Sýndartillaga felld í borgarstjórn

  • Keppendur um forystusætið reyna þessa daganna að slá um sig
    *
  • Áslaug Friðriksdóttir sem er einn keppandinn um forystusætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar
    *
  • Þrátt fyrir að vera ekki svæsnasti keppandinn í hægri mennskunni, þá skína samt í gegn hægri viðhorf hennar.

Hún kvartar undan því að útsvarið sé að sliga íbúa borgarinnar. En rétt væri að minna á þá staðreynd að flokkur hennar er lengstum hefur ráðið landsmálunum hefur komið því þannig fyrir að mjög stór hópur fólks í góðum efnum greiðir ekki útsvar.

Það eru þeir sem greiða aðeins fjármagnstekjuskatt. Hverjir eru það, það eru t.d. langflestir atvinnurekendur og svo nefndir fjárfestar. Sama á við um fyrirtækin sjálf sem greiða heldur ekki útsvar.

Áslaug segir orðrétt:
„Meginþorri borgarbúa vill fá að vera í friði og komast í gegnum sín daglegu verkefni án þess að ákvarðanir í borgarstjórn séu þar að flækjast fyrir. Þeir eru ekki kröfuharðir. Það eina sem þeir vilja er að almenn þjónusta virki. Sveitarfélag hefur ekki svo flóknum skyldum að gegna. Megináherslan á að vera að aðstoða fólk að komast leiðar sinnar, hreinsa, sópa og salta götur og stíga eftir þörfum og sinna viðhaldi gatnakerfisins. Sinna sorphirðu þannig að vel sé, veita öldruðum og fötluðum mannsæmandi þjónustu. Tryggja að skólakerfið veiti börnum nauðsynlega menntun og leikskólabörnum vist svo foreldrar komist til vinnu sinnar. Þetta er ekki flókið“.

Því miður er ekki hægt að stækka myndina hér. 

Sannleikurinn er jafnan sagna bestur.

 
Mynd frá Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. EggertssonVakta

Ég hlakka til kosninganna í vor - og svo er vonandi um fleiri. Vona líka að umræðan verði málefnaleg og byggi á staðreyndum. Ýmsir hafa verið að spyrja: hvernig...

Sjá meira

M.ö.o. öll félagsleg þjónusta borgarinnar skal vera í algjöru lágmarki að mati þessa keppanda. Væntanlega hafa aðrir keppendur um efsta sætið svipuð viðhorf hvað það varðar. En borgin hefur verið undanfarin ár verið að bæta þjónustu sína við almenning í hægum skrefum en markvissum.

Þá er vert að rifja það upp eins og myndin sýnir reyndar, að rekstur borgarinnar hefur ævinlega staðið tæpt þau ár sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið fyrir borgarstjórninni og þjónusta við almenning ætíð í algjöru lágmarki.

Ekkert lát er á því hvernig borgarstjórn seilist í veski og pyngjur borgarbúa en í staðinn er þjónustan af skornum skammti. Hvernig stendur á því að þegar íbúar borgarinnar borga meira en nokkurn tíma áður í borgarsjóð að þjónustan sem þeim stendur til…
VISIR.IS
 

mbl.is Tillaga sjálfstæðismanna felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilegt er, að ríkisvaldið mismunar fólki alvarlega

  • Það er ekki bara í hlutfallsgreiðslum fólks í skatta, en staðgreiðsla skatta 2018 er reiknuð í tveimur þrepum. 

Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 893.713 kr. 36,94%  Af fjárhæð umfram 893.713 kr. 46,24%, allt greitt af brúttólaunum + 15,5% og nær 7% sem launafólk greiðir í tryggingagjöld en fyrirtækin standa skil á samkvæmt samningum þar um, stutt með lagasetningu.

Grái herinn 1

Síðan er það hópur fólks sem greiðir aðeins 20% í fjármagnstekjuskatt af nettólaunum sínum í heildarskatta rétt eins og lögaðilar.

Þá er ótalið hvað fólk í mismunandi atvinnu- og starfsgreinum þarf að skila mismunandi hlutfalli af virði vinnu og framleiðslu sinnar í virðisaukaskatt. Þetta er einnig mjög alvarleg mismunun.

Þessi mismunun heldur síðan áfram þegar fólk er komið á eftirlaun. Í mörgum tilfellum er lífeyrisréttur launafólks að litlu gerður hjá fólki sem hefur greitt í lífeyrissjóð 1. janúar 1970 og margir miklu lengur. 

Er þá eftirlaunaréttur fólks skorinn niður hjá þessu fólki. En þeir sem hafa komið sér hjá því að greiða í þessa sjóði og jafnvel starfað svart eru verðlaunaðir.

Þetta er utan við stærsta galla lífeyrissjóðakerfisins sem sést greinilega ef um gift fólk eða sambýlisfólk er að ræða.

Þar sem annar makinn starfar iðulega á heimili þessa fólks til að annast um uppeldi barna þeirra hjóna. Laun beggja auðvitað sameiginleg heimilislaun. Auk þess sem láglaunamaður heldur áfram að vera láglaunamaður á eftirlaunum.

Nú loksins kemur fram eðlileg athugasemd ASÍ um hvernig einhleypu eftirlaunafólki og hjónfólki er alvarlega mismunað.

Einnig er það hrópandi að samtök eldri borgara eða ,,grái herinn" sagði ekki eitt einasta andmælaorð.

 


mbl.is Segja mismunað eftir hjúskaparstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilegt er, að erlent ferðafólk greiði kostnað af veru sinni á Íslandi

  • Það ber svo undarlega við, að samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakopsdóttur, á ferðaþjónustan áfram að njóta ríkisstuðnings í formi lægri virðisaukaskattaskila erlendra ferðamanna á Íslandi.

farþegaflugvél

Alltaf eru að berast fréttir af gríðarlegum kostnaði ríkissjóðs og sveitarfélaga vegna þessa ferðamannastraums. Því er þetta er mjög furðulegt.

Talið er að aðeins 40 milljarðar skili sér til ríkis og sveitarfélaganna vegna ársins 2017 en kostnaður greinilega miklu meiri.

Hugmyndin er að taka upp komugjöld fyrir alla sem fara um íslenska flugvelli sem bæði erlendir ferðamenn og íslenskir greiða. Allt samkvæmt EFTA reglum.

rútubílar

Eðlilegt er að erlendir ferðamenn sem hingað koma séu ferðatryggðir.

Slík trygging stæði undir kostnaði þeirra sem lentu inn á heilbrigðis-stofnunum á Íslandi og leitarkostnaði ef það þyrfti að leita að þeim ásamt öðru tilfallandi eftir ákveðnum reglum.

Eðlilegt væri að þetta komugjald stæði einnig undir iðgjöldum fyrir slíkar tryggingar.

Það væri að sama skapi eðlilegt að slíkar tryggingar yrðu reglulega boðnar út og þá á Evrópska efnahagssvæðinu. 


Þá er auðvitað eðlilegt að ferðafólk standi undir eðlilegum vegagjöldum. Ef ekki með venjulegum virðisaukaskatti þá með því að innheimta slíkan skatta af þeim fyrirtækjum sem leigja út bíla hvort sem það væru venjulegir bílaleigubílar og eða fólksflutningabílar af öllum stærðum.

Slíkar tryggingar myndu síðan gera upp sjúkrahúskostnað og ákveðinn leitarkostnað til björgunarsveita ásamt ýmsum öðrum eðlilegum kostnaði sem upp kæmi.

Það er fullkomlega óeðlilegt að venjulegir mörlendingar standi undir verulegum kostnaði vegna erlendra ferðamanna á Íslandi og starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja


mbl.is Mikil fjölgun í Fjaðrárgljúfri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti ASÍ virðist vera að klaga formann VR

  • Greinilegt er að formaður VR er óhress með vinnubrögð forseta ASÍ
    *
  • Í þessari frétt kemur fram að Gylfi Arnbjörnsson klagar Ragnar þór til trúnaðarmannaráðs VR í formlegu bréfi
    *
  • Reyndar ansi fyndið.

Ragnar Þór

Þar kemur m.a. fram:
„Hvað varðar fullyrðingar Ragnars Þórs um að ég standi í leynilegum viðræðum án umboðs við stjórnvöld og atvinnurekendur um að hafa af aðildarfélögum ASÍ samningsréttinn þá vísa ég þeim fullyrðingum alfarið til föðurhúsanna sem rakalausum ósannindum.“

  • Það hlýtur að vera einhver og jafnvel verulegur sannleikur í því sem Ragnar Þór segir um forseta ASÍ
    *
  • Það er reyndar staðreynd að ASÍ hefur formlega séð ekkert samningsumboð fyrir hönd verkalýðsfélaganna og ekki heldur landsamböndin sem mynda ASÍ, nema að félögin hafi veitt slíkt umboð formlega.

Breytir þá engu þótt einhverjir félagsmenn VR séu í miðstjórn ASÍ sem ekki geta veitt ASÍ slíka heimild fh. VR. Miðstjórn ASÍ getur ekki komist framhjá stjórn og trúnaðarmannaráði VR. Það er áherslumunur á stefnu ASÍ og VR um fjölmörg kjaramál.

  • Forseti ASÍ getur því ekki farið á fundi við stjórnvöld fyrir hönd félaganna í ASÍ.

En það er morgunljóst að heildar samtök atvinnurekenda kjósa að eiga samskipti við miðstjórn ASÍ eða forseta þess og einnig stjórnvöld. Það hefur gefist þessum aðilum vel undanfarin ár.

En ef Gylfi hefur ekki haft umboð til þess að tala fyrir hönd VR eða annarra félaga, að þá á hann ekkert með að gera það. Hann verður að tilkynna aðilum um umboðsleysi sitt.

Það hefur lengi legið fyrir að þessi fámenni hópur starfsmanna stéttarfélaga og landsambanda þeirra sem kýs Gylfa til þessa hlutverks þarf að fara að víkja fyrir yngra fólki sem hefur raunveruleg tengsl við vinnandi fólk á Íslandi.

Það hefur einnig legið fyrir að þessi atvinnumannahópur og forystulið ASÍ á í ýmsum óformlegum viðræðum við samtök atvinnurekenda á öllum tímum.

Það er einnig augljóst að þar fara á milli ýmis viðhorf milli manna er hafa mikil áhrif á kjaraviðræður þessara aðila. M.ö.o. þeir þekkja viðhorf hvers annars og strax er tekist á um ásættanlega niðurstöður sem iðulega fara á skjön við vilja félaganna.

Það eru nánast engar líkur til þess, að VR feli ASÍ umboð til þess að semja f.h. VR.

„Hvað varðar fullyrðingar Ragnars Þórs um að ég standi í leynilegum viðræðum án umboðs við stjórnvöld og atvinnurekendur um að hafa af aðildarfélögum ASÍ samningsréttinn þá vísa ég þeim fullyrðingum alfarið til föðurhúsanna sem…
MBL.IS
 

mbl.is Sakar Ragnar um rakalaus ósannindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þetta er ekki siðleysi í stjórnmálum, þá er bara allt leyfilegt.

  • Ég er eiginlega viss um að Eyþór nær kjöri hjá félögum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
    *
  • Því það er fólk sem ber mikla lotningu fyrir svona peningamönnum eða bröskurum. Nú kallaðir fjárfestar eða athafnastjórnmálamenn.  

Eyþór Arnalds

Ef svo fer sýnir það auðvitað siðfræði þessa fólks í Sjálfstæðisflokknum og raunar einnig frambjóðandans.
 
Eyþór er bundinn fjölmörgum hagsmunaböndum sem gera hann að mínu mati óhæfan til að vera borgarstjóri.

Eyþór er fjárfestir um leið atvinnurekandi og aðili að fjölmörgum fyrirtækjum. Hann er skráður fyrir fjórðungshlut í einarhaldsfélagi Morgunblaðsins. 

Nýtur væntanlega stuðnings þess enda myndi það smellpassa inn í hagsmunagæslu myndina.

Það er bara rétt eins og tímar Ólafs Thors séu komnir aftur. 

 


mbl.is Eyþór vill leiða í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannur vinstri maður

  • Ef eitthvað getur verið vandasamt í lífinu er það að lifa sem kristinn maður og sannur vinstri maður. Það er enginn fjölskyldumaður eyland í lífi sínu
    *
  • Það verður enginn hvorki vinstri maður eða kristinn sem er af sama meiði,eingöngu af lestri fræðibóka um þessi málefni eða að mæta á einhverjar samkomur

pepe

Sannur vinstri maður

Pepe hefur allt sitt líf tekið hagsmuni alþýðunnar fram yfir eigin þarfir.

Hann hefur allað tíð lifað við sömu kjör og fátækur almúginn í Úrúg­væ.

Jose Mujica eða Pepe eins og hann er kallaður hef­ur snert hjörtu margra. Þessi sann­fær­andi fyrr­um for­seti Úrúg­væ lif­ir óhefðbundnu lífi að margra mati.

Hann hef­ur haldið í sann­fær­ingu sína og auðmýkt þrátt fyr­ir mikla vel­gengni sem stjórn­mála-aðgerðasinni.


mbl.is Fátækasti forseti heims gefur 10 ráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband