveldi í tölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband