20.3.2018 | 21:36
Eiga Íslendingar sér óvini meðal annarra þjóðríkja?
- Margt er skrýtið í kýrhausnum
Fyrir nokkrum dögum verða rússnesk feðgin fyrir eiturefnaárás í Bretlandi. Kallinn var fyrrum njósnari fyrir Breta í Rússlandi um árabil og fékk dóm þar í landi væntanlega fyrir landráð en var leystur úr haldi.
Bretar hafa ákveðið að Rússar hafi sýnt þessum feðginum tilræðið án þess þó að nokkrar haldbærar sönnur á það væru fyrir hendi. En Bretland er herveldi sem hefur stráfellt fólk eftir hentileikum víða um heiminn og vita væntanlega allt um svona illvirki.
Rússar eru heldur engir englar frekar en önnur herveldi svo þeir eru til alls trúandi. En það hefur hentað Breskum stjórnvöldum að kenna Rússum um ódæðið og vinsældir ríkisstjórnarinnar hafa stóraukist.
Af þessu tilefni var rætt við hinn íslenska utanríkisráðherra sem greinlega var á bandi Breta eins og margir fleiri stjórnmálamenn sem vantar vinsældir.
Þegar spurt var um viðbrögð ráðherrans vegna þessa máls, sagði hann málið vera til skoðunar á Íslandi, en við munum auðvitað fylgja vina þjóðum okkar sagði ráðherrann.
Þýðir þetta svar Guðlaugs Þórs, að við íslendingar eigum okkur einhverja óvinaþjóð? Þarna skortir mig greinilega greind. Því eina herveldið sem hefur ráðist á Ísland með hertól að vopni er einmitt Bretland. Það er líka eina ríkið sem hefur sett hryðjuverkalög á íslendinga .

![]() |
Rússar framleiddu eitrið Novichok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2018 | 16:31
Hér vantar greinilega eitthvert siðvit.
- Hvernig fór þetta hæfnismat fram og hvaða viðmið voru höfð að leiðarljósi?
Greinilegt er að stjórnarmenn hjá ,,N1" virðast ekki gera sér fyrir þeirri staðreynd, að það er launafólk sem á meirihluta í þessu félagi.
Þar með taldir starfsmenn félagsins sem margir hverjir eru á lágmarkslaunum.
Síðan er spurningin um hvort mikilvægi þessa starfs sé meira en t.d. lækna við vandasömustu og mikilvægustu verkefni við að bjarga mannslífum.
Hvort mikilvægi starfsins sé meira en t.d. störf leik- og grunnskólakennara sem undirbúa framtíð barnanna í landinu. Svona má auðvitað lengi upp telja.
Ef halli verður á rekstri N1 verða þá laun lækkuð snarlega eða þarf hann þá að endurgreiða oftekin laun? Náði hann einhverjum gróða með því að fækka láglaunafólki í störfum fyrir fyrirtækið.
Viðskiptin munu um stund minnka
![]() |
Undrast launahækkun forstjórans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
- Ég vil taka undir allt sem Ögmundur segir í þessum pistli sínum.
Það er gríðarlegt áróðursstríð í gangi í kringum þessa styrjöld sem drepur fjölda fólks í Sýrlandi og í öðrum nágrannaríkjum daglega.
Bandaríkin eru aðilar að allri þessari styrjöld sem fer fram í mörgum ríkjum og raunar Rússar einnig í Sýrlandi.
Yfir íslendinga dynur daglegur einhliða áróður Natóríkjanna en ekkert heyrist af hinni hlið málsins.
Hvernig eigum við sem þjóð og íslensk stjórnvöld að meta hvað er rétt og hvað ekki ef við kynnum okkur ekki málið frá öllum hliðum þess?
- Það var sérlega ánægjulegt að Katrín Jakopsdóttir skuli hafa farið á þennan fræðslufund og hlustað á Vanessu Beeley að hún láti ekki bara einhliða áróður stjórna gerðum sínum.

![]() |
Aldrei fleiri börn í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2018 | 07:42
Hótel - bossar vilja að launafólk greiði af lánum fyrirtækjanna
- ,,Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, segir miklar launahækkanir óraunhæfar í íslenskri ferðaþjónustu".
Vandi þessarar atvinnugreinar er auðvitað gríðarleg skuldsetning og himinháar vaxtagreiðslur. Þá er gerð krafa um mjög miklar arðgreiðslur til hluthafa.
Tilefnið er meðal annars yfirlýsingar nýrra verkalýðsforingja um að láglaunafólk hafi setið eftir.
- Maður heyrir tóninn í nýja forystufólkinu. Það á að beita öllum tiltækum ráðum til að ná fram betri kjörum og hærri launum. Auðvitað hefur maður áhyggjur af því ef langt verður gengið í þessum efnum.
