Aumkunarverð óskhyggja Össurar

  • Þetta er bara óskhyggja hjá Össurri blessuðum kallinum sem er dottinn út af þingi
    *
  • þessum sem dró Samfylkinguna til hægri og eyðilagði flokkinn.

Össur

Sá er munurinn á Samfylkingunni og VG er að Samfylking getur ekki tekið þátt í ríkisstjórn án VG enda gefur Sam það í skyn að það muni hún gera eftir kosningar og því eykst þeirra fylgi.

VG hefur getu til mynda ríkisstjórn öðrum flokkum fái hún það fylgi sem hreyfingunni er spáð og þarf lítið að gefa eftir af stefnumálum sínum við slíkar aðstæður. 

Þá er það alveg öruggt að VG með sterkt fylgi mun ekki hafa frumkvæði að því að sótt verði um aðild að ESB umfram það sem þjóðin er þegar inn vinkluð inn í ríkja og tollabandalagið.

Grasrót VG leyfir það ekki frekar enn að VG fari í stjórn með Sjálfstæðisflokki. 

En eitt er þó í stefnu VG sem er, að ef til umræðu kæmi að sækja um aðild enn að nýju verður þjóðin spurð um hvort hún vill það.

Það er hin lýðræðislega leið lýðræðislegra flokka. Leið Sjálfstæðisflokks og fleiri flokka forsjárhyggju er aðferð gömlu valda- og hagsmunagæslu flokkanna.  


mbl.is Össur segir kjósendur VG vilja í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verð á fiski aldrei hærra

  • Þetta er auðvitað ósmekklegur hræðsluáróður og barlómur hjá útgerðinni um erfiðleika.

Það er ekki ósennilegt að mörg minni fyrirtækin standi sig bara betur en þessi stóru fyrirtæki. Þ.e.a.s. ef þeir sem reka þessi fyrirtæki hafa staðið sig.

Það er auðvitað ljóst að stóru fyrirtækin virðast eiga auðveldara með að skuldsetja sig með nýjum fjárfestingum sem verður til þess að þau greiða bæði litla skatta og enn minni veiðigjöld.

En það gefur auðvitað ekki rétta mynd af stöðu útvegsins í dag að miða reksturinn við árið 2015 sem var einstakt góðæri í sögulegu ljósi. Það gátu allir séð að sú staða gæti aldrei staðið lengi og það á kostnað almennings.

Haldi tekjur sjávarútvegsfyrirtækja áfram að lækka hætta minni fyrirtæki störfum. Þetta er mat yfirmanns sjávarútvegshópsins hjá Deloitte. Tekjur í sjávarútvegi drógust saman um rúmlega 25 milljarða króna, eða 9%, í fyrra. Þetta kemur fram í niðurstöðum…
RUV.IS
 

mbl.is Verð íslenskra afurða í sögulegu hámarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stór fyrirtækin standa að baki sínum flokki.

  • Þessi kvöldin keyrir Sjálfstæðisflokkurinn eða gamli valdaflokkurinn áfram rándýrar sjónvarpsauglýsingar kvöld eftir kvöld.

Nokkuð sem önnur framboð ráða tæpast við að gera. En vissulega hlýtur það að vera rannsóknarefni hvort þessi auglýsinga herferð gagnist flokknum til að auka fylgið sitt með gömlum loforðum sem þessi flokkur hefur marg svikið.

Einnig hlýtur það að vera umhugsunarefni um hver það er sem borgar þessar auglýsingar. Það er a.m.k. ljóst að peningarnir koma frá fjölmörgum fyrirtækjum landsins er þýðir þá, að starfsfólk þessara fyrirtækja borga auglýsingarnar. Það gera ekki eigendur fyrirtækjanna almennt.

Þá er það einnig spurning hvort fyrirtækin komist upp með það að greiða þessar auglýsingar eins og þau væru að auglýsa sig sjálf sérstaklega og færðist þá kostnaðurinn þannig inn í rekstrarreikning fyrirtækjanna.

Kostnaðurinn kæmi þá til viðbótar við styrki fyrirtækjanna við flokkinn. Það er auðvitað alltaf sárt þegar flokkar missa fylgi.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Mikið fylgistap Flokks fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar skeit sú beljan sem ekkert ....

  • Það er stofnaður stjórnmálaflokkur með söng og hljóðfæraslætti sem ætlar sér stóra hluti
    *  
  • Ekki minna en að bjarga samfélaginu á örskotsstund
    *  
  • Nú tveim vikum síðar setjast stofnfélagar niður til að finna sér álitlega stefnu fyrir flokkinn sem selur.

kýr 1

Þetta lítur svo sannarlega út fyrir að aðal atriði með stofnun flokksins hafi ekki verið bera fram einhver pólitísk viðhorf sem myndi skipta öllu máli fyrir land og þjóð. 

Nei, löngu seinna fer þetta ágæta fólk að spyrja sig að því sameiginlega fyrir hvaða málstað flokkurinn ætlar sér að berjast og hvaða lausnir hafur hann fram að færa.


mbl.is Ekki tilbúinn fyrir upptökur RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir húsgagnasmiðir eru eftirsóknarverðir

  • Það er ljóst að nám í húsgagnasmíði er góður grunnur fyrir fjölbreytta framtíð á vinnumarkaði. 

Fyrir utan að vera mjög eftirsóttur vinnukraftur þar sem nákvæmni, færni,vandvirkni er krafist og þess að hafa listræn viðhorf sýn til hverskyns hluta. 

húsgagnasmiður 1

Þessi grein er með elstu listgreinum mannsins sem gerir miklar kröfur til handverksmannsins.

Húsgagnasmiðir eru ekki bara listasmiðir, heldur eru margir þeirra miklir listamenn. 

Margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar frá fyrri tíð lærðu fyrst húsgagnasmíði áður enn þeir fóru í frekara listnám á öðrum sviðum.

Þessi smiður á myndinni starfar við fjöldaframleiðslu en miklu algengara er að þeir starfi við sérsmíði ýmiskonar þar sem gerðar kröfur um þekkingu og færni.

Sókrates er skilgreindi fyrst hugtakið list og þá fyrir sinn tíma sagði forðum, að þeir aðilar sem við í nútímanum köllum húsgagnasmiði á Íslandi væru göfugustu listamennirnir.

Elstu heimildir um störf fagmenntaðra húsgagnasmiða eru nær 6000 ára gamlar og mjög gömul húsgögn hafa varveist í Egiptalandi hinu forna. Þar hafa ekki geisað styrjaldir sem víðast annarstaðar og þurrkar þar í landi fara vel með húsgögn í fornum píramítum.

Þekktasti í þeirra röðum var Jósep fósturfaðir Jesú. Iðnneminn Jesú lauk aldrei námi enda var það og tekur heila mannsævi að læra fagið svo skammlaust væri. E.t.v. var neminn með athyglisbrest, hvað veit ég.


mbl.is „Ekki pláss fyrir mig á Íslandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir greiða skattana á Íslandi?

  • Það hefur legið ljóst fyrir að það er launafólk sem greiðir nánast alla skatta á Íslandi bæði beint og óbeint
  • Hér eru útsvar og fasteignagjöld ekki inni í myndinni sem er eins og allir vita skattar launafólks og fasteignagjöldin sem eru þjónustugjöld.

launafólk

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2018  er áætlað að tekjur ríkissjóðs verði ca 833milljarðar króna.

Obbann af  þessum sköttum greiðir launafólk fyrir utan sértekjur ríkissjóðs er kallast aðrar tekjur sem áætlað að verði tæpir 82 milljarðar.

Atvinnurekendur eða fjárfestar  þ.e.a.s. þeir sem eiga atvinnufyrirtækin í landinu og eru oft ekki starfsmenn þeirra greiða aðeins kr. 28,5 í fjármagnstekjuskatt samkvæmt áætlun.

Launafólk greiðir síðan restina að mestu er skiptist þannig í grófum dráttum:

tekjuskattur ca. 180 milljarðar,tekjuskattur lögaðila ca.70,5 milljarðar,sérstakur fjársýsluskattur ca.2,5 milljarðar, skattar á vöru og þjónustu um 337 milljarðar, mínus áfengis- og tóbaksgjald sem er sameiginlegt.

Undantekningalaust greiða fyrirtækin eigin fjárfestingar í nútímanum og þeir sem skapa tekjur fyrirtækjanna eru þeir sem starfa í þeim. Þessar tekjur greiða allan áfallandi kostnað vegna starfsemi fyrirtækjanna og þar með beinan launakostnað og alla skattagreiðslur fyrirtækjanna.

Hluti starfsmanna eru iðulega einhverjir eigendur fyrirtækjanna eða yfirvofandi og ósýnilegir eigendur þeirra.


mbl.is Vilja lágmarkslaun skattfrjáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ekkert að tala um Icesave?

 


mbl.is „Eigum að senda út skýr skilaboð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn er hinn eini og sanni skattaflokkur Íslands

  • Skattkerfið samanstendur af beinum sköttum, ýmsum persónuafsláttum og stuðningi t.d. við barnafjölskyldur eins og með barnabótum og vaxtabótum.

,,Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, sagði í ávarpi við setn­ingu þings Starfs­greina­sam­bands­ins, að stjórn­völd hefðu núllað út hækk­un lægstu launa með læskattar á láglaunafólkikk­un bóta. Vísaði hann þar til skýrslu hag­deild­ar ASÍ um þróun skatta og fjöl­skyldu­bóta".

Þetta hefur orðið til þess að skattar hafa hlutfallslega hækkað mest á láglaunafólki.

Á sama tíma hafa skattar lækkað á hátekjufólki í tveim hæstu tíundunum. 

Þetta er þróun sem hefur átt sér á síðustu 20 árum eða frá valdatíma Davíðs Oddssonar og Framsóknarflokksins, þegar fjármagntekjuskatturinn var tekinn upp. 

  • Á Íslandi greiða allir skatta

Breytir þá engu hvort einstaklingur dragur fram lífið á svo nefndum lágmarkslaunum eða á ofur háum launum.

Á tímabili í sögunni dugði persónuafláttur til að greiða skatta af lágmarkslaunum. Allar götur frá 1997 hefur persónuafsláttur verið það lítill að hann hefur ekki dugað til þess. Þetta má sjá á línuritinu hér fyrir neðan.

skattleysimörk

Eftir hrunið tók vinstri stjórnin upp þrepaskipta skatta sem er í vissum skilningi ein mynd af persónuafslætti.

Þetta bætti mjög stöðu láglaunafólks sem ekki gat drýgt tekjur sínar með aukinni vinnu. Það var í raun fjögurra þrepa skattkerfi hjá fólki sem greiddi útsvar og tekjuskatt.

Þeir einu sem gátu notið persónuafsláttar að fullu voru þeir sem höfðu það miklar tekjur að þeir náðu hæstu skattaprósentu.

Um leið og Sjálfstæðisflokkurinn kom aftur í stjórnarráðið dró hann strax úr þessum skattaþrepum til skaða fyrir stöðu láglaunafólks.

En það er einnig iðulega það fólk sem er með hluta af tekjum sínum í formi fjármagntekna og greiddu af þeim tekjum að hámarki 20% skatta af nettótekjum á meðan almenningur greiddi almennt skatta af brúttótekjum.

Af þessu má sjá augljóslega, ef verið er að tekjutengja ýmiskonar félagslegar tekjur eins og eftirlaun, barnabætur og vaxtabætur. Er einnig eðlilegt að tekjutengja persónuafslætti.

Fyrir utan þá eðlilegu kröfu að í samfélaginu ríkti skattajafnrétti.

 

 


mbl.is Segir hækkanirnar núllaðar út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta ríkisstjórn á Íslandi til þessa

  • Nokkur atriði af því sem ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu gerði:

• Afnámu sérstök lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna sem sett voru þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni til heiðurs.

Jóhanna og Steingrímur• Breyttu lögum um Seðlabankann. Þá var í fyrsta sinn í sögunni gerð hæfniskrafa til Seðlabankastjóra sem fram til þess dags komu flestir úr stjórnmálum með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur öll.

• Settu á sérstakan hóp sérfræðinga úr Seðlabankanum og utan hans til að leggja mat á efnahagslífið með tilliti til vaxta

• Breyttu lögum um skipan dómara sem komu í veg fyrir vina- og ættingjaráðningar í stöðu dómara

• Verðbólga fór úr 20% í 3% á kjörtímabilinu.

• Vextir lækkuðu úr 10% í 5% á kjörtímabilinu

• Halli á rekstri ríkissjóðs fór úr 216 milljörðum í núll á kjörtímabilinu. (Náðu þeim árangri með því að afla tekna til jafns við óhjákvæmilegan niðurskurð).

• Sérstakur þrepaskiptur tekjuskattur var lagður á, því hærri sem launin voru því hærri skattprósenta.

• Hækkuðu ekki skatta á lægstu laun

• Lögðu á auðlegðarskatt

• Endurgreiddu um þriðjung af vöxtum sem fólk greiddi af húsnæðislánum sínum

• Settu 12 milljarða í sérstakar vaxtabætur

• Hækkuðu almennar vaxtabætur

• Gripu til ýmissa aðgerða sem tugþúsundir heimila nýttu sér og eru verðlagaðar á um 85 milljarða króna

• Opnuðu nýjar leiðir fyrir ungt fólk til að hefja
aftur nám í stað þess að vera án atvinnu. (Nærri 1.500 nýir námsmenn fóru í Háskóla Íslands vegna þeirra aðgerða).

• Tóku upp víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjar leiðir til náms fyrir ungt fólk

• Vörðu atvinnu með því að auka tekjur í stað þess að skera endalaust niður

• Settu sanngjarnt veiðigjald á útgerðina fyrst allra þjóða

• Læstu þrotabú gömlu bankanna inni í landi með lagasetningu í mars 2012. Án þeirra laga væri ekki hægt að semja um lausn á uppgjöri þrotabúanna. Framsókn og íhaldið greiddu atkvæði á móti
lagasetningunni.

• Settu lög um hvernig á að standa að sölu fjármálafyrirtækja í eigu eða hlutaeigu ríkisins til að koma í veg fyrir aðra einkavæðingu. Íhaldið og framsókn greiddu atkvæði á móti.

• Sögðu upp öllum aukasamningum við starfsfólks stjórnarráðsins, t.d. vegna notkunar á bíl og fleira. Aðeins greitt samkvæmt reikningum eftir það

• Skáru verulega niður í utanlandsferðum ráðherra, þingmanna og embættismanna

• Aðeins formenn þingmanna fóru erlendis á fundi og varamenn fóru ekki í þeirra stað

• Lækkuðu laun þingmanna og hæstu laun embættismanna

• Settu siðarelgur fyrir ríkisstjórn og ráðherra

• Fækkuðu ráðuneytum úr 18 í 8

• Fækkuðu ráðherrum úr 12 í 8

• Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti

• Settu fram og samþykktum áætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda

• Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans

• Fækkuðu þingnefndum

• Buðu stjórnarandstöðunni upp á formennsku í nefndnum

• Breyttu gjaldþrotalögum til að hjálpa því fólki sem komst ekki undan gjaldþroti

• Efldu fjármálaeftirlitið á kostnað bankanna

• Breyttu lögum um bankastarfsemi m.a. til að gera lágmarkskröfur um hæfni stjórnenda þeirra sem ekki hafði verið gert áður

• Lækkuðu dráttarvexti

• Breyttu reglum íbúðalánasjóðs til að draga úr greiðslubyrði heimila

• Gerðu umfangsmikla kjarasamninga í miðri kreppunni árið 2011

• Náðu að halda friði á vinnumarkaðinum allt kjörtímabilið þrátt fyrir alla erfiðleikana

• Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%

• Fjölguðu framhaldsskólum til að auka námsframboð fyrir ungt fólk

• Minnkuðum atvinnuleysi úr tæpum 10% í 4%

• Sendu AGS úr landi fyrr en áætlað var í upphafi

• Byrjuðu að endurgreiða lán sem norðurlöndin veittu okkur

• Endurgreiddum Færeyingum allt það sem þeir lánuðu okkur af rausnarskap sínum

• Losuðu okkur undan hryðjuverkjalögum sem Bretar settu á okkur undir hægristjórninni

• Héldu heilbrigðiskerfinu gangandi sem var ekkert sjálfsagt að hægt væri að gera

• Gerðu samkomulag við stjórnendur og starfsfólk Landspítalans um aðhald í rekstri til fjögurra ára og síðan uppbyggingu m.a. nýtt sjúkrahús

• Settu nokkrar stórframkvæmdir í gang í vegamálum

• Samþykktu og fjármögnuðu að fullu sérstaka fjárfestingaráætlun sem núverandi ríkisstjórn sló af

Hæddust ekki að almenningi

• Gerðu ekki grín að mótmælendum

• Kvörtuðu ekki undan gagnrýni, heldur svöruðu henni með rökum

• Létu vinna ótal greiningar og skoðanir á stöðu almennings, nánast alltaf í samráði við aðra stjórnmálaflokka

• Veittu stjórnarandstöðunni aðgang að efnahagsráðgjöfum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum við að skoða og gera úttektir á hugmyndum og tillögum sem andstaða vildi láta gera.

Nokkuð gott. Ekki satt?".


mbl.is Baráttan verður snörp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðtrygging lána

  • Það er auðvitað eðlilegt að fólk greiði lánin sín að fullu til baka að sama verðmæti og þegar fólk tók lánin
    *
  • Síðan er spurning hvort viðmiðin séu rétt og það er auðvitað eitthvað sem nauðsynlegt er að rannsaka reglulega af hlutlausum aðilum.

Bankavextir voru gefnir frjálsir í maí mánuði 1983 með bráðabirða lögum er síðar voru staðfest af Alþingi. Þetta gerðist þegar Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur mynduðu ríkisstjórn. Í lögunum er í raun og í greinargerð með þeim er beinlínis gert ráð fyrir því að vextir yrðu verðtryggðir.

Á þessum tíma var ég algjör andstæðingur verðtryggðra lána vegna þess, að með þessum sömu lögum var bannað að verðtryggja kjarasamninga.  Verðtryggja mátti alla aðra viðskiptasamninga en kjarasamninga.

Mér hefur snúist hugur, einfaldlega vegna þess að bankavextir verða alltaf verðtryggðir, ef ekki með vísitölutengingu þá með hækkuðum vöxtum.

bankarHitt er auðvitað staðreynd að vextir ofaná verðtryggingu eru allt of háir. Fyrst þegar Jóhannes Nordal tók að tala fyrir verðtryggingu lána taldi hann eðlilegt að árs vextir 1 til 1,5%.

Það var það viðmið sem menn höfðu í huga þegar þessi vísitölu trygging var tekin upp.  En íslenskir bankar hafa í raun stundað okur vaxtastefnu  án þess að nokkrir hafi andmælt því.

Vígstaða ASÍ í kjaramálum gjörbreyttist við þessa breytingu. Nú var ekki lengur hægt að knýja fram heildarlaunahækkanir því þær voru óðara teknar til baka með hækkun á húsnæðislánum fólks. Skömmu síðar ákváðu lífeyrissjóðir að þeir þyrftu að fá 3,5%  ársávöxtun.

Ef þessir drengir þiggja lán frá sínum lífeyrissjóði, geta þeir tæplega ætlast til þess að aðrir niðurgreiði vexti af lánum þeirra með skertum lífeyri.


mbl.is Verði á tánum en ekki hnjánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband