Hallærislegt bull

  • Útgerðinni hefur tekist að  breyta veiðigjöldunum í

    tekjuskattsgreiðslur.

togaraverkfall

Bara með því að fyrirtækin skuldsetji sig, e.t.v. til að fjárfesta eða greiða arð þá aukast vaxtagreiðslur og  rekstrarkostnaður eykst, við það minnka „tekjutengdu veiðigjöldin“ sem taka þá ekkert mið af aflanum sem sóttur er á miðin á hverjum tíma.

En þessi talsmaður útgerðarinnar er ekkert að flíka því, að hyggnir útgerðarmenn vissu strax á aflaárinu hvað þeir myndu þurfa að greiða í þessi skrýtnu veiðigjöld. Þeim bar því að halda því til haga sem þeir myndu þurfa að greiða. 

Taka þarf upp staðgreiðslu á þessum gjöldum og þau verði miðuð við aflaheimildir hvers árs ótengt afkomu útgerðanna, en a.m.k. tækju mið af raunverulegum afla útgerðanna í tonnum talið.

Það er hið eina heiðarlega í þessum veiðigjaldamálum og gjöldin gætu þá verið aðeins lægri og skilað þjóðinni eðlilegri arð af auðlindinni.  Þá reyndi á rekstrarhæfni útgerðarmannanna.

  • Útgerðin á að finna fyrir veiðigjöldunum, þau eiga að vera byrði. Annars eru þau gagnslaus sem slík.
    *
  • Aflaheimildir á Íslandsmiðum eru mikil verðmæti sem eðlilegt er að þeir sem njóta greiði fyrir. Veiðiheimildir eru mjög eftirsóknarverð.
    *
  • Ef útgerðin greiðir ekki fullt og eðlilegt veiðigjald má auðveldlega rökstyðja það, að greinin njóti verulegra ríkisstyrkja. 

mbl.is Veiðigjöldin eru orðin töluverð byrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðislegur réttur er alltaf mikilvægur en ákaflega vandmeðfarinn

  • Réttur almennings til að boða til mótmælafunda er mikilvægur

    lýðræðisréttur en að sama skapi ákaflega vandmeðfarinn.

Því þegar slíkir fundir eru haldnir fylgja gjarnan óvandaðir einstaklingar sem reyna að notfæra sér þá sem farveg fyrir eigin athyglissýki eða skemmdafýsn. Jafnvel farveg fyrir sitt persónulega hatur á einhverjum.

Ég er einn af þeim sem sótti flesta Austurvallafundina á sínum tíma sem voru ákaflega vel heppnaðir og lögreglan virtist skilja sitt eðlilega hlutverk á þessum fjöldafundum. Einnig einn af þeim fjölmörgu sem fór í vörn fyrir lögregluliðanna við Alþingishúsið.

En varð fyrir miklum vonbrigðum með vinnubrögð yfirlögreglumannsins í skýrslu sinni, jafnvel óbreyttir liðsmenn lögreglu voru ekki hrifnir af vinnubrögðum hans.

Það varð einnig ljótur leikur hjá sumum sem þarna mættu og voru virkir á þessum fundum en notfærðu sér athyglina til að ota sér áfram í pólitík. Þarna tókst þeim það óþverraverk að reka pólitískan fleyg í raðir vinstri manna á þingi.

Það mjóaði oft munu að vargarnir eyðilögðu þennan rétt almennings með skrílslátum. Ekki voru ýmsir þekktir og óþekktir barónar til fyrirmyndar þegar þeir þustu út af bjórkránum seint á síðkvöldum.

Þeir settu í raun blett á þessar heiðarlegu mótmælaaðgerðir allsgáðra kjósenda með algjörlega óhugsuðum ólátum. Þessir kónar hafa aldrei beðist afsökunar á ómennsku sinni. 

Það er fullkomlega eðlilegt að þeir sem hafa verið stjórnendur þjóðarinnar og hafa með hættulegum stjórnarháttum sínum komið almenningi og þjóðinni í voða. Finni fyrir slíkum viðbrögðum þjóðarinnar.

En vettvangur slíkra aðgerða verða að vera við starfsstöðvar þessa fólks en ekki við heimili þeirra þar sem slíkar aðgerðir bitna þá á saklausi fólki og jafnvel á börnum. Skemmdarverk eru bara glæpsamleg ómennska hvort sem það er á eigum fólks eða á fólki.

Ég er ákaflega hugsi yfir því sem lögmaðurinn sagði í sjónvarpi. Hann fór yfir strikið að mínu mati.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Ósannað hverjir voru að verki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Telja ekki fjárfestingu í heilbrigðis- og menntamálum arðbæra

  • Dæmigerð nálgun samtaka atvinnurekenda á Íslandi sem vilja halda samneyslunni í lágmarki og að ýmis grunnþjónusta færist í einkarekstur.

Nú þegar ríkissjóður og almenningur er búinn að moka þúsundum milljarða til að bjarga einkarekstrinum undanfarin ár eftir hrunið.

Vilja þeir að almenningur klári að greiða upp skuldir ríkissjóðs sem til urðu vegna fjölda gjaldþrota í illa reknum einkafyrirtækjum.

Kannski svo borð verði fyrir báru næst þegar einkareksturinn tekur kollsteypu.

Það sérstaklega eftirtektarvert að heyra frá talsmanni þeirra að hann telur að öll innviða uppbygging verði að vera arðbær.

Hann telur ekki að uppbygging heilbrigðiskerfisins og eða skólakerfisins séu arðbærar.

Hann segir: „Það þarf að fara í arðbæra innviðafjárfestingu en við megum ekki slaka á þeirri kröfu að búa í haginn til mögru áranna. Og það gerum við með því að halda áfram að lækka skuldir ríkissjóðs.“

  • Eðlilegast væri auðvitað að fyrirtækin í landinu tækju þátt í þeirri uppbyggingu, því hrunið í innviðum samfélagsgerðarinnar eru að mestu vegna óráðsíu einka fyrirtækjanna fyrir hrun og vegna krafna þeirra um niðurrif í samneyslunni.
    *
  • Allir eru sammála um að greiða þurfi niður erlendar skuldir þjóðarinnar þó ekki væri nema vegna ofurhárra vaxtagreiðslna þeirra vegna. En fyrirtækin og eigendur þeirra eru sjálfir ekki tilbúnir að taka þátt í því verkefni.
Forsætisráðherra hafnar fullyrðingu SA um að loforðin í stjórnarsáttmálanum auki útgjöld ríkissjóðs um 90 milljarða. SA segir að leggja verði mesta áherslu á að greiða niður skuldir ríkissjóðs.
RUV.IS
 

mbl.is Útgjaldaaukning ekki öll í einu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugatitringur gerir vart við sig, vegna hugmynda um sykurskatt

  • Það er eðlilegt að reyna að minnka neyslu sykurs og annarra kolvetna með öllum tiltækum ráðum
    *
  • T.d. með því að skattleggja allar vörur sem innihalda sykur umfram 5%. Einnig kolvetnisríkar vörutegundir.

Áratugum saman hafa framleiðendur sykurs og ýmiskonar varnings sem inniheldur hátt hlutfall sykurs ráðið mestu í umræðunni um skaðsemi sykurs.Þeim hefur tekist að telja fólki í trú um að sykur sé ekki eins hættulegur og hann er í raun og veru.

Þessum aðilum sem einnig eru iðulegast framleiðendur annarra kolvetnisafurða eins og hveitis ásamt mörgum tegundum af kornvöru jafnvel tekist að láta neytendur trúa því að þessar vörutegundir séu hollar fólki. Í raun og veru er allt kolvetni sykur í endanlegri mynd í mannslíkamanum.

Það er staðreynd að þessi efni eru að skaða mannfólkið einkum í vesturheimi með þeim fylgisjúkdómum sem þessum efnum fylgja sérstaklega vegna neyslu sykurs og annarra kolvetnisafurða í hverskyns íblöndun í matvæli vesturlandabúa.

Vissulega er náttúrulegur sykur í óunninni mjólk (4,5%) en einnig mörg mjög mikilvæg prótein og önnur nauðsynleg efni. En súkkulaði eða gosdrykkir verða ekki að hollustuvöru þótt í sykurvörurnar sé blandað vítamínum.

Jafnvel hreinir ávaxtasafar innihalda mjög mikinn og mjög óhollan sykur og eru þeir alls ekki þeir hollustudrykkir sem framleiðendur þeirra fullyrða, þótt í þeim séu slatti að vítamínum. Þessi sykur er í engu hættuminni en hvíti sykurinn.

Síðan er saklausri fitunni kennt um allan skaðann. Það er manninum miklu eðlislægara að fá orkuna frá kjöti og fiski ásamt þeirri fitu sem fylgja þessum afurðum en frá kolvetnisríkum mjölvörum og rótarávöxtum.

Viðskiptablaðið tekur auðvitað þátt áróðri sykurframleiðenda og var drottningarviðtal við Finn Geirsson 26. desember 2010 þar sem nánast er reynt að sannfæra landsmenn um hollustu sykurs.

„ritstjorn@vb.is
Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Siríus, segir umræðu um óhollustu sælgætis oft einhliða og beinar aðgerðir til þess að stýra neyslu fólks ekki skynsamlegar. Fólk sé ágætlega upplýst og ætti að fá að ráða því hvað það borðar, svo lengi sem varan er ekki algjörlega bönnuð“.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Iðunn aðstoðar Svandísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það fylgir alltaf óstöðugleiki hægri stjórn og valdbeiting

  • Það er alveg ljóst af fyrri reynslu að fjögurra flokka stjórn og jafnvel fimm flokka stjórn er miklu sterkari stjórn, en stjórn með þremur flokkum.

Fjölflokka stjórnir hafa miklu breiðari skýrskotum til almennings og almennari stuðning.

Þá hefur það gefið slæma raun einkum þegar minni flokkur starfar með Sjálfstæðisflokki. Það virðist alltaf vera einhver valdbeiting í gangi.

Þar sem tilhneigin í þriggja flokka stjórn er sú hjá stærsta flokknum reynir jafnan er jafnan að mynda meirihluta um ýmis álitamál mál með öðrum flokknum og hinn er þá endalaust beittur ofríki.

Þetta var ævinlega reynslan af samstarfi vinstri flokkanna með Framsókn á fyrri tíð. Ég geri ráð fyrir að reynslan af samstarfi með Sjálfstæðisflokknum sé svipuð

Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur samkvæmt nýrri könnun og þriggja flokka stjórn verður ekki mynduð án hans. Magnús Árni Magnússon stjórnmálafræðingur sagði í Morgunútvarpinu á Rás2 í morgun að fjöldi flokka eigi ekki eftir að flækjast fyrir í…
RUV.IS
 

mbl.is Ekki marktækur munur á D og V
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opinber talnagögn sýna að hægri flokkar flytja fé frá láglaunafólki til hálaunafólks.

  • Hér kemur færsla frá Indriða Þorlákssyni sem sýnir m.a. í skýringamynd hvernig Sjálfstæðisflokkur og  Framsókn hefur með óréttlátu skattakerfi fært kerfisbundið fé frá láglaunafólki til hálaunafólks. 

skattbirði hópa

Eða til þessa 10% af skattgreiðendum sem hafa hæstu launin. Reyndar er það einnig hópurinn sem kemur sínum launum fyrir í eignarhaldsfélögum og greiða því um 20% í heildarskatt af nettótekjum sínum en láglaunafólk 36,5% af sínum launum.

Skattapólitík 2012 til 2016 Myndin sýnir að skattahækkair samtals í hverrri tekjutíund upp að þeirri sjöundu er á milli 1 og 2 milljarðar króna.

Níunda og neðri helft hinnar tíundu fengu lækkun um ca. einn milljarð hvor í sinn hlut en efst 5 % kasseruðu 9,5 milljörðunum á breytingunum.

Heildargróði og tap er svo að sjá í eftirfarandi mynd sem sýnir að hátt í 12 milljarðar hafa með skattabreytingum verið færðir frá hinum tekjulægri hópum til hinna tekjuhærri.


http://indridih.com/…/27/breytingar-a-skottum-2012-til-2016/
Mynd frá Indriði Þorláksson.

Skattapólitík 2012 til 2016 Myndin sýnir að skattahækkair samtals í hverrri tekjutíund upp að þeirri sjöundu er á milli 1 og 2 milljarðar króna. Níunda og neðri helft hinnar tíundu fengu lækkun um …
INDRIDIH.COM
 

mbl.is 41% kýs Miðflokkinn í stað Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættum að styrkja niðurrifsstarfsemi gamla valdaflokksins

  • Hvert einasta atkvæði greitt þeim framboðum sem samkvæmt öllum skoðanakönnunum ná ekki inn manni styður óbreytta stjórn Sjálfstæðisflokksins.

ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar

Í stað þess að vinna skoðunum sínum fylgi innan vinstri flokkanna sem eru yfirleitt með sömu mál á sínum stefnuskrám og sér framboðin hafa gert að sínum.

Þá kjósa margir að láta undan sinni eigin hégómagirnd til að baða sig eitt andartak í sviðsljósum fjölmiðlanna, í stað þess að standa með sínu fólki í hópum sem greinilega ná árangri.

Að kjósa vonlaus framboð er að eyðileggja atkvæði sitt í þágu gamla valdaflokksins. Þá er fyrirfram ljóst að flokksbrotin úr gömlu valdaflokknunum rétt eins og Viðreisn eða Miðflokkur munu sækjast eftir samstarfi með Sjálfstæðisflokki.

Flokkur fólksins er eins hver önnur popp-hreyfing er hefur eyðileggingar áhrif á stöðu alþýðunnar í landinu gegn valda elítunni. Þar eru í gangi sterk óholl þjóðernis viðhorf.


mbl.is Virkjum frumkvæðið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þurfa íslendingar heiðarlega stjórnmálamenn til forystu

  • Ekki fólk sem er í eigin hagsmunapoti meira og minna, er hafa auk þess verið fundnir að verulega vafasömu hátterni eða eru aðeins í hagsmunagæslu fyrir ákveðna atvinnuvegi
    *
  • Heldur fólk sem þorir setja fram raunverulegar áætlanir um hvernig það ætlar að ná árangri fyrir allan almenning og hefur framtíðarsýn sem mótuð er af réttlætishugsjón og skynsemi

Katrín Jakopsdóttir

Nú árið 2017 eru viðhorf almennings til atvinnu uppbyggingar aðeins breytt frá sem var fyrir rúmum 100 árum í árdaga samvinnu- og verkalýðshreyfingarinnar þegar atvinnurekendur héldu að sér höndum í uppbyggingu atvinnulífs.

Þá var það samtakamáttur almennings sem varð sá drifkraftur sem einn dugði til að skapa störf og eðlilegt lífviðurværi fyrir almenning. Í kjölfarið kom stofnun stjórnmálahreyfingar almennings.

Ávöxtur þessarar baráttu eru lýðræðisleg samfélög með góðu heilbrigðiskerfi, góðu skólakerfi með jafnrétti allra til náms ásamt góðum vel skipulögðum samfélögum þar sem félagsleg viðhorf eru ríkjandi.

Almenningur hefur fyrir löngu áttað sig á þeirri staðreynd að samtakamáttur og einkaframtak þurfa á hvort öðru að halda til heilla fyrir lýðræðislega og félagslega samfélagsgerð. Þ.e.a.s. blandað hagkerfi í þágu allra samfélagsþegna.

Á sama hátt að engum dettur nú í hug að ríki eða sveitarfélög séu að vasast í hverskonar fyrirtækjarekstri. Einnig að ekki er hægt að treysta einkaframtakinu fyrir ýmissi þjónustustarfsemi sem verður að vera í opinberri umsjón.

Síðustu árin hefur almenningur gert auknar kröfur til samfélagsins sem allar hafa mikinn kostnað í för með sér.

Dæmi um þetta eru eftirfarandi:

  • Lýðfræðileg þróun felur í sér hlutfallslega fjölgun aldraðra. Á síðustu áratugum ævinnar þurfa menn í meira mæli þjónustu heilbrigðiskerfisins og meira reynir á framfærslukerfin
    *
  • Menntun og heilbrigðisþjónusta, er vinnuaflsfrek starfsemi sem krefst sérhæfingar og gerir þessi störf og þjónustuna kostnaðarsama
    *
  • Menntað og sérhæft starfsfólki hjá hinu opinbera og á almennum markaði er lykill að framförum í framleiðslu og þjónustu. Þörf fyrir öflugar mennta- og rannsóknastofnanir vex
    *
  • Misskipting tekna og eigna hefur farið vaxandi en hagur og afkoma millistéttarinnar hefur staðnað og sífellt verður erfiðara fyrir ungt fólk að koma undir sig fótum. Beita þarf sköttum til að jafna tekjur og eignir og kosta meiri gjaldfrjálsa þjónustu fyrir þessa hópa eða styrkja þá svo sem í húsnæðismálum

Enginn ábyrgur stjórnmálaflokkur á Íslandi kemst hjá því að takast á við auknar kröfur um þjóðfélags umbætur.

Enginn ábyrgur stjórnmálaflokkur getur verið þekktur fyrir töfrabrögð og blekkingar að hætti loddara

það er mikilvægt að allir þegnar Íslands taki þátt í samfélagsuppbyggingunni og einnig þeir sem með einhverjum hætti fénýta erfðarauðævi þjóðarinnar.

Þjóðin í heild sinni verður að njóta arðs af auðlindum þjóðarinnar með réttlátum hætti.

Því leggur ábyrgur stjórnmálaflokkur fram ábyrga ríkisfjármálastefnu til næstu ára. Með skilgreindum markmiðum á flestum sviðum og áætlað hvað kosta muni að ná þeim. Jafnframt er gerð grein fyrir því hvernig standa má undir þeim aukna kostnaði.

Hugmyndir VG um auknar tekjur ríkissjóðs eru af ýmsum toga en allar þess efnis að þær lenda ekki á almenningi.

Auknar skatttekjur myndu koma frá þeim fáu prósentum þjóðarinnar sem hafa margfaldar meðaltekjur og/eða eignir langt yfir þeim mörkum sem öðrum er mögulegt.

En VG veit að skapa verður víðtæka sátt um hvernig gjöldum er dreift á skattgreiðendur.

Auknar tekjur kæmu einnig frá þeim sem með ýmsum hætti hafa komið sér hjá því að greiða eðlilega skatta til samfélagsins og auknar tekjur kæmi líka frá þeim sem hafa einkarétt til að nýta sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar án þess að greiða eiganda þeirra, þjóðinni, eðlilegt gjald fyrir.

Dæmi um þær leiðir til tekjuöflunar sem nefndar hafa verið:

  • Viðbótarskattur á mjög háar fjármagnstekjur. Um 60% fjármagnstekna falla til um 5% tekjuhæstu framteljenda og uxu um 53% frá 2012 til 2015 á meðan launatekjur hækkuðu um innan við 20%
    *
  • Auðlegðarskattur á eignir langt yfir verðmæti stórra einbýlishúsa. T.d. 200 m.kr. hjá hjónum. Greiðendur yrðu aðeins fá þau fáu prósent landsmanna sem eiga nú stóran meirihluta eigna í landinu
    *
  • Viðbótartekjuskatt á laun yfir 25 m.kr. á árim sem næði einungis ná til fárra prósenta framteljenda sem hafa ofurlaun
    *
  • Auk þess að afla verulegra tekna eru þessar breytingar til þess að gæta jafnræðis og gera skattlagningu sanngjarnari en verið hefur
    *
  • Tekjur með hertri löggjöf og auknu eftirliti með skattsvikum og skattasniðgöngu. Aðgerðir gegn aflandsvæðingu hafa verið máttlitlar. Herða þarf lagareglur með það fyrir augum að aflétt verði leynd af starfrækslu aflandsfélaga og skattahagræði með þeim afnumið
  • Milliverðlagningu í innflutningi og útflutningi er stórt vandamál. Nýleg skýrsla staðfestir gamlan grun um að haft sé fé af neytendum og ríkissjóði með “hækkun” í hafi og eins fer stór hluti útflutning fram í viðskiptum tengdra aðila
  • Lagabreytingar þarf til að koma í veg fyrir að eignir og tekjur séu faldar í eignarhaldsfélögum og þannig komist hjá eðlilegri skattlagningu
    *
  • Hækkun veiðigjalda og eftir atvikum uppboð aflaheimilda. Auðlindaarður í sjávarútvegi, þ.e. hagnaður umfram eðlilega ávöxtun fjármagns, er mjög mikill og rennur nú ekki til þjóðarinnar
    *
  • Skattur á raforku sem seld er undir markaðsverði. Enginn arður rennur nú til þjóðarinnar af þeim orkuauðlindum sem nýttar eru til stóriðju.

Ríkisfjármála- og skattastefna VG er góð. Hún er skynsamleg leið til að koma til móts við eðlilegar kröfur um úrbætur.

Hún felur í sér hófleg skref til uppbyggingar á þeim velferðar-kerfum sem verið hafa að molna.

Hún er raunsæ með tillit til getu þjóðarbúsins til breytinga. Hún er ábyrg og stefnir fjárhag ríkisins ekki í hættu.

Hún er sanngjörn og dreifir kostnaði af siðuðu samfélagi með hliðsjón af greiðslugetu borgaranna. 

Mynd frá Kristbjörn Árnason.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Stefnir í viðræður til vinstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkur boðar skattahækkun hjá láglaunafólki

Ætlar að lækka persónuafslátt, því hækka skattar láglaunafólks.

Ætlar að lækka skatta á hálaunafólki eins og hér sést

  • Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir nú grimmt að hann ætli að lækka tekjuskatt í 35% „fyrir okkur öll“
  • *
  • Meginþorri launafólks borgar 36,94% skatt, það er að segja þau okkar sem eru með innan við 835 þúsund krónur á mánuði
    *
  • Þeir sem eru með hærri tekjur en það borga svo 46,24% af öllu umfram það (en bara lægri skattinn af tekjum undir 835 þúsundum)
    *
  • Þannig að það að lækka „okkur öll“ niður í 35% væri enn ein aðgerðin sem myndi gagnast hátekjuhópum allra best og mest þeim sem hafa hæst launin
    *
  • Þetta er líka aðgerð sem myndi gagnast körlum meira en konum, en þeir eru talvert líklegri til að falla í hálaunahópinn. Þessi aðgerð er ekki „fyrir okkur öll“, hún er, eins og venjulega „fyrir hina fáu“
    *
  • Þessi auglýsing á greinilega segja það að til standi að lækka skatta á hálaunafólki
    *
  • Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið algjörlega á móti því að nota skattkerfið til lífskjarajöfnunar

,,Tekju­skatt­ur ein­stak­linga skilaði 160,6 millj­örðum króna í fyrra. Það er um 70% meira en árið 2009, þegar skatt­ur­inn skilaði 94,7 millj­örðum. Töl­urn­ar eru á verðlagi hvors árs.

Þetta kem­ur fram í grein­ingu Rík­is­skatt­stjóra fyr­ir Morg­un­blaðið. Þar kem­ur og fram að lægsta þrepið í tekju­skatt­in­um skilaði 150,3 millj­örðum í fyrra. Til sam­an­b­urðar skilaði milliþrepið 5,4 millj­örðum og efsta þrepið 4,9 millj­örðum. Hlut­fall þess­ara tveggja þrepa var 3,3 og 3% af sam­an­lögðum tekju­skatti í fyrra".

Það er staðreynd að stór hluti af efsta þreps fólki greiðir aðalega fjármagnstekjuskatt og ekkert útsvar. Alli hópar njóta persónuafsláttar.

 

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinir skattlausu urðu allt í einu að greiða örlitla örskatta.

  • Greinilegt er að mjög alvarleg örvænting hefur gripið um sig hjá viðskiptaráði og í Valhöll
    *
  • Hér vælir viðskiptaráðið eina ferðina enn. En eins og flestir muna áttu félagar í þessu blessaða Viðskiptaráði stóran hlut í því hruni sem varð á Íslandi árið 2008.
    *
  • Viðskiptaráðið hefur verið sterkur áhrifavaldur í allri stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins síðustu 25 árin sem hafa orðið til þess að skattar á launafólki hafa hækkað verulega
    *
  • En meginstefna hægri stjórna Sjálfstæðisflokksins í skattamálum var að nær afnema skatta af fjárfestum og þar með atvinnurekendum
    *
  • Það sést mjög skýrt hversu litla skatta áætlað var í frumvarpi að fjárlögum fyrir árið 2018 hvað fjárfestum var ætlað að greiða litla skatta eða tæplega 30 milljarða
    *
  • Þeir skattar sem viðskiptaráðið tíundar hér, eru ýmsir smáskattar sem snerta aðeins fjárfesta og atvinnurekendur en ekki launafólk.

Hér má sjá í fræðilegri úttekt hvernig ofurskattar hafa verið lagðir á launafólk á Íslandi,

þegar Sjálfstæðisflokkur fyllir ráðuneytin og er fjarstýrt af Viðskiptaráði.

 
Í nánd við kosninga koma fram loforð misjöfn að efni og misvel skilgreind.
 
Sum einföld, önnur stefnumarkandi en einnig yfirlýsingar sem lítt gerlegt er að ráða í hvað þýða.
 
Af þeim toga eru loforð …
 
INDRIDIH.COM
 

mbl.is Skattar voru hækkaðir alls 112 sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband