5.10.2017 | 16:41
Útlendingum seld raforkan
- Síðan er ekkert eftir fyrir landsmenn.
Þetta er alveg ótrúlegt fyrirhyggjuleysi. Þetta ástand er ekki bara í Eyjafirði og væntanlega einnig í Þingeyjarsýslum innan tíðar.
Sama ástandið er á Austurlandi, þar er ekki að leggja innlendum fyrirtækjum til raforku og væntanlega fer að vanta orku fyrir íbúa þessara svæða.
Æskilegir virkjunarstaðir er ekki ótakmörk auðlind. Almenningur er loksins að vakna upp við það að aðrir hagsmunir eru miklu ríkari en að selja erlendum stóriðjum raforku á útsöluverði.
Þeir norðanmenn geta auðvitað sjálfum sér um kennt.
Endalausar kærur og ósamstaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2017 | 12:16
Pólitík og leynimakk?
- Það er erfitt að skilja orð Arnars Árnasonar sem er formaður Landssambands kúabænda, um skipan nýrra fulltrúa stjórnvalda í verðlagsnefnd búvara.
Því alla tíð hefur það verið eitthvert pólitíkst makk utan um þá nefnd sem hefur farið með miðstýrðar ákvarðanir um verð á búvörum og um styrki til handa bændum.
Forysta bænda hefur gagnrýnt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur landbúnaðarráðherra harðlega fyrir að skipa Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor í nefndina annars vegar, og hins vegar Kristrúnu M. Frostadóttur, hagfræðing hjá Viðskiptaráði.
Þórólfur er þarna skipaður sem fulltrúi neytenda tilnefndur af Félagamálaráðherra. Verkalýðshreyfingin hefur ekki treyst sér að tilnefna fulltrúa í nefndina vegna þess að bændur hafa misnotað veru þeirra í þessari nefnd í gegnum árin.
Að vísu á ég erfitt með að átta mig á veru fulltrúa frá Viðskiptaráði í nefndinni. En ég er ekki stuðningsmaður ráðherrans en átta mig á því að þörf er fyrir breytingar.
Málið er bara þannig, að fyrirkomulagið á verðlagningu á búvörum verður að standast málefnanlegrar gagnrýni frá hagfræðingum sem hafa til þessa gert athugasemdir við fyrirkomulagið. Ef allt stenst skoðun er allt í góðu annars verður að gera lagfæringar sem taka tillit til hagsmuna neytenda ekki síður en bænda.
Bændur eiga afurðarstöðvarnar og stjórna þeim. Bændur njóta mjög mikilla styrkja frá neytendum og fara afurðarstöðvarnar nú fram með offorsi og krefjast meiri ríkisstyrkja. Það gera þeir með því að lækka verð á framleiðsluvörum bænda, með óbeinni kröfu um að ríkissjóður hlaupi undir bagga með bændum.
Ráðstöfunin lyktar af pólitísku makki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)