25.5.2018 | 08:32
Eyþór fyrirmyndar frambjóðandi??
Eyþór Arnalds lofar vel rekinni borg.
Verkin lofa sannarlega meistarann, slóðinn leynir sér ekki.
Mogginn grípur til gamalkunnra örþrifaráða, er dugðu oft áður fyrr.
- Forstjóri Íslandssíma 2000-2001. Tapið fyrra árið 492 millj, kr., seinna árið 900 milj. Kr. Eyþór hætti við svo búið. (Mbl. 15.mars 2002)
- Stofnandi og hvatamaður að Becromal á Akureyri. Fimm milljarða tap á árinu 2017 og voru heildarskuldir þess í árslok 10.8 milljarðar og neikvæð eiginfjárstaða 4,5 milljarðar (Frjáls verslun des. 2017)
* - Einn af stofnendum Thorsil kísilmálmverksmiðju 2010. Átti fyrst að vera í Þorlákshöfn, síðan á Bakka og loks í Helguvík. Fjárfesting sögð upp á 38 milljarða. Árið 2014 var tilkynnt um stóran sölusamning á nær helmingi framleiðslu verksmiðjunnar fyrirfram. (Víkurfréttir 12.júní 2014) Hvorki sést tangur né tetur af verksmiðjunni.
* - GMR Endurvinnsla á Grundartanga er eitt af fyrirtækjum Eyþórs og var hann stjórnarformaður. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota árið 2017 eftir rekstur í þrjú ár og lét Eyþór sig þá hverfa úr stöðu stjórnarformanns.
Fyrirtækið var í gjörgæslu Umhverfisstofnunar vegna ítrekaðra brota á mengunarvörnum. Kröfur í þrotabú GMR nema 3,6 milljörðum króna og er það talið að mestu tapað fé fyrir banka og aðra fjárfesta (Fréttablaðið 12. sept. 2017). - Nú er allt í voða í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
* - Ljóst er að nýi leiðtoginn veldur ekki því hlutverki að leiða flokkinn til einhvers sigurs í borginni, hann er algjörlega litlaus. Fylgið dalar.
* - Allar patentlausnir hans hafa verið algjörlega hraktar. Hann hefur verið uppvís að þekkingarleysi í málefnum borgarinnar
* - Eyþór er einnig með hagsmunatengingar í fjölmörg stór fyrirtæki sumt afar vafasamt.
- *
Það getur hann ekki þvegið af sér. Slíkum aðila verður ekki treyst sem borgarstjóra.
- Nú er allt í voða í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Óvíst að meirihlutinn haldi velli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 08:53 | Facebook
Athugasemdir
Vaá, chap, skrautlega skreytinn um Dag í dag!
Góður afruglari vinstrivillu og Dagvillu er bjarnijonsson.bog.is
Ciao.
Jón Valur Jensson, 25.5.2018 kl. 09:50
Takk fyrir meðmælin kæri vinur.
Kristbjörn Árnason, 25.5.2018 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.