2.10.2017 | 15:13
Stjórnsýsluhættir fortíðar.
- Eftir að Alþingi er í raun slitið kemur Jón Gunnarsson samgönguráðherra og tilkynnir að hann hafi breytt þjóðvegi 1. Án þess að þingið hafi tekið ákvöðrun um það. Án nokkurrar umræðu á hinu háa Alþingi.
Nú eru alþingismenn og aðrir stjórnmálamenn komnir í bullandi kosningabaráttu. Meðulin eru svo sannarlega ekki alltaf vönduð. Eins og sjá má af eftirfarandi:
Ég svaraði bréfinu á þá leið að öllum þingmönnum væri frjálst að afla sér upplýsinga um slík mál hjá framkvæmdavaldinu og benti honum á að tala einfaldlega beint við ráðherrann um þessi mál.
Það lægi beinast við, segir Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, í samtali við mbl.is.
- Nú er bara snúið út úr og formaðurinn segist bara ekki tala við seglskip.
Það á auðvitað ekki að gefa Píratanum tækifæri til að gera mál úr þessu. Ráðuneytið sem er troðið af embættis-mönnum skipuðum af gamla valdaflokknum stendur auðvitað með sínum ráðherra.
Það má vera að þetta sé skynsamleg ákvörðunum það veit ég ekkert um, en stjórnsýslan er gjörsamlega óbjóðandi.
Þetta er auðvitað 70 ára aðferð gamla valdaflokksins við stjórn mála á Íslandi. Gefnar eru tilskipanir á báða bóga.
Háttarlag hins sterka stjórnmálamanns. Íslendingar hafa slæma reynslu af slíkum mönnum.
Eðlilegt að tala við ráðherrann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.