Besta ríkisstjórn á Íslandi til þessa

  • Nokkur atriði af því sem ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu gerði:

• Afnámu sérstök lífeyrisréttindi ráðherra og þingmanna sem sett voru þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni til heiðurs.

Jóhanna og Steingrímur• Breyttu lögum um Seðlabankann. Þá var í fyrsta sinn í sögunni gerð hæfniskrafa til Seðlabankastjóra sem fram til þess dags komu flestir úr stjórnmálum með skelfilegum afleiðingum fyrir okkur öll.

• Settu á sérstakan hóp sérfræðinga úr Seðlabankanum og utan hans til að leggja mat á efnahagslífið með tilliti til vaxta

• Breyttu lögum um skipan dómara sem komu í veg fyrir vina- og ættingjaráðningar í stöðu dómara

• Verðbólga fór úr 20% í 3% á kjörtímabilinu.

• Vextir lækkuðu úr 10% í 5% á kjörtímabilinu

• Halli á rekstri ríkissjóðs fór úr 216 milljörðum í núll á kjörtímabilinu. (Náðu þeim árangri með því að afla tekna til jafns við óhjákvæmilegan niðurskurð).

• Sérstakur þrepaskiptur tekjuskattur var lagður á, því hærri sem launin voru því hærri skattprósenta.

• Hækkuðu ekki skatta á lægstu laun

• Lögðu á auðlegðarskatt

• Endurgreiddu um þriðjung af vöxtum sem fólk greiddi af húsnæðislánum sínum

• Settu 12 milljarða í sérstakar vaxtabætur

• Hækkuðu almennar vaxtabætur

• Gripu til ýmissa aðgerða sem tugþúsundir heimila nýttu sér og eru verðlagaðar á um 85 milljarða króna

• Opnuðu nýjar leiðir fyrir ungt fólk til að hefja
aftur nám í stað þess að vera án atvinnu. (Nærri 1.500 nýir námsmenn fóru í Háskóla Íslands vegna þeirra aðgerða).

• Tóku upp víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjar leiðir til náms fyrir ungt fólk

• Vörðu atvinnu með því að auka tekjur í stað þess að skera endalaust niður

• Settu sanngjarnt veiðigjald á útgerðina fyrst allra þjóða

• Læstu þrotabú gömlu bankanna inni í landi með lagasetningu í mars 2012. Án þeirra laga væri ekki hægt að semja um lausn á uppgjöri þrotabúanna. Framsókn og íhaldið greiddu atkvæði á móti
lagasetningunni.

• Settu lög um hvernig á að standa að sölu fjármálafyrirtækja í eigu eða hlutaeigu ríkisins til að koma í veg fyrir aðra einkavæðingu. Íhaldið og framsókn greiddu atkvæði á móti.

• Sögðu upp öllum aukasamningum við starfsfólks stjórnarráðsins, t.d. vegna notkunar á bíl og fleira. Aðeins greitt samkvæmt reikningum eftir það

• Skáru verulega niður í utanlandsferðum ráðherra, þingmanna og embættismanna

• Aðeins formenn þingmanna fóru erlendis á fundi og varamenn fóru ekki í þeirra stað

• Lækkuðu laun þingmanna og hæstu laun embættismanna

• Settu siðarelgur fyrir ríkisstjórn og ráðherra

• Fækkuðu ráðuneytum úr 18 í 8

• Fækkuðu ráðherrum úr 12 í 8

• Gerðu umhverfisráðuneytið að fullbúnu öflugu ráðhuneyti

• Settu fram og samþykktum áætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda

• Breyttu lögum um þingsköp Alþingis sem juku mjög vægi minnihlutans

• Fækkuðu þingnefndum

• Buðu stjórnarandstöðunni upp á formennsku í nefndnum

• Breyttu gjaldþrotalögum til að hjálpa því fólki sem komst ekki undan gjaldþroti

• Efldu fjármálaeftirlitið á kostnað bankanna

• Breyttu lögum um bankastarfsemi m.a. til að gera lágmarkskröfur um hæfni stjórnenda þeirra sem ekki hafði verið gert áður

• Lækkuðu dráttarvexti

• Breyttu reglum íbúðalánasjóðs til að draga úr greiðslubyrði heimila

• Gerðu umfangsmikla kjarasamninga í miðri kreppunni árið 2011

• Náðu að halda friði á vinnumarkaðinum allt kjörtímabilið þrátt fyrir alla erfiðleikana

• Juku framlög til velferðarmála úr 6,8% af landsframleiðslu í 7,8%

• Fjölguðu framhaldsskólum til að auka námsframboð fyrir ungt fólk

• Minnkuðum atvinnuleysi úr tæpum 10% í 4%

• Sendu AGS úr landi fyrr en áætlað var í upphafi

• Byrjuðu að endurgreiða lán sem norðurlöndin veittu okkur

• Endurgreiddum Færeyingum allt það sem þeir lánuðu okkur af rausnarskap sínum

• Losuðu okkur undan hryðjuverkjalögum sem Bretar settu á okkur undir hægristjórninni

• Héldu heilbrigðiskerfinu gangandi sem var ekkert sjálfsagt að hægt væri að gera

• Gerðu samkomulag við stjórnendur og starfsfólk Landspítalans um aðhald í rekstri til fjögurra ára og síðan uppbyggingu m.a. nýtt sjúkrahús

• Settu nokkrar stórframkvæmdir í gang í vegamálum

• Samþykktu og fjármögnuðu að fullu sérstaka fjárfestingaráætlun sem núverandi ríkisstjórn sló af

Hæddust ekki að almenningi

• Gerðu ekki grín að mótmælendum

• Kvörtuðu ekki undan gagnrýni, heldur svöruðu henni með rökum

• Létu vinna ótal greiningar og skoðanir á stöðu almennings, nánast alltaf í samráði við aðra stjórnmálaflokka

• Veittu stjórnarandstöðunni aðgang að efnahagsráðgjöfum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum við að skoða og gera úttektir á hugmyndum og tillögum sem andstaða vildi láta gera.

Nokkuð gott. Ekki satt?".


mbl.is Baráttan verður snörp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. október 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband