16.5.2018 | 18:04
Neyðaráætlun fjármálaráðherra
- Nú er allt í voða í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
* - Ljóst er að nýi leiðtoginn veldur ekki því hlutverki að leiða flokkinn til einhvers sigurs í borginni, hann er algjörlega litlaus.Fylgið dalar.
* - Allar patentlausnir hans hafa verið algjörlega hraktar. Hann hefur verið uppvís að þekkingarleysi í málefnum borgarinnar
* - Eyþór er einnig með hagsmunatengingar í fjölmörg stór fyrirtæki.Það getur hann ekki þvegið af sér. Slíkum aðila verður ekki treyst sem borgarstjóra.
Nú stígur ráðherrann fram og segir að Sjálfstæðisflokkurinn hyggist setja Sundabraut aftur í samgönguáætlun og kanna möguleika á einkaframkvæmd sem flýta muni fyrir verkefninu.
Allir vita að þetta er bara sýndarmennska því Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert vald á því að ákveða þetta.
En auðvitað getur hann talað fyrir þessu máli innan ríkisstjórnar.
En þessi framkvæmd ef að henni verður lagar ekki vandann í borginni nema að síður væri.
Göturnar bera ekki lengur þann fjölda bíla sem koma út í umferðina á álagstímum.
Breytir þá engu þótt byggð verði mislægð gatnamót út um alla borg. Þótt eflaust megi auka hraðan með breyttum ljósastýringum. En það mun auðvitað gerast þótt almenningssamgöngur verði bættar á nútímalegan hátt.
Almenningsvagnakerfið verður að laga og það þarf að ná um alla borgina sem telur mörg sveitarfélög. Orðið borgarlína hefur farið fyrir brjóstið á frambjóðendum flokksins í Reykjavík.
Reykjavík er eina sveitarfélagið á stórborgarsvæðinu sem stendur undir nafni á félagslega sviðinu þótt ýmislegt megi þar bæta.
Þar sem gamli valdaflokkurinn stjórnar eru þessi mál yfirleitt í skötulíki. Það kann að vera að lækka megi útsvar eitthvað, þá verður það ekki gert með þessum hætti.
Það er þegar stefna að byggja upp Keldnasvæðið og er það þegar komið í skipulagningu. Það er ljóst að það verður mikil framför þegar það byggist upp og tengir saman hverfin sem eru þar í kring.
Sundabraut og lækkun útsvars á dagskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 20:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.