Mikilvægt að endurúthluta fjölmörgum lóðum sem nú geyma 75 bensínstöðvar

  • Frábær stefnumörkun hjá borginni um fækkun bensínstöðva í Reykjavík

„Ég er aðeins hugsi yfir þessu útspili borgarinnar. Mér finnst þeta ansi brött nálgun á þá mögulegu þróun sem gæti orðið á næstu árum,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís.

En borgarráð samþykkti í gær stefnu sem felur í sér að bensínstöðvum í Reykjavík fækkar um helming á næstu sex árum.

Það er augljóst að þörf fyrir bensínstöðvar fer snarminnkandi með til komu rafmagnsbíla og síðan metanbíla. Hér takast auðvitað á sérhagsmunir olíufélaganna og almennings hins vegar.

Félögin vilja sjálf ráða því hvernig þessar lóðir verða nytjaðar til framtíðar og í þeirra umsjón. Við þetta rýrnar verulega huglægt verðmæti félaganna því þessar lóðir eru mjög verðmætar borginni og eru jafnan staðsettar á mjög mikilvægum stöðum.

Þetta eru gríðarlega margar stórar lóðir sem skipta máli fyrir íbúanna til framtíðar og um það hugsa borgaryfirvöld.

 
 
„Ég er aðeins hugsi yfir þessu útspili borgarinnar. Mér finnst þeta ansi brött nálgun á þá mögulegu þróun sem gæti orðið á næstu árum,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís. Borgarráð samþykkti í gær stefnu sem felur í sér að bensínstöðvum í Reykjaví...

mbl.is Mjög hugsi yfir útspili borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Oft er gott að hugs í öfgum, td. í þessu máli. Segjum svo að það væri bara ein bensínstöð á höfuðborgarsvæðinu td. N1 á Ártúnshöfðanum, sunnan meginn. Þá þyrftu allir bíleigendur á þessu svæði að keyra þangað. Gott?. Hafnfirðingar jafnt sem Mosfellingar, allir þangað. Ég segi bara nei, fjöldi bensínstöðva dregur úr mengandi akstri, öllum til hagsbóta. Nota svo sem samanburð að í London sé aðeins ein bensínstöð á hverja 10.000 íbúa. Hefur sá sem sagði þetta rugl aldrei komið til London? Í London eiga EKKI nær hver einasti borgarbúa bíl eins og er hér á Íslandi. 

Örn Johnson (IP-tala skráð) 10.5.2019 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband