25.5.2019 | 09:45
Hver borgar hverjum?
- Satt að segja hélt ég að það væru neytendur sem greiddu allan kostnað við innflutning á vörum til landsins í hækkuðu vöruverði.
Svo sem vörugjöld, tolla, flutningskostnað, allskonar kostnað innflytjandans og síðast kostnað smásölunnar.
Allir þessir liðir taka á sig sérstakar álagningar innflytjandans auk hrikalegs vaxtakostnaðar sem allstaðar kemur inn í myndina.
Það virðist koma úr hörðustu átt þegar kaupmenn hafna því að allir geti krafist arðs af fjárfestingum sínum.
Kaupmenn hafa af því áhyggjur að opinberir aðilar vilji arð af fjárfestingum sínum í vöruhöfnum. Það minnkar auðvitað álagningarmöguleika þeirra sjálfra
Við mótmælum því að þjónustugjöld, sem eiga að standa undir eðlilegum rekstri og uppbyggingu hafnanna, séu þannig nýtt sem skattstofn af borgaryfirvöldum, segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, í samtali við Morgunblaðið.
Mótmæla hærri arðgreiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 09:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.