26.5.2019 | 13:36
Allt ofbeldi er óþolandi, þá er sama hverjir valda því.
- Yfirvöld í Þýskalandi hafa hvatt gyðinga þar í landi til að forðast að bera kollhúfur á meðal almennings á ákveðnum svæðum í landinu.
Það er reyndar svo að yfirvöld í fjölmörgum Evrópuríkjum hafa bannað, að fólk beri trúarleg tákn eða einkenni opinberlega.
Múslimar hafa mátt búa við ofbeldi frá hendi hægri-öfgamanna og nýnasista í Evrópu um mjög langt árabil sem veldur öllu kristnu fólki áhyggjum.
Í Þýskalandi hefur ofbeldið verið mjög áberandi eftir hinn mikla flóttamannavanda sem hefur kristallast í álfunni síðustu árin.
Það er ljóst að ofbeldisfullir stjórnarhættir í mörgum löndum múslima gagnvart almenningi. Einnig í Ísrael af hálfu stjórnvalda gagnvart Palestínumönnum hefur sín áhrif.
- Síonistar hika ekki við að hrekja burt Palestínumenn af landi sínu og híbýlum með gríðarlegu ofbeldi.
Mitt í miðju ofbeldinu hræra herveldin í kúgunargrautnum sem veldur þeim mikla flóttamanna vanda sem sækir Evrópu heim. Evrópuríkin eru ekki saklaus í þessum efnum.
Síonistar skipta sér stöðugt að viðhorfum friðelskandi fólks víða um heim, hafandi a.m.k. nokkur herveldi að bakhjarli í þeim ofbeldis tilburðum sínum.
Ofbeldið gegn gyðingum skammarlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 13:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.