Mörgum sveitastráknum verður hált á svellinu hér í Reykjavíkur-sollinum

  • Um Miðflokksmenn veit ég færra en fátt, annað en það sem öðru fólki þætti ekki sæmd af.

Ég heyrði utan að mér í dag af fleiri bellibrögðum þessara ódrengja þetta kvöld.

Sagt er að þegar þeir fóru út af Klaustur-barnum, hafi þeir hafi farið inn á nærliggjandi öldurhús og látið dólgslega við ungar konur.

Margt ungt fólki mun hafa tekið myndir af þessum kumpánum þetta kvöld við þetta ölæði sitt. Slíkar myndir eru til hjá fólki sem var þarna á ferð.

Nú vantar bara að auglýsa eftir slíkum myndum. Í ljós kæmi þá væntanlega að þeir eru óhæfir til ábyrgra starfa.

Líklega hefur þroskaþjálfinn ekki verið með í soll-útrás þessari

Ekkert veit ég um sannleiksgildi þessa orðróms

Aldrei neitt vesen er
í sjálfum desember.
Nema framlágir í miklu flaustri
fastir greyin, í eigin klaustri.

Sáu roðann í austri, í morgunsárið

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is „Þeir eru ofbeldismenn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband