Suma hluti má ekki segja, sérstaklega ef sannleikur er sagður

  • Svandísi  Svavars­dótt­ur heil­brigðisráðherra varð það á Alþingi í gær að segja nokkuð sem ekki mátti segja.  En inntakið var eitthvað á þessa leið: 

„Þá sagði Svandís að skýr­ing­in á því að ljós­mæður væru með lægri laun en hjúkr­un­ar­fræðing­ar væri sú að þær væru í stétt­ar­fé­lagi sem væri hluti af BHM á meðan hjúkr­un­ar­fræðing­ar væru í eig­in fé­lagi. Það væri hins veg­ar ekki stjórn­valda að hafa skoðun á því fyr­ir­komu­lagi“.

ljósmæður

Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta er rétt mat hjá ráðherranum, ef það er rétt að ljósmæður lækki í launum við að breytast úr því að vera titluð hjúkrunarfræðingur í það að vera ljósmóðir í launaskrá Landspítalans.

Enn segir Ráðherrann:
„Ég hef verið full­vissuð um það af for­stjóra Land­spít­al­ans að engu ör­yggi sé stefnt í upp­nám á Land­spít­al­an­um enda um­gang­ast ljós­mæður vinnustað sinn af fullri ábyrgð. Þannig er eng­in ástæða til þess, hvorki hjá hátt­virt­um þing­manni né öðrum, að kynda und­ir ugg eða óör­yggi hjá for­eldr­um.“

Ráðherra sagðist hafa beitt sér í mál­inu í gegn­um for­stjóra Land­spít­al­ans til að freista þess að gera það sem hægt væri til þess að bæta starfs­um­hverfi og mögu­lega vaktaum­hverfi ljós­mæðra. Spurningin er því, hvaða hagsmuni er forysta ljósmæðra að vernda?

Nú er ljósmæðrafélagið í fýlu ásamt BHM því það er mikill sannleikur sem felst í orðum ráðherrans.  Vandinn sem ljósmæður og BHM stendur fyrir er auðvitað sá að hjúkrunarfræðingar eru ekki í landsamtökum og vilja ekki sameinast BHM.

Það er auðvitað hægt að sameina þessi félög án þess að gömlu félögin séu í raun lögð niður.  En þetta er auðvitað gamalkunnug togstreita um félagsgjöld.


mbl.is Saka ráðherra um „kaldar kveðjur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er undarlegt að eftir að ljósmæðranámið breyttist úr fagnámi í að verða framhaldsnám eftir hjúkrunarnám hafi stéttarfélagið ekki hugað að breyttum forsendum á réttindum félagsmanna.  Er við "gömlu" stéttina að sakast?

Kolbrún Hilmars, 10.4.2018 kl. 16:35

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Kolbrún, ég að það sé ekki við neinn að sakast. Þetta er greinilega eitthvert tilfinningamál eða jafnvel einhver pólitík ekki veit ég það. En það verður greinilega að nálgast þetta mál með öðrum hætti en gert hefur verið.

Kristbjörn Árnason, 11.4.2018 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband