24.10.2017 | 23:55
Sjálfstæðisflokkur níðist á launafólki með háum sköttum
- Yfirlit um skattastefnu Sjálfstæðisflokksins
* - Davíð Oddsson rústaði þjóðarsáttinni frá 1990. Það er vert að skoða árið 1997 sérstaklega
* - Þá lækkaði þessi forsætisráðherra persónuafsláttinn, þannig að hann dugði ekki lengur láglaunafólki sem starfði eftir lægstu launaflokkum til að greiða tekjuskattinn
* - Þetta er árið sem 10% fjármagntekjuskatturinn var tekinn upp
* - Öll árin síðan hefur hann haldið þessari stefnu sinni sem er að kúga láglaunafólk með ofursköttum.
Yfirlit um skattastefnu Sjálfstæðisflokksins. Davíð rústaði þjóðarsáttinni frá 1990. Það er vert að skoða árið 1997 sérstaklega.
Þá lækkaði þessi forsætisráðherra persónuafsláttinn, þannig að hann dugði ekki lengur launafólki sem starfði samkvæmt lægstu launaflokkum afsláttinn til að greiða tekjuskattinn. Þetta er árið sem 10% fjármagntekjuskatturinn var tekinn upp.
M.ö.o. það var láglaunafólkið sem fjármagnaði skattalækkun fjárfestana og atvinnurekendur í landinu.
- Kjósa
- Sjálfstæðisflokkurinn hefur undanfarin 25 ár ítrekað hækkað skatta á landsmenn til að getað lækkað skatta á ríkustu 10% landsmanna.
![]() |
Hátekjuskattur á meðaltekjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2017 | 19:51
,,Flokkur flokksins" vill greinilega slá skattamet Sjálfstæðisflokksins á launafólki
- Það er vissulega áhugavert að hlusta á frambjóðendur nú í útvarpinu í kvöld frá öllum flokkum tala um nauðsyn þess að lækka vexti og afnema verðtryggingu á lánum
* - Gott og vel, en getur verið að allir þessir frambjóðendur ætli sér að setja lög um hámarksvexti bankanna og að vextir fylgi ekki verðbólgu?
* - Eða er það hugmyndin hjá öllum þessum frambjóðendum að allir bankar á Íslandi verði ríkisbankar?
Þetta er auðvitað allt mjög fallegt og göfugt en greinilega hrein sýndarmennska og lyktar af lýðskrumi sem ekki stendur til að efna.
Því miður þetta gengur ekki upp. En það væri fullkomlega eðlilegt að öllum stæði til boða grunn húsnæðislán á 1, veðrétti með 2% vöxtum á verðtryggingu til langs tíma, t.d. 35 -40 ár. .
Einn helsti fáránleikinn í stefnumáli eins framboðsins kemur frá ,,Flokki fólksins" sem fulltrúar framboðsins hefur tuðað á, undanfarna dag.
Þeir vilja skattleggja allt iðgjald launafólks strax í upphafi þegar atvinnurekandinn skilar iðgjaldi launafólks til viðkomandi lífeyrissjóðs.
Framboðið vill að launafólk greiði skatta af þeim tekjum sínum sem fara sem iðgjöld í lífeyrissjóðina fyrirfram. Það er launafólk sem greiðir allt iðgjaldið í lífeyrissjóðina en ekki eigendur fyrirtækjanna.
Burtséð frá því hvort launafólk fái notið þessara launa sinna eða ekki. En það er bara algengt að launafólk falli frá áður enn það nær 67 ára aldri.Er þýðir þá að fólk greiddi skatta af launum sem það fær aldrei.
M.ö.o. þessir aðilar vilja kollvarpa einu aðal atriði lífeyrissjóða fyrirbærisins sem er að fólk greiði skatta af tekjum sínum þegar það nýtur þeirra, en ekki áratugum fyrirfram. Þetta myndi ekki aðeins kallast ofur launaskattar, heldur beinlínis rán.
Ekki veit ég hverskonar próf hagfræðingurinn er með sem er í framboði fyrir ,,Flokk fólksins"
![]() |
Þetta er algerlega óviðunandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2017 | 18:00
Eg held að hann trúi þessu sjálfur
- Það væri vissulega notalegt að geta trúað hverju orði sem þessi fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir
* - Ég held líka að hann trúi því sjálfur að hann sé að segja alveg satt.
En það er ekki bara vandinn, því þegar hrunið brast á íslenska þjóð rauk forysta Sjálfstæðisflokksins á alla hugsanlega staði til að slökkva alla elda með þeirra hætti.
Eins og venjulega héldu þeir að sér öllum upplýsingum og engir aðrir fengu að sjá á spilin. Þ.e.a.s. fengu engar upplýsingar.
Ekki bara í Glitnis-málinu heldur á öllum vígstöðvun.
Sjálfstæðisflokkurinn í nafni ríkisstjórnar gerði líka samninga við Breta og Hollendinga vegna Icesave- skulda Landsbanka Björgólfs.
Eins og alltaf áður í sögu Íslands fór þessi flokkur með þessi mál eins og þau fjölluðu um að mannsmorð hefði verið framið. Það er öllum ljóst að þarna var verið að hlú að hagsmunum innmúraða flokksmanna Sjálfstæðisflokksins.
Þegar Alþingi hafði blásið á samningsdrög Geirs Haarde sem Baldur Guðlaugsson hafði annast vegna i Icesave og Bjarni Benediktsson talaði fyrir á Alþingi hrökklast stjórn Geirs frá völdum og samingur settur niður í harðlæsta skúffu.
Síðar var það bráðabirðastjórnin sem fékk málið í hendur og gerði miklu betri samning sem hefur til þessa dags farið gríðarlega fyrir brjóstið á hægrinu á Íslandi.
- Vinstrimenn voru nefnilega miklu betri samningamenn.
Af öllum þessum erfiðu málum hefðu ráðmenn átt að læra þá lexíu, að allar svona erfiðar samningaviðræður verða að hafa miklu breiðari skýrskotun en þá að ein ríkisstjórn oftast með nauman meirihluta á Alþingi komi ein að slíkum málum.
Þ.e.a.s. að fulltrúar frá öllum stjórnmálaflokkum á Alþingi leggi til fólk til slíkra samningamála. Eins og gert var í síðari umferðum um Icesave.
En Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki hafa lært neitt af reynslunni, enn heldur þessi flokkur að sér öllum spilum og ekki er hugsað um að fleiri komi að erfiðum málum.
- Almenningur getur ekki treyst slíku stjórnarfari lengur.

![]() |
RÚV dró upp kolranga mynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2017 | 17:44
Ég bið áhugamenn um skattamál afsökunar.
- Bent hefur verið á, að þegar vinstri stjórn undir forystu Jóhönnu og Steigríms vann það þrekvirki að að tvöfalda fjármagntekjuskattinn úr 10% heildarskatti upp í 20% var settur ákveðinn 100 þúsund krónur persónuafsláttur.
* - þannig að sauðsvartir almúgamenn sem fengu undir 100 í fjármagnstekjur þurftu ekki að greiða af slíkum fjármagnstekjum fjármagnstekjuskatt. Þetta var á árinu 2009 miklu meira verðmæti en nú 2017.
* - Ég biðst einlægrar afsökunar á mistökunum
![]() |
Fylgi Samfylkingarinnar dalar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2017 | 12:22
Verjum láglaunafólkið og lækkum skatta þess.
- Vinstrihreyfingin grænt framboð getur verið stolt af þeim manndóm,
að hafa tvöfaldað fjármagnstekjuskattinn
* - Úr 10% heildarskatti fjárfesta og atvinnurekenda á Íslandi í 20%
* - Stórkostlegt réttlætismál gegn ágangi yfirstéttarinnar á Íslandi gegn láglaunafólki.
![]() |
Þriðjungur þingheims nýtt fólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2017 | 11:58
Orð biskups mistúlkuð í pólitískum tilgangi
- Eru ekki allir sammála um það, að þjófnaður verður aldrei í sjálfu sér réttlætanlegt afbrot
* - Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Moggi litli reynir afvegaleiða og mistúlka orð annarra í flokkspólitískum tilgangi.
Enn á sama hátt væri það ekki rétt hjá blaðamanni að leyna afbrotum t.d. ráðamanna sem hann hefur séð í gögnum sem rekið hefur á fjörur hans. Við slíkar aðstæður reynir blaðamaður að sannreyna upplýsingar en spyr ekki hvernig þær eru fengnar.
Þar sem fram koma upplýsingar um stórfellda spillingu ráðamanna. Eða ef slíkar upplýsingar kæmi upp um stófellt barnaníð eða mansal ásamt vændi. Eða gögn um stórfelldar áætlanir um glæpaverk gegn almenningi.
Blaðamaðurinn kærir ekki heimildarmann eða gefur upp nafn hans sem kemur fram með þjóðfélagslegar og mikilvægar upplýsingar um hugsanlega spillingu ráðamanna.
En slíkar upplýsingar eru að sönnu vandmeðfarnar og það virðist vanta heiðarlegan og traustan farveg fyrir slíkar upplýsingar á Íslandi þar sem heimildarmenn njóta eðlilegrar verndar.
Mér finnst biskupinn vera að ræða um tvö mál. Þjófnaður er afbrot og hægt er að misnota stolnar upplýsingar til að kúga fólk.
En hún talar líka um að þjóðin sem slík þurfi að efla siðferðisvitund sína en einkum leiðtogar hennar svo almenningur fái traust á stjórnmálamönnum. Er leiða til framfara fyrir þjóðina.
En ekki má gleyma því að boðskapur smiðssonarins var þrælpólitískur af allt öðrum toga en sú pólitík sem kirkjurnar standa fyrir sem miðstýrðar stofnanir. Verkalýðsbaráttan á sínar rætur til boðskapar Jesú en ekki til slíkra stofnanna.
Mogginn getur ekki með þessum tilraunum þvegið forystu sauð Sjálfstæðisflokksins og aðra forystumenn hans af meintri spillingu.
![]() |
Stuldur á gögnum ekki réttlætanlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2017 | 07:43
Er ekki eðlilegt að gefa Bjarna frí?
- Er ekki kominn tími til
að gefa Bjarna endanlegt frí frá pólitík?
* - Hátterni Bjarna skaðar fylgi Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að hækka skattana svo mikið á Íslandi að formaður þeirra, Bjarni Ben þarf að flýja með peningana sína í skattaskjól.
![]() |
Þrír ráðherrar á útleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2017 | 21:14
Sjálfstæðisflokkurinn, skattaflokkur Íslands
- Yfirlit um skattastefnu Sjálfstæðisflokksins
* - Davíð Oddsson rústaði þjóðarsáttinni frá 1990. Það er vert að skoða árið 1997 sérstaklega
* - Þá lækkaði þessi forsætisráðherra persónuafsláttinn, þannig að hann dugði ekki lengur láglaunafólki sem starfði eftir lægstu launaflokkum til að greiða tekjuskattinn
* - Þetta er árið sem 10% fjármagntekjuskatturinn var tekinn upp
* - Öll árin síðan hefur hann haldið þessari stefnu sinni sem er að kúga láglaunafólk með ofursköttum.
Yfirlit um skattastefnu Sjálfstæðisflokksins. Davíð rústaði þjóðarsáttinni frá 1990. Það er vert að skoða árið 1997 sérstaklega.
Þá lækkaði þessi forsætisráðherra persónuafsláttinn, þannig að hann dugði ekki lengur launafólki sem starfði samkvæmt lægstu launaflokkum afsláttinn til að greiða tekjuskattinn. Þetta er árið sem 10% fjármagntekjuskatturinn var tekinn upp.
M.ö.o. það var láglaunafólkið sem fjármagnaði skattalækkun fjárfestana og atvinnurekendur í landinu.
- Kjósa
- Sjálfstæðisflokkurinn hefur undanfarin 25 ár ítrekað hækkað skatta á landsmenn til að getað lækkað skatta á ríkustu 10% landsmanna.
![]() |
Viðreisn sýnir spilin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2017 | 16:28
Þetta er því miður röng staðhæfing- kolvetni er alltaf vondi kallinn
- Það er staðreynd, að á Íslandi hafði fólk lítinn aðgang að kolvetni áður fyrr og það litla sem var í boði var rándýrt.Þannig að kolefnaríkt fæði var ekki almennt fæði almennings.
Fólk tók orku úr fituríkum mat og líkamar manna á norðurhluta heimsins hefur þróast við slíkar neyslu-venjur.
Það er staðreynd að meirihluti íslendinga þolir ekki neyslu kolefnaríks fæðis. Slíku fæði fylgja flestir lífstílssjúkdóma samtímans. Hvítur sykur er í raun jafn óhollur og eiturlyf.
Það er einnig gríðarlegur sykur í ávöxtum og ávaxtasafar eru afar sykurríkir og þar með óhollir þess vegna. Breytir þá engu þótt í flestum ávöxtum séu mörg hollustuefni. Í einu glasi af appelsínusafa er kanski sykur úr 5 til 6 appelsínum. Það er lítill munur á sykri í þessum söfum og í sykruðum gosdrykkjum.
Allt neðanjarðar grænmeti er stútfullt af kolvetni en það sem vex ofanjarðar bráðhollt og má neyta að vild. Fjöldi fólks hefur breytt um lífstíl og dregur verulega úr kolvetnis neyslu og tekur orku úr kjöti og feitum fiski, notar ríflegt að smjöri og eggjum að vönduðum olíum.
Margir borða sig pakk sadda alla daga og mikið af fitu og eru aldrei svangir. Reyna að halda sig innan við 20gr af kolvetni á dag og léttast um eitt til tvö kíló á mánuði. Einkenni fjölmargra sjúkdóma hverfa sem dögg í sólu. Mjólk er ekkert bönnuð en í mjólkurvörum er 4,5% sykur.
Það breytir litlu hvort brauðið er bakað úr hvítu hveiti eða grófu, kolefnisinni-haldið er hið sama. Hið grófa er bara seinmeldaðra. Þá er bjórinn bara fljótandi brauð en í lagi er með þurrt rauðvín eða hvítvín og hrein vín.
En kolvetnis framleiðendur bæði þeir sem framleiða brauð, kökur kex í öllu formi ásamt auðvitað mjölframleiðendum eru öflugir í áróðrinum og hafa mikil áhrif. Það er auðvitað alveg lágmark að í svona skrifum um hollustufæði sé farið með rétt mál. En ekki bara eitthvað étið upp eftir einhverjum aðila sem þiggur styrki frá kolvetnisframleiðendum.
Hvernig væri að blaðið tæki til skoðunar ritið Fæðubyltingin eftir Andreas Eenfeld. Bókin er seld í íslenskri þýðingu Valdimars Jörgensen. Slík vönduð umfjöllun gæti gert mörgum einstaklingum mikið gagn og gæti komið mörgum úr örorku til þátttöku í atvinnulífinu.
Margar vörur eru seldar sem hollustuvörur en eru það alls ekki ekki. Mjög stór hluti íslendinga þolir ekki margar af þessum hollustuvörum og fitna af þeim og fá sykursýki-2 og of háan blóðþrýsting og jafnvel hjartaáfall. Þessir sjúkdómar og margir aðrir eru fastir fylkifiskar kolvetnis.
![]() |
Kolvetni ekki alltaf vondi karlinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.10.2017 | 15:09
Skattaflokkur Íslands næst verða það sérstakir vegatollar.
- Sjálfstæðisflokkurinn er Skattaflokkur Íslands
* - Það hafa þeir sýnt í verki með rúmlega 50 skattahækkunum undanfarin ár.
* - Í 8 mánuði var það helsta baráttumál Jóns Gunnarssonar ráðherra að setja upp tollskýli allt í kringum Reykjavík
* - Hann vildi láta Reykvíkinga borga vegatolla. Rétt eins og var í herveldi Rómverja til forna um allar trissur. M.ö.o. að skattleggja almenning enn frekar.
* - Bíleigendur greiða þegar þungaskatt tvisvar á ári sem eiga að fara í vegaframkvæmdir.

![]() |
Ekki lengur spurt um Sjálfstæðisflokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)