Hallærislegt bull

  • Útgerðinni hefur tekist að  breyta veiðigjöldunum í

    tekjuskattsgreiðslur.

togaraverkfall

Bara með því að fyrirtækin skuldsetji sig, e.t.v. til að fjárfesta eða greiða arð þá aukast vaxtagreiðslur og  rekstrarkostnaður eykst, við það minnka „tekjutengdu veiðigjöldin“ sem taka þá ekkert mið af aflanum sem sóttur er á miðin á hverjum tíma.

En þessi talsmaður útgerðarinnar er ekkert að flíka því, að hyggnir útgerðarmenn vissu strax á aflaárinu hvað þeir myndu þurfa að greiða í þessi skrýtnu veiðigjöld. Þeim bar því að halda því til haga sem þeir myndu þurfa að greiða. 

Taka þarf upp staðgreiðslu á þessum gjöldum og þau verði miðuð við aflaheimildir hvers árs ótengt afkomu útgerðanna, en a.m.k. tækju mið af raunverulegum afla útgerðanna í tonnum talið.

Það er hið eina heiðarlega í þessum veiðigjaldamálum og gjöldin gætu þá verið aðeins lægri og skilað þjóðinni eðlilegri arð af auðlindinni.  Þá reyndi á rekstrarhæfni útgerðarmannanna.

  • Útgerðin á að finna fyrir veiðigjöldunum, þau eiga að vera byrði. Annars eru þau gagnslaus sem slík.
    *
  • Aflaheimildir á Íslandsmiðum eru mikil verðmæti sem eðlilegt er að þeir sem njóta greiði fyrir. Veiðiheimildir eru mjög eftirsóknarverð.
    *
  • Ef útgerðin greiðir ekki fullt og eðlilegt veiðigjald má auðveldlega rökstyðja það, að greinin njóti verulegra ríkisstyrkja. 

mbl.is Veiðigjöldin eru orðin töluverð byrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðislegur réttur er alltaf mikilvægur en ákaflega vandmeðfarinn

  • Réttur almennings til að boða til mótmælafunda er mikilvægur

    lýðræðisréttur en að sama skapi ákaflega vandmeðfarinn.

Því þegar slíkir fundir eru haldnir fylgja gjarnan óvandaðir einstaklingar sem reyna að notfæra sér þá sem farveg fyrir eigin athyglissýki eða skemmdafýsn. Jafnvel farveg fyrir sitt persónulega hatur á einhverjum.

Ég er einn af þeim sem sótti flesta Austurvallafundina á sínum tíma sem voru ákaflega vel heppnaðir og lögreglan virtist skilja sitt eðlilega hlutverk á þessum fjöldafundum. Einnig einn af þeim fjölmörgu sem fór í vörn fyrir lögregluliðanna við Alþingishúsið.

En varð fyrir miklum vonbrigðum með vinnubrögð yfirlögreglumannsins í skýrslu sinni, jafnvel óbreyttir liðsmenn lögreglu voru ekki hrifnir af vinnubrögðum hans.

Það varð einnig ljótur leikur hjá sumum sem þarna mættu og voru virkir á þessum fundum en notfærðu sér athyglina til að ota sér áfram í pólitík. Þarna tókst þeim það óþverraverk að reka pólitískan fleyg í raðir vinstri manna á þingi.

Það mjóaði oft munu að vargarnir eyðilögðu þennan rétt almennings með skrílslátum. Ekki voru ýmsir þekktir og óþekktir barónar til fyrirmyndar þegar þeir þustu út af bjórkránum seint á síðkvöldum.

Þeir settu í raun blett á þessar heiðarlegu mótmælaaðgerðir allsgáðra kjósenda með algjörlega óhugsuðum ólátum. Þessir kónar hafa aldrei beðist afsökunar á ómennsku sinni. 

Það er fullkomlega eðlilegt að þeir sem hafa verið stjórnendur þjóðarinnar og hafa með hættulegum stjórnarháttum sínum komið almenningi og þjóðinni í voða. Finni fyrir slíkum viðbrögðum þjóðarinnar.

En vettvangur slíkra aðgerða verða að vera við starfsstöðvar þessa fólks en ekki við heimili þeirra þar sem slíkar aðgerðir bitna þá á saklausi fólki og jafnvel á börnum. Skemmdarverk eru bara glæpsamleg ómennska hvort sem það er á eigum fólks eða á fólki.

Ég er ákaflega hugsi yfir því sem lögmaðurinn sagði í sjónvarpi. Hann fór yfir strikið að mínu mati.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Ósannað hverjir voru að verki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. desember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband