Færsluflokkur: Kjaramál

Eiga opinberir starfamenn að hafa skertan samningsrétt?

  • Er þetta virkilega skoðun Katrínar, að opinberir starfsmenn eigi aldrei að geta haft alveg frjálsan samnings- og verkfallsrétt?
    *
  • Er það virkilega þannig að skoðanir Katrínar dansi algjörlega eftir stefnu samtaka atvinnurekenda og margra forystumanna innan ASÍ?

„Það er svo hæg­ur vandi að rifja upp að fjár­málaráðherra sendi í fyrra til­mæli til allra stjórna op­in­berra fyr­ir­tækja um að fara hóf­lega fram í launaþróun sinna stjórn­enda,“ seg­ir Katrín og bæt­ir við að hið op­in­bera eigi ekki að vera leiðandi í launaþróun, held­ur fylgja launaþróun í land­inu. Hún vís­ar til fjár­málaráðuneyt­is­ins um ít­ar­legri svör, en þar sé fram­kvæmd starfs­kjara­stefnu rík­is­ins að finna.

Aðspurð hvort full­trú­ar rík­is­ins muni ít­reka til­mæli fjár­málaráðherra frá í fyrra við stjórn Hörpu svar­ar Katrín: „Ég hef rætt við fjár­málaráðherra að hann ræði við stjórn­ir op­in­berra fyr­ir­tækja um þessu mál, þar á meðal stjórn Hörpu.“

Stjórn Hörpu sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu í dag þar sem kem­ur fram að stjórn­end­um þyki mjög leitt að sjá á eft­ir góðu fólki sem hafi starfað þar til lengri eða skemmri tíma en tel­ur sig ekki eiga sam­leið með fyr­ir­tæk­inu áfram.

  • Það er auðvitað þannig, að eðlilegt er að formaður Hörpu taki pokann sinn. Það er auðvitað hann sem ber alla ábyrgð á þessu háttarlagi Hörpustjórnenda
    *
  • Það er algjörlega augljóst að ég virðist vera algjörlega ósammála Katrínu um hver samnings- og verkfallsréttur opinberra eigi að vera
    *
  • Það er ekki beinlínsis hlutverk ríkisins að stuðla að sátt á vinnumarkaði, svo það sé sagt
    *
  • Sá pilsfaldakapitalismi er ekki á stefnuskrá stjórnmálaflokks sem telur sig vera vinstriflokk
    *
  • Aðilar atvinnulífinu, launfólk og atvinnurekendur hinsvegar eiga að axla þá ábyrgð
    *
  • En þarna var um algjöra valdníðslu að ræða.
MBL.IS
 
„Hlutverk ríkisins er að stuðla að sátt á vinnumarkaði og stöðugleiki á vinnumarkaði verður ekki settur á ábyrgð launalægstu hópanna,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í samtali við mbl.is.

mbl.is Ríkið stuðli að sátt á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættulegasti maður veraldar

  • Það er eins og forseti Bandaríkjanna sé einvaldur. Það ætti öllum að vera ljóst hversu hættulegur þessi forseti er
    *
  • Bandaríkin eru pottur og pannan í öllum styrjöldum sem fara fram í veröldinni
    *
  • Hún er mikil sök Bandaríkjanna í Jemen og raunar allsstaðar í arapaheiminum.
RUV.IS
 
Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur þjóðirnar sem undirrituðu kjarnorkusamkomulagið við Íran að standa við það þótt Donald Trump hafi í dag ákveðið að draga Bandaríkin út úr því. Federica Mocherini, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins,...

mbl.is Beita Írana þvingunum á nýjan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setu-verkfall

  • Það hefur verið talinn réttur launafólks ef atvinnurekandinn stendur ekki skil á launum fólks á réttum tíma geti launafólk bara sest niður
    Sólveig Anna formaður Eflingar
    *
  • Beðið á fullum launum uns greiðslan skilar sér. Flóknara er það ekki. A.m.k. væri eðlilegt að Efling stéttarfélag kannaði málið
    *
  • Þetta er auðvitað óvenju hrottaleg ósvífni af hálfu atvinnurekandans sem líðst ekki á venjulegum vinnustöðum.

mbl.is Starfsfólk verði ekki látið bíða stundinni lengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falið leyndarmál

Búsetukostnaður fólks hjá Búseta er það mikill, að góður helmingur eftirlauna eftirlaunafólks fer í mánaðar-greiðslur af tiltölulega temmilegum íbúðum.

Búsetablokk

Síðan gerist það iðulega að annar makinn fellur frá og þá er eftirlifandi einfaldlega kominn á götuna.

Því þá er það staðreynd að sá sem stendur eftir, ræður ekki við þessar mánaðargreiðslur.


mbl.is Helmingur tekna tekjulágra í húsaleigu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróðurs meistarar í blaðamanna stétt.

  • Mikilvægur sannleikur er sagður í þessari grein er lýsir vel hvernig ákveðnir hagsmuna aðilar halda uppi áróðri til suðnings sínum málstað
  • Blaða- og fréttamenn eru iðulega handbendi hagsmuna afla
    *
  • Það er ekkert svart-hvítt í þessum heimi
    *
  • Það er engu að treysta af því sem herveldin halda fram. Breytir þá engu hvert herveldið er.
NEISTAR.IS
 
Þroskað lýðræðissamfélag er í stakk búið til að halda uppi umræðum um jafnvel mestu hitamál og mælikvarði á styrk tjáningarfrelsisins er ekki einungis þau lög og reglur sem gilda um það, heldur einnig hvernig leikmenn í samfélaginu takast á við ágreining. Hér skiptir við...

mbl.is „Hjálpar Evrópuríkjum meira en okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launahækkanir valinna forstjóra

Launahækkanir forstjóra stærstu fyrirtækja á síðasta ári námu allt að 1 milljón króna á mánuði.

• Forstjóri N1 hækkaði í launum um 1 milljón á mánuði - Mánaðarlaun 5 milljónir.

• Forstjóri Landsvirkjunar hækkaði í launum um 800 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 2,7 milljónir.

• Forstjóri Eimskips hækkaði í launum um tæp 700 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 8,6 milljónir.

• Forstjóri Símans hækkaði í launum um 433 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 4 milljónir.

• Forstjóri Isavia hækkaði um 400 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 2,1 milljón.

• Forstjóri Reita hækkaði í launum um 400 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 3,7 milljónir.

• Forstjóri HB Granda hækkaði í launum um 330 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 4,2 milljónir.

• Forstjóri Sjóvá hækkaði í launum um 242 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 4,1 milljónir.

• Forstjóri Íslandspósts hækkaði í launum um 252 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 1,7 milljónir.

• Forstjóri Landsnets hækkaði í launum um 180 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 1,8 milljónir.

• Útvarpsstjóri hækkaði í launum um 250 þúsund á mánuði - Mánaðarlaun 1,8 milljón.

Ef einhverjir þyrftu að fara á námskeið um fjármálalæsi eru það þessir aðilar.

Vilhjálmur BirgissonVilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir launahækkanir til handa forstjórum stærstu fyrirtækja sorglegar og „ógeðslegt misrétti“. Þessi listi kemur frá Vilhjálmi

 


Enn hvað það verður gott og notalegt að búa í borginni næsta kjörtímabil

  • Mikið erum við Reykvíkingar vinsælir, næstu fjögur ár verða þægileg

Nú ku 17 aðilar hafa tilkynnt um framboð sitt um að manna borgarstjórnina. Sumir gera það með söng og hljóðfæraslætti á meðan aðrir fara með veggjum og hafa frekar hljótt um þá ætlan sína.

A.m.k. þrjú þessara framboða bjóða upp á algjör kraftaverk sem flestir með æfðan vöðva milli eyrnanna sjá, að þessir aðilar geta engan veginn haft vald á að framkvæma eða ætla öðrum að framkvæma verkið.

Í rauninni fer nú fram svipað leikrit eins gerist í náttúrunni er frjáls í karldýr skóginum dansa rúmbu fyrir kvendýrin og sýna þannig hvað þeir eru stórkostlegir á fengitímanum. Allt er gert fyrir lúkkið.

Eitt framboðið ætlar að byggja upp borgarlínu sem á að fara neðanjarðar á viðkvæmum svæðum. Ofanjarðar verða síðan ræktuð pálmatré. Greinilega er reiknað með öruggu fjárstreymi ríkissjóði. Því borgin ein og sér ræður ekki við svona verkefni.

Eitt framboðið ætlar að lækka skatta, sá flokkur hefur reyndar notað þetta trix í áratugi með góðum árangri án þess að þurfa nokkurn tíman að standa við það. Þá ætlar þessi aðili að fella niður fasteignagjöldin af okkur sem eru komin yfir 70 ára aldurinn og stórlækka verð á nýjum byggingalóðum. Loforð sem þýðir verulega hækkun á útsvari og verulega niðurfellingu á þjónustu borgarinnar.

Þriðji hópurinn ætlar að byggja 10 þúsund íbúðir á næsta kjörtímabili. Láta vegagjöld halda áfram í Hvalfjarðargöngum, en það verður ríkisvaldsins að taka ákvarðanir um vegagjöld. Þetta framboð ætlar að byggja brú yfir Faxaflóann.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

Það eru framdir glæpir í Sýrlandi og herveldin eru ábyrg fyrir þeim

  • Við í VG erum öll sammála um að Ísland eigi að segja sig úr NATÓ sem fyrst og stefna VG í friðar- og utanríkismálum hefur ekkert breyst
    *
  • VG hefur ekki gefið neinn afslátt á þeirri stefnu sinni.

VG er ekki með nema 17% vigt á Alþingi og verður að sætta sig við, ef flokkurinn vill taka þátt í ríkisstjórn að starfa með NATÓ-flokkum sem eru með 83% þjóðar að baki sér og beygja sig undir stefnu sem þessir NATÓ-flokkar hafa þegar mótað sameiginlega á Alþingi

En jafnvel þótt meirihluti þjóðarinnar væri sammála þessari stefnu VG. og hefði lýst því yfir í formlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá hef ég persónulega enga trú á því að íslenska þjóðin kæmist upp með það.

Frelsi þjóðarinnar er m.ö.o. alvarlega takmörkuð af ofríki og hagsmunum Bandaríkjanna og af ESB. Þetta eru í raun staðreyndirnar.

Ísland er inn á miðju áhrifasvæði ESB og Bandaríkjanna, það eru þeir aðilar sem hafa öll örlög Íslands algjörlega í hendi sér. Þetta áhrifavald gefa þessir aðilar ekki frá sér.

Þetta sést líka mjög skýrt á allri utanríkispólitík íslendinga. Einnig sést það á því að stórveldið er með stöðug inngrip í íslensk stjórnmál.

Að halda að Ísland geti siss svona sagt sig úr NATÓ og neitað að fara að samþykktum þess er því miður hreinn barnaskapur.

Ekki myndi það bæta stöðuna ef Bretar kæmu til baka í EFTA og gerðust aðilar að EES, því þá kæmi þriðji áhrifavaldurinn.

En það þýðir ekki, að það sé ástæða til þess að gefast upp í baráttunni gagnvart þessum aðilum og stríðsrekstri þeirra. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að berjast.

Íslenska þjóðin er eins og hvert annað peð út í ballarhafi og stórveldið gerir allt það sem það vill með Ísland þótt herveldið kjósi að fara með vald sitt í friði við þjóðina sem lengst.

  • Nágrannalönd Íslands munu aldrei taka afstöðu með íslensku þjóðinni gegn Bandaríkjunum.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Finna fyrir reiði þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG þarf meiri styrk og þar með fleiri atkvæði til að geta komið fleiru góðu til leiðar fyrir almenning.

  • Það eru ansi margir sem átta sig ekki á þeirri staðreynd, að VG er meira og minna eins Palli litli sem var einn í heiminum
  • *
    Hvað viðhorf snertir í mörgum málum á Alþingi. Breytir þá engu hvort flokkurinn er í ríkisstjórn eða utan stjórnar.

Ef flokkurinn er innan ríkisstjórnar er vissulega gerð einhver málamiðlun vegna sérstöðu VG, sérstaklega í umhverfismálum, í utanríkis- og friðarmálum, í heilbrigðismálum, í skólamálum og um leið í velferðarmálum almennt.

Svo virðist sem almenningur haldi að VG sem er með innan við 17% fylgi í síðustu kosningum og 11 þingmenn kjörna geti gert kraftaverk á öllum þessum sviðum eins og ekkert sé einfaldara. Nær daglega. Í umræðunni segjast allir hafa kosið VG, nokkuð sem fær ekki staðist.

Hvenær sem er, geta aðrir flokkar á Alþingi myndað meirhluta um stefnu sem fer algjörlega þvert á stefnu VG, t.d. í utanríkismálum. Þar er VG í 17% minnihluta.

Nú er VG í stjórnarsamstarfi með gömlu valdaflokkunum sem samanlegt eru með 24 þingmenn. Í þessu samhengi sjá allir skynsamir aðilar að VG hefur tekist að teygja gömlu flokkana ótrúlega nærri sinni stefnu.

Jafnvel í friðarmálum er sést greinilega á varfærni utanríkisráðherrans í orðræðu sinni.

Því er það mjög sérkennilegt að félagar í VG er eiga að vera mjög meðvitaðir um þessa stöðu, skuli ekki átta sig á þessari staðreynd.

Því alla daga heyrast þær kröfur hér á þessu rabbi hér, að þingmenn flokksins og ráðherrar geri stöðugt þau kraftaverk að láta hina flokkanna í ríkisstjórninni og á Alþingi skipta um stefnu og viðhorf á jafn auðveldan hátt eins og að skipta um sokka.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Flókið fyrir Vinstri græn að styðja NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkamenn í valdastólum herveldanna

  • Furðulegir tímar og fasisminn veður fram sem aldrei fyrr

Nú þessa daganna vaða fram þau herveldi sem telja sig hafa löggæsluvald yfir öðrum þjóðum. Nú varpa herveldin þrjú sprengjum yfir eitt af einræðisríkjum heimsins sem á í blóðugri styrjöld við þessi sömu ríki. Með stuðningi fyrrverandi stórveldis og einveldis þar sem lýðræði er enn lítt þroskað.

  • Þessi hefndar árás bitnar nær eingöngu á saklausu og stríðsþjáðu fólki.

Í öllum þessum herríkjum ráða hagsmunaöfl gjörðum ríkisstjórna þessara ríkja sem eru algjörlega háð þessum ólýðræðislegu öflum. Nákvæmlega engu er hægt að treysta sem sannleika sem þessir aðilar segja.

Hálmstráið sem þau afsaka sig með er, að sagt er að Sýrlandsstjórn hafi látið varpa eiturefna-sprengjum yfir saklausa borgara. Ef satt er, væri það auðvitað skelfilegur glæpur gegn íbúum þessa lands. En þessi þrjú ríki hafa auðvitað ekkert umboð frá almenningi heimsins til að hafa með löggæslu að gera.

Engin ríki hafa sýnt almenningi í fjarlægum löndum jafn mikla grimmd í gegnum tíðina og Frakkland, Bretland og Bandaríkin hin síðari árin. Jafnvel fasisminn í Þýskalandi og í Rússlandi er bara smávandi í slíkum samanburði og er þá mikið sagt.

  • Þetta eru ríkin sem telja sig vera fyrirmyndar lýðræðisríki og sérstaka boðbera kristninnar.En gefa ævinlega skít í öll slík gildi þegar það hentar þeim.

Rifjum upp „gullnu regluna“ Fyrst eins og hún birtist hjá Lúkasi: 
„Eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo skuluð þér og þeim gera.“ (Lúk. 6:31) Með öðrum orðum, að við eigum ekki að launa illt með illu heldur koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur.

Gullna reglan svokallaða er ein megin undirstaða kristinnar siðfræði. Hana er að finna í ræðu Jesú Krists í Matteusarguðspjalli sem kölluð er fjallræðan.

Gullna reglan hljóðar þannig með orðum Jesú:
„Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“ Síðan bætir hann við: „þetta er lögmálið og spámennirnir“ - eða með öðrum orðum, þetta er öllum öðrum boðum mikilvægara.

  • Með þessari einföldu reglu gerir Jesús umhyggjuna fyrir náunganum að kjarnanum í lífi hvers kristins manns. Enginn getur fylgt Jesú nema með því að sýna náunganