30.11.2018 | 23:51
Það vantar alla auðmýktina
- Þessi fyrrverandi ráðherra krefst þess að honum sé fyrirgefið
,,Vil ég þó segja að mistök gerum við manneskjurnar víst og er öllu jafna auðveldara að dæma en að fyrirgefa".
Hann hjólar í almenning og segir að hann sé ekkert verri en aðrir. Í raun og veru sýnir hann með þessu einstakan hroka með orðum sínum.
Þótt iðnnemin forðum hafi sagt þessi orð: Sá yðar er syndlaus er kasti fyrsta steininum Þá á það bara ekki við í sambandi Gunnars Braga.
Smiðssonurinn var að tala til manna sem ætluðu að refsa umkomulausri konu, þeir ætluðu að grýta hana til dauða.
Ég orðlaus yfir þessum orðum alþingismannsins, hann er krefjast fyrirgefningar af því sem hann gerði og þykist ekki muna.
Til auðnast fyrirgefningu verður að sýna raunverulega iðrun og auðmýkt. Það hefur Gunnar Bragi alls ekki gert.
,,Ég mun hafa það í huga hér eftir og hvet ykkur til þess sama. Ég vona að hlutaðeigandi fyrirgefi mér þessa hegðun en vegna hennar hef ég ákveðið að taka mér leyfi frá þingstörfum".
Vonandi vinnur Gunnar Bragi úr sínum vanda og lærir eðlileg samskipti við fólk.
Sannleikurinn er auðvitað sá að hann hraktist út af þingi með skömm.
Allir sex þingmennirnir sem voru þarna staddir voru að svíkjast um á vinnutíma og sátu að sumbli.
Þeir gerðu sig seka um eitt og annað alvarlegt. Nokkuð sem annað fólk getur ekki leyft sér
Tekur tíma að vinna úr áfallinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt 1.12.2018 kl. 00:02 | Facebook
Athugasemdir
Hroki og yfirlægti einkennir þennan mann nú sem aldrei fyrr. Sama um formann Miðflokksins. Væri eitthvert vit í þessu barliði segði það af sér, allir sem einn.
Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2018 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.