29.1.2019 | 09:03
Áróðursrit frjálshyggjunnar
- Hér koma fram öflugar athugasemdir við áróðursrit frjálshyggjunnar um íslensk bankamál í fræðigrein.
* - Vekur greinarhöfundur athygli á, að í hvítbókinni er nær eingöngu notað orðfæri hagsmunaafla á fjármála markaði.
Það er engan veginn sjálfgefið að lækkun skatta á banka myndi skila sér í minni vaxtamun né að virk samkeppni tryggi að ábati hagræðingar í bankakerfinu skili sér til neytenda.
Samkeppni á markaði leiðir ekki alltaf til hagkvæmustu niðurstöðunnar og það er beinlínis hættulegt að láta eins og bankarekstur lúti sömu lögmálum og annar atvinnurekstur.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn Ásgeirs Brynjars Torfasonar, lektors í fjármálum og reikningsskilum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Um Hvítbók sem á að fjalla um nýja framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem starfshópur fjármálaráðherra birti fyrir jól.
Í skýrslunni er lagt til að skattar á fjármálafyrirtæki verði lækkaðir og dregið úr eignarhaldi ríkisins.
Að mati Ásgeirs er skýrslan mótuð um of af sterkri hugmyndafræði og hagfræðikenningum sem biðu skiptbrot í alþjóðlega fjármálahruninu 2007-8.
Mikið af þessum meginkenningum hafa verið teknar til rækilegrar endurskoðunar erlendis, en það virðist ekki bera mikinn keim af þeirri nýju hugsun í hvítbókinni" skrifar Ásgeir.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 09:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.