18.6.2019 | 22:47
Þófið og áróðurinn hefur engu skilað
- Þetta er einhver sérkennlegasta niðurstaða sem hugsast getur. Eftir allt þófið liggur Miðflokkurinn algjörlega flatur fyrir vilja meirihluta þingmanna.
Þ.e.a.s. ef ekkert nýtt kemur fram í málinu sem gjörbreytir öllu málinu. Það eru nánast engar líkur til þess að svo verði.
- Því það liggur fyrir, að allaf munu alþingismenn í framtíðinni ráða framtíð Íslands í orkumálum.
Breytir þá engu um ályktanir þingsins eða lagatil-búning. Alltaf má breyta lögum og það vita allir þingmenn. Málið er allt sýndarmennska hjá Miðflokknum.
Nema hugsanlega að til komi langþráðar breytingar á stjórnarskránni er kveði á um að ákvarðanir eins og um beinan orku útflutning um sæstreng yrði að vera borið undir þjóðina í þjóðaratrkvæðagreiðslu til samþykktar.
Vandinn er bara sá, að Miðflokksmenn eru á móti þeim tillögum sem liggja fyrir um breytingar á stjórnarskrá þar sem slík skilyrði eru fyrir hendi.
Í öðru lagi með hráa kjötið er sýnir aðeins hræsni og sýndamennsku Miðflokksins, þar sem það eina sem gerist að gildistöku laganna um innflutning á hráu kjöti er frestað um tvo mánuði.
- Tveir mánuðir sem engu breyta um málið.
Mun sakna blessaðs stríðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 22:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.