26.10.2018 | 13:48
Hin gamla krafa er í fullu gildi
- Að laun verkafólks dugi fyrir þörfum þeirra.
Í dag fögnum við kjöri Drífu Snædal í hlutverk forseta ASÍ. Það er von mín að með henni og nýju forystufólki í fjölmennustu verkalýðsfélögunum innan ASÍ blási ferskir vindar réttlætis í íslensku samfélagi er leiði til jafnari lífskjara milli stétta en verið hefur síðustu áratugi.
Einnig má geta þess, að nú hefur verið kosinn nýr formaður hjá BSRB og hjá kennarasamtökunum. Vonandi geta þessir nýju forystumenn gerst þeir brúar-smiðir sem lengi hefur verið beðið eftir til að brúa bilið á milli launafólks á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera.
Fyrir mig er það gleðilegt að Drífa skuli hafa verið kjörin. En fyrir sléttum 30 árum á mínu síðasta ASÍ þingi haldið í Kópavogi flutti ég tillögur að lagabreytingum í þá veru m.a. að jafna hlut karla og kvenna í miðstjórn ASÍ.
Samþykkt var ákveðin málamiðlun um breytingar á lögum ASÍ í þessa veru. En þessi nýju lög voru brotin strax á þessu þingi og konur sögðu ekki eitt einasta orð. Nú sýnist mér að þetta kynja jafnréttisákvæði hafi verið eytt ú lögum ASÍ um miðstjórn þess.
Drífa: Róttækni er hressandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 13:49 | Facebook
Athugasemdir
*
*
Kristbjörn Árnason, 27.10.2018 kl. 01:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.