Vissulega er greiðsluvandi flestra hótela mikill en laun til starfsfólks eru einnig skammarlega lág. Það er bara eðlilegt að vinnulaun séu sambærileg þeim sem greidd eru í nálægum löndum.
Kr. 300 þúsund í grunnlaun eru of lág laun fyrir einstakling til að lifa á þeim, svo ekki sé talað um ef fólk er með börn í framfærslu.
Ekki var það launafólk skuldsetti þessi fyrirtæki sem eru nánast öll byggð upp í skuld.
![]() |
Óraunhæfar launakröfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2018 | 17:22
Að kenna öðrum um
- Alþingismenn, ráðherrar og ýmsir opinberir ráðamenn hafa hneykslað almenning á því hvernig þessir aðilar hafa getað makað krókinn með skattfé almennings
* - Auðvitað telur fólk eðlilegt að þessir aðilar séu á góðum launum, en að það sé farið frjálslega með skattfé almennings er ólíðandi.
En fyrirkomulag á kjörum þessara aðila tekur mið af launum fyrirmanna í sjálfu atvinnulífinu. Forstjórar fyrirtækjanna og framkvæmdastjórar eru með mun hærri laun.
Einnig forystumenn samtaka atvinnurekenda og einnig forystumenn í stærstu samtökum launafólks. Þetta eru einmitt aðilar sem kasta nú grjóti út úr glerhúsi.
Ekki ætla ég að verja stjórnmálamennina og eða excel-kjöl þeirra. Hvernig þeir vinka þeim framan í forystumenn í t.d. ASÍ.
- Valdið er og á að vera hjá félagsmönnum og hjá verkalýðsfélögum þeirra í kjaramálum. Þessu vilja margir gleyma.
En það vill bara svo til, að ASÍ menn sjálfir nota excel-skjöl til að að mikla sinn árangur og hafa haft lítinn áhuga á launum fólks sem hefur minna en 300 þúsund á mánuði.
Bara í þessari grein gerir fyrrum miðstjórnarmaðurinn til margra ára í ASÍ, Guðmundur sig sekan um slíkt hið sama.
Nú fyrir örfáum dögum upplýsti eftirmaður Guðmundar núverandi formaður rafiðnaðarmanna um kjarastefnu þeirra sem fer algjörlega gegn þeirri stefnu sem nýir foringjar verkalýðsfélaga í Reykjavík boða.
Þetta er furðuleg grein, hann vill ekki viðurkenna að reiði fólks snýr fyrst og fremst að forystumönnum í ASÍ nú eins rétt eftir hrunið.
Þegar þessir miðstjórnarmenn tóku sér stöðu gegn hagsmunum launafólki í vaxta- og verðtryggingamálum. Er varð til þess að hrunið fór miklu verr með launafólk en annars hefði þurft að verða.
Guðmundur er einn þeirra sem hafa staðið að Salek fyrirbærinu sem gengur út á skerðingu á samningsfrelsi fjölmargra verkalýðsfélaga og skerðir mjög verkfallsréttinn.
Sumir eiga að hafa samningsrétt en ekki allir. Réttur opinberra verður skertur verulega ef þetta nær að ganga eftir. Ef stéttir fara í verkföll er það ekki bara launafólki um að kenna. Það koma tveir aðilar að öllum lífskjarasamn-ingum
Guðmundi ferst þetta grjótkast sitt.
Alþingismenn sem eru að misnota aðstöðu sína á að rassskella á Lækjatorgi á föstudögum kl 13:00.

![]() |
Staða Gylfa aldrei verið veikari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2018 | 13:46
Ný nálgun í kjaramálum
- Með því að hagfræðingar komu til starfa hjá ASÍ og urðu þar allsráðandi varðandi kjaramál varð kúvending innan sambandsins er varðar umræðu um öll kjaramál.
* - Nú var farið að ræða um málin með hagfræðina að leiðarljósi. Það skelfilegasta varð þegar hagfræðingar með engar rætur í hreyfingunni voru gerðir að forsetum ASÍ.
* - Koleggar frá báðum aðilum á vinnmarkaði voru farnir að véla um kjaramál. Bæði frá atvinnu-rekendum og launafólki.
Ef gerðar voru sérstakar ráðstafanir vegna láglaunafólks sem gátu breytt öllu hjá fátæku fólki á íslenskan mælikvarða hreyfði það ekki kaupmáttinn upp á við í viðmiðunarvísitölum sem nokkru nam og máli skipti, þ.e.a.s. breyttu litlu í meðaltölunum.
Þótt eðlilegt sé, að vextir á venjulegum neyslu- og hverskyns rekstrarlánum séu með frjálsum vöxtum. Er jafnframt algjörlega út úr kú að grunn húsnæðislán séu með hærri vöxtum en 1,5 2% vöxtum enda lánin verðtryggð.
Einnig er nauðsynlegt að skoða gaumgæfulega þá vísitölu sem lán eru bundin við. En lán yfir grunn mörkum eiga að vera á frjálsum lánamarkaði.
Þá skipta ýmiskonar gjöld í heilbrigðiskerfinu, í skólakerfinu, skólagögn í grunnskólum, það að leikskólinn skuli ekki vera rekinn á sama hátt og grunnskólinn, persónuafsláttur og eitt og annað meira máli fyrir láglaunafólk en % hækkanir á launum fólks sem hefur laun við 300 þúsund á mánuði.
Það varð ljóst í maí 1983, að það varð viðsnúningur í vaxtamálum þegar vextir í bankakerfinu voru gefnir frjálsir til viðbótar við fulla verðtryggingu húsnæðislána í sjö ár þar á undan.
ASÍ brást launafólki alvarlega einkum láglaunafólki og tók hagsmuni lífeyrissjóðanna fram yfir þetta vor. ASÍ brást einnig láglaunafólki 1998 þegar verkamannabústaðakerfið var lagt í rúst og allt félagslega húsnæðiskerfið í leiðinni. Vissulega var þörf á uppfærslu laganna en ekki að leggja það niður.
Það er rétt sem Ragnar Þór segir, en eru svo sem engin ný tíðindi, sannindi sem voru sögð strax við aðför ríkisstjórnarinnar að verklýðnum í landinu vorið 1983.
Það er ódýrara fyrir samfélagið að bæta lífskjör láglaunafólks einkum barnafólks í þeim hópi með slíkum hliðarráðstöfunum er ekki hafa áhrif á verðlag og vísitölur.
Dýrasta leiðin er sú vegferð sem farin hefur verið í síðustu 25 árin. Sem er að hreppa barnafólk í fjötra og láta það fara á hliðina vegna slakra kjara.
Afleiðingar hafa sýnt sig í fátækt hjá fjölda fólks, afleiðingar sjást m.a. í grunn-og leikskólum en einnig í félags- og heilbrigðiskerfinu.
![]() |
Það kostar ekkert að lækka vexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2018 | 13:40
Kosningaskjálfti í forystu Eflingar
- Líklegt er að nýtt fólk sem býður sig fram til stjórnar hafi hreyft harkalega við forystu Eflingar.
Hvernig sem kosningarnar fara mun Sólveig Anna Jónsdóttir vinna sigur í kosningunum til stjórnar Eflingu. Nú verandi stjórn sem hefur verið þekkt fyrir baktjalda aðferðir sínar undanfarin ár ætlar nú að sækja fram í kjarasamningum nú í vor.
Sólveig Anna segir að verkafólk sé búið að fá nóg af því að vinna mikla og erfiða vinnu fyrir lítinn pening. Sjálf sé hún rúmlega fertug á lægstu mögulegu launum og fái 250 þúsund krónur útborgaðar. Það er bara gríðarlega stór hluti fólks hér, lágstéttarfólk, verkafólk, sem lifir lífi sem er ekki lengur hægt að sætta sig við. Við vinnum undir miklu álagi, allskonar erfiðisstörf fyrir laun sem duga ekki til að lifa af. Við þurfum oft að vera í fleiri en einni vinnu, sagði Sólveig Anna á dögunum.
Efling hefur árum saman siglt sjó markaðslaunakerfisins í þágu atvinnurekenda.
![]() |
Efling kýs að segja upp samningum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2018 | 22:45
Jákvæð og afgerandi stefnubreyting hjá íslenskum stjórnvöldum
- Íslensk stjórnvöld höfnuðu í dag umsókn flugfélagsins Atlanta um hergagnaflutninga til Sádi Arabíu.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk að sjá innslagið úr Kveik fyrr í dag en hún þekkti ekki til málsins áður.
Við erum búin að vera að fara yfir málið í stjórnkerfinu og það liggur fyrir að um þetta gildir ákveðið regluverk þ.e.a.s. það eru veittar undanþágur frá loftferðalögum fyrir hergagnaflutninga á borð við þessa.
Þar gilda annars vegar þær lagalegu skuldbindingar sem við erum bundin af og hins vegar pólitísk sjónarmið þar sem skiptir auðvitað máli hver er endastöð vopnanna.
Þannig að það liggur fyrir að þetta flugfélag, sem um ræðir, það hefur núna sótt um nýja undanþágu. Utanríkisráðuneytið hefur í dag veitt neikvæða umsögn um þá undanþágu í ljósi þessarar stöðu, segir Katrín.
Katrín er varfarin í umræðunni um þessi mál en í viðtali við hana í kvöld ræddi hún um þörfina á því að breyta reglugerðum svo framkvæmd stjórnvalda endurspegli anda samþykkta Sameinuðu þjóðanna.
Þetta er pólitísk stefnubreyting.
![]() |
Telur íslensk stjórnvöld hafa brugðist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2018 | 20:21
Almenningsálitið sigrar Alþingismenn
- Það var komið fram við Ásmund af kurteisi, en leyndarhyggja þingsins orsakar það að Ásmundur lendir í kastljósi allra fjölmiðla nema moggans
* - Auðvitað eru fleiri þingmenn sem njóta ferða- og húsnæðisstuðnings. Allt hlutir sem þurfa að vera uppi á borðum og fastar reglur að vera um, þá eftir kjördæmum.
Það er ljóst að alþingismenn eru nú á hröðum flótta undan almenningsálitinu vegna ýmis kostnaðar sem þeir hafa getað reiknað sér. Er þá aksturskostnaður þeirra mest áberandi en einnig annar búsetukostnaður.
Dæmið um Ásmund Friðriksson er auðvitað skammarlegt fyrir alla þingmenn. Samkvæmt útreikningum Fél. Ísl. bifreiðaeig. (FÍB) fyrir Morgunútvarpið á Rás 2 kostar það Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, rúmlega tvær milljónir króna á ári að reka Kia Sportage-bíl sinn miðað við notkun hans í fyrra.
Það er um 2,6 milljónum króna minna en Ásmundur fékk í aksturskostnað frá Alþingi árið 2017 en greiðsla til hans vegna þess nam 4,6 milljónum króna. Ásmundur hefur nú bakkað með spillinguna.
Því bæði Ásmundur og fleiri þingmenn hafa farið í vörn fyrir þetta siðleysi hans, maður fær á tilfinninguna að líklegt sé að öll þessi mál séu í óreiðu og skipulagsleysi. Það getur ekki verið eðlilegt að setja þingmenn í svona stöðu. Það þarf að setja faglegan starfshóp til að fara yfir öll þessi mál.
Einnig að sérstakur starfsmaður annist þessar greiðslur sem fara eftir föstum reglum og haldið skipulagt bókhald yfir útgreiðslur. Þingmenn eiga ekki að hafa tekjur af þessum þætti. Það er óhæfa að fólk geti siss svona bara komið með reikninga og fengið þá greidda eins og ekkert sé.
Þá þarf að setja reglur um hversu margar ferðir þingmenn fái greiddar fyrir að fara um kjördæmi sitt sem eru misjafnlega stór. Einnig hversu mikinn kostnað þingið greiðir vegna ferða þingmanna til lögheimilis síns búi þeir utan við stór-Reykjavíkur svæðið. Einnig er nauðsynlegt að fara yfir aðra kostnaðaliði.
Þá er eðlilegt að menn í sama kjördæmi geti sameinast um bíla þegar þeir eru á ferð um kjördæmið til að hitta kjósendur (flokksfélaga sína). En rétt er að halda því til haga að þetta eru nær alltaf fundir með flokksfélögum á skipulögðum fundum. Það er lítið um það að almenningur komi á slíka fundi.

![]() |
Telur fréttaflutning jaðra við einelti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.2.2018 | 18:01
Hvenær er maður læs og hvenær ekki? Hvernig getur einhver talist ólæs þegar hann getur lesið?
- Ég birti þennan þátt hér því ég held að hann skipti miklu máli í umræðunni um getu nemenda í samræmdum prófum
Sæl verið þið ágæta grunnskólaáhugafólk, þegar maður hlustar á þetta samtal vakna margar spurningar er snerta óneitanlega frammistöðu grunnskólanemenda á samræmdum prófum eins og Písa.
Þ.e.a.s. að nemendur eru að taka próf í íslensku m.a. í lestri á íslenskum texta sem þau tala ekki almennt í samskiptum við aðra.
Á tungumáli sem er jafnvel sjaldnast töluð heima hjá mörgum nemendum. Þá koma koma fram fjölmörg önnur atriði sem eru örugglega áhrifavaldar á prófum.
Það virðist augljóst, að í gegnum árana rás hefur viðmiðið breyst um hvenær menn teljast læsir og hvenær ekki. Eða er það raunverulega svo? Getur verið að viðmiðin um þetta sé ansi misjöfn eftir þjóðum.
Einnig að hið talaða íslenska mál hafi breyst svo mjög að nemendur í skólum, lesi úr skólabókum gjörólíkt mál en það sem þeir nota í sínu daglega lífi.
Að öll próf skólanna fari fram á slíku máli sem er nemendum ekki eiginlegt að öllu leiti sem slíkt. Þar með talin samræmd próf eins og ,,Písa"
Getur þetta talist vera eðlilegt?
Samtal - Halla Kjartansdóttir
Á sínum tíma voru helstu rökin fyrir sjálfstæði Íslands sótt í sjálft tungumálið - íslenskuna. Hún væri móðurtungu Norðurlanda og hefði alið af sér bókmenntir sem væru einn af hornsteinum...

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)