27.4.2019 | 19:55
Það er um að gera að láta fulltrúa valdsins heyra það.
- Nú eru hælisleitendur farnir að elta uppi ráðherra Sjálfstæðisflokksins þar sem þeir eru á opnum fundum flokksins
* - Þeir krefjast svara frá þessum ráðamönnum gamla valdflokksins. Það er einmitt flokkurinn sem hefur helst beitt sér í gegnum tíðina gegn komu hælisleitenda til Íslands.

- Fram kom að hælisleitendurnir sem rætt var við eftir fundinn. Að hælisleitendur hafi um langt skeið og ítrekað reynt að fá fund með ráðherra dómsmála til að ræða sín mál, en engin svör fengið.
![]() |
Upphlaup á fundi Sjálfstæðisflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2019 | 10:05
Fólkið í þokunni
Nú í Kjarnanum birtist nokkuð lýsandi grein skrifuð af Þórði Snæ sem skýrir nokkuð stöðu fólks sem dregur fram lífið á launum frá Tryggingastofnun sem kallast íhaldsheitinu örorkubætur.
Því þetta eru auðvitað laun og ekkert annað, en ekki bætur. Það er ekkert verið að bæta eitt né neitt. Örorka eða fötlun verður ekki bætt eða læknuð með peningum
Í greininni segir frá því að allar reglur og lög um hvernig upphæðir slíkra launa skuli vera hverju sinni séu í raun brotnar, öll vinnubrögð séu óútskýranleg því fólki sem býr við þennan kost.
Allar ákvarðanir virðast taka mið af pólitískum hentugleikum þess ráðherra sem er fjármálaráðherra hverju sinni. M.ö.o. fólkið sem háð þessu lífviðurværi býr í þoku og þekkingarleysi um hvernig laun þess eru ákvörðuð.
Það er auðvitað óviðunandi að svona ástand ríki á meðan VG er í ríkisstjórn þótt málaflokkurinn sé á hendi gömlu valdaflokkana og stjórnsýslulegri ábyrgð. Þeirra flokka sem bera í raun ábyrgð á þessu ástandi. Svelti-aðferðinni sem á að knýja nöktu konuna til að spinna þótt heilsulaus sé.
Það er auðvitað ógnvekjandi ástand að fjöldi fólks með 75 prósent örorku- og endurhæfingarmat á Íslandi skuli hafa tvöfaldast á tæpum tuttugu árum. Þetta er auðvitað viðfangsefni sem takast verður á við með mannúðlegum hætti.
Auk þess sem eftirlaunafólki fer hraðfjölgandi. Þessi mál leysast ekki með valdi og svelti-tilburðum, þar verða að koma til félagsleg úrræði.
Húsnæðismál láglaunafólks hafa lengi verið í ólestri eða allar götur frá valdatíð Davíðs Oddssonar. Ef tekið væri á þeim vanda með félagslegum hætti, mætti bæta stöðu þessa láglaunafólks mjög verulega.
Einnig gætu opinberar stofnanir og fyrirtæki auðveldlega nýtt sér vinnukraft fólks sem er með örorkumat og að einhverju leiti skerta starfsgetu. Það búa allir einstaklingar við einhverja skerta starfsgetu.
Þá þyrfti að leysa launamálin og tengd skattamál með eðlilegum og sanngjörnum hætti. Það verður að hætta að láta fordóma ráða þar för.
En einnig verður sanngirni að ríkja því greinilegt er að fullstarfandi og skattgreiðandi fólki fer hlutfallslega fækkandi í framtíðinni.
21.4.2019 | 18:56
Það er greinilega eitthvað að, hjá þessu fyrirtæki
- Er þetta ekki stærsti eigandinn að Morgunblaðinu sem á þetta fyrirtæki?
* - Og þess vegna meðeigandi Eyþórs Arnalds borgarfulltrúa í þessu útgáfufyrirtæki?
* - Sem ræðst með þessum hætti gegn launafólki.
* - Það er svo sem ekkert nýtt að Morgunblaðið ráðist að launafólki í áratuga sögu sinni.

Ein ríkasta fjölskylda landsins, útgerðarslektið í Eyjum sem á ÍsAm heildsöluna, reynir að hindra samþykkt kjarasamninga sem stefna að því að láglaunafólk geti lifað af laununum sínum.
Verulega ógeðslegt.
Þetta eru vörur sem koma frá þeim, spurning um að finna bara eitthvað annað...
![]() |
Ekki hótun hjá ÍSAM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.4.2019 kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2019 | 23:39
Verðbólguvaldar
- Sífellt er einblínt á launin í landinu þegar verðbólguváin er annarsvegar. En það eru auðvitað margir aðrir þættir sem spila inn í þá stöðu
- Hvernig væru að skoða ábyrgð atvinnurekenda t.d. í byggingariðnaði í verðbólgumálunum.
- Kaupmenn sem eru þekktir fyrir einstakt okur eða innflytjendur sem flytja til ódýrar vörur til landsins en selja á okurverði. Skipafélögin gefa ekki flutningin til landsins.
- Hvernig ætli standi á því að einn af nýju Samsung símunum kostar allstaðar það sama á Íslandi, 230 þús. en er seldur fyrir 40 000 lægra verð á Spáni.
- Ef það er eitthvað sem veldur verðbólgu á Íslandi er það óeðlilegt vöru- og þjónustuverð. Hvað ætli Seðlabankinn geri í því? Ekkert.
- Eða rándýr bankastarfsemi sem veldur gríðarlega mikilli verðbólgu. Ásamt fjárfestum fjármagnseigendum í braski sínu, leiguokrar
- Allt eru þetta verðbólguvaldar og miklu fleiri óupptaldir
![]() |
Við veðjum á vaxtalækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)