4.12.2018 | 21:22
Hvers vegna er hálaunafólk að fá orlofs- og desemberuppbætur?
- Það er vonlaust að skilja það, að fólk í hærri launaflokkum hjá ríkinu eins og kjörnir fulltrúar ýmsir hálaunaðir embættismenn eru að njóta desember-uppbótar eða orlofsuppbótar
* - Á sínum tíma var samið um þetta fyrirbæri í kjarasamningum í tengslum við upptöku á staðgreiðsluskatti
* - Þessar uppbætur áttu að mæta sérstökum kostnaðar tímabilum hjá láglaunafólki, en með upptöku á staðgreiðslusköttum snarhækkuðu skattar hjá launafólki
* - Skattprósentan hélst óbreytt en var skatturinn staðgreiddur um leið og laun voru greidd út
* - En áður var skatturinn greiddur ári síðar, þá var mikil verðbólga er lækkaði skattagreiðslurnar mjög verulega
* - Það kæmi sér betur fyrir launafólk í lægri launaflokkum að persónuafsláttur væri hækkaður verulega og væri látinn fylgja lægsta raunverulega launflokki eftir 5 ára starf í starfsgrein
* - Slíkur persónuafsláttur á auðvitað að vera tekjutengdur
* - Á almennum vinnumarkaði halda eingreiðslur sem þessar niðri launatöxtum og eru þær í sérstöku dálæti hjá atvinnurekendum
* - Eðlilegt er auðvitað að fólk sem þiggur laun frá Tryggingastofnun njóti sömu eingreiðslna og launafólk á meðan slíkt er við lýði.
Ótrúlegur munur á desemberuppbót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
fleiri mættu spyrja svona
Anna B Mikaelsdottir (IP-tala skráð) 5.12.2018 kl. 03:24
Auðvitað á að fella niður bæði desemberuppbót og orlofsuppbót. Til að mæta áhrifunum mætti hækka persónuafslátt. Það á að hafa þessa hluti sem einfaldasta.
Þorsteinn Siglaugsson, 5.12.2018 kl. 09:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.