Að kenna öðrum um

  • Alþingismenn, ráðherrar og ýmsir opinberir ráðamenn hafa hneykslað almenning á því hvernig þessir aðilar hafa getað makað krókinn með skattfé almennings
    *
  • Auðvitað telur fólk eðlilegt að þessir aðilar séu á góðum launum, en að það sé farið frjálslega með skattfé almennings er ólíðandi.

En fyrirkomulag á kjörum þessara aðila tekur mið af launum fyrirmanna í sjálfu atvinnulífinu. Forstjórar fyrirtækjanna og framkvæmdastjórar eru með mun hærri laun.

samtakamátturEinnig forystumenn samtaka atvinnurekenda og einnig forystumenn í stærstu samtökum launafólks. Þetta eru einmitt aðilar sem kasta nú grjóti út úr glerhúsi.

Ekki ætla ég að verja stjórnmálamennina og eða excel-kjöl þeirra. Hvernig þeir vinka þeim framan í forystumenn í t.d. ASÍ.

  • Valdið er og á að vera hjá félagsmönnum og hjá verkalýðsfélögum þeirra í kjaramálum. Þessu vilja margir gleyma.

En það vill bara svo til, að ASÍ menn sjálfir nota excel-skjöl til að að mikla sinn árangur og hafa haft lítinn áhuga á launum fólks sem hefur minna en 300 þúsund á mánuði.

Bara í þessari grein gerir fyrrum miðstjórnarmaðurinn til margra ára í ASÍ, Guðmundur sig sekan um slíkt hið sama.

Nú fyrir örfáum dögum upplýsti eftirmaður Guðmundar núverandi formaður rafiðnaðarmanna um kjarastefnu þeirra sem fer algjörlega gegn þeirri stefnu sem nýir foringjar verkalýðsfélaga í Reykjavík boða.

Þetta er furðuleg grein, hann vill ekki viðurkenna að reiði fólks snýr fyrst og fremst að forystumönnum í ASÍ nú eins rétt eftir hrunið.

Þegar þessir miðstjórnarmenn tóku sér stöðu gegn hagsmunum launafólki í vaxta- og verðtryggingamálum. Er varð til þess að hrunið fór miklu verr með launafólk en annars hefði þurft að verða.

Guðmundur er einn þeirra sem hafa staðið að Salek fyrirbærinu sem gengur út á skerðingu á samningsfrelsi fjölmargra verkalýðsfélaga og skerðir mjög verkfallsréttinn.

Sumir eiga að hafa samningsrétt en ekki allir. Réttur opinberra verður skertur verulega ef þetta nær að ganga eftir. Ef stéttir fara í verkföll er það ekki bara launafólki um að kenna. Það koma tveir aðilar að öllum lífskjarasamn-ingum

Guðmundi ferst þetta grjótkast sitt.

Alþingismenn sem eru að misnota aðstöðu sína á að rassskella á Lækjatorgi á föstudögum kl 13:00.

Það er greinilegt á umræðum innan verkalýðshreyfingarinnar að Alþingi er með ríkisstjórnina í broddi fylkingar búið að ganga kirfilega fram af launamönnum, ekki síst þeim hópum sem liggja á lágmarkstöxtum kjarasamninga. Kornið sem fyllti mælinn er…
STUNDIN.IS
 

mbl.is Staða Gylfa aldrei verið veikari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband