16.5.2019 | 20:51
Það er ekki lífhættulegt.
- Eða , Það myndi ekki að drepa fólk að gefa því tækifæri. Við þurfum að gyrða okkur í brók, segir Halldóra Þ. Jónsdóttir, forstöðumaður hjá Ási styrktarfélagi, um ráðningar starfsfólks með fötlun og skerta starfsorku.
Eftir nær 25 ára starf sem grunnskólakennari veit ég fyrir víst, að það er mikil þörf á því að fá fólk sem er skilgreint fatlað (en er það jafnvel ekki) til starfa í flestum grunnskólum landsins.
- Þá er ég að tala um skóla sem telja sig vera skóla án aðgreiningar Þá er ég að tala um fólk með fjölbreytta fötlun.
Það er augljóst að það er fátt sem þroskar grunnskólabörn meir en að kynnast fjölbreytileikanum sem fyrst í lífinu.
Mig minnir að grunnskólar borgarinnar séu eitthvað um 44 talsins er gætu hæglega haft um 150 fatlaða fullgilda starfsmenn að störfum t.d. í hlutastörfum.
Það er fátt sem hefur þroska mig betur en að ég nánast ólst upp, rétt eins og heimilisköttur á vinnustofu Blindrafélagsins á Grundarstíg. Það var virkilega góður undirbúningur undir lífið hjá mér, reynsla sem hefur nýst mér mjög vel í atvinnulífinu.
Á þá vinnustofu mættu reglulega fjölmargir rithöfundar bæðir þekktir og lítt kunnir til að lesa upp fyrir starfsmenn þar bæ uppköst sín á meðan ritstörfin stóðu yfir og fengu gjarnan jákvæðar og málefnalegar tilsagnir.
Nánast allir starfsmenn félagsins voru blindir og unnu fulla vinnu og voru stoltir af. Unnu þeir bæði við handavinnu sem nauðsynleg var við framleiðsluna en einnig við hættulegar trésmíðavélar.
Það myndi ekki að drepa fólk að gefa því tækifæri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 21:01 | Facebook
Athugasemdir
Kristbjörn, gamlar fuglahræður eins og við ólumst upp við fjölbreytileikann í daglega lífinu. En er ekki eitthvað að í samfélaginu ef grunnskólabörn nútímans geta aðeins kynnst fjölbreytileikanum í skólanum sínum? Stundum hvarflar að mér hvort vandræði drengja í skólakerfinu tengist þessum breyttu aðstæðum. En hvað veit ég svosem!
ksh (IP-tala skráð) 17.5.2019 kl. 12:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.