19.12.2018 | 17:13
Bjarni talar eins og málaliði atvinnurekenda
- Enda hefur það marg sýnt sig, að hann er þeirra maður bæði í orði og í verki
* - Ekki er undarlegt að þegar ráðherrann lýsir sig sí og æ, að vera liðsmaður SA, að mótaðalinn láti í sér heyra.
Það er bara þannig og hann veit vel að í landinu hefur verið vaxandi launamisrétti allar götur frá því að Davíð Oddsson varð forsætisráðherra.
Ekki bara það, að á öllum þessum tíma hefur skattamisréttið einnig verið viðvarandi þótt VG hafi tekist að klóra í land á tíma vinstri stjórnarinnar og nú örlítið við þessa síðustu stjórnarmyndun.
Þá hefur flokkur Bjarna beitt sér fyrir því að brjóta miskunnarlaust niður innviði félagslegs umhverfis launafólks á ráðstíma sínum sem kemur berlega í ljós í húsnæðismálum launafólks. Stefna valdaflokksins hefur verið allsráðandi.
Verkamannabústaðakerfið sem var burðarás í húsnæðismálum láglaunafólks var aflagt bótalaust og nú skal hneppa launafólk í leiguíbúðir okurfyrirtækja. Ástandið stefnir hraðbyri verða eins og lesa má um í bókum Charles Dickens.
Valdaflokkurinn unir sér vel með gömlu dönsku stjórnarskránna að vopni og því að á Íslandi ríkir ekki fjölskipað stjórnvald og hver ráðherra er nánast alvaldur í sínum málaflokki.
Stríðsyfirlýsing hjá Bjarna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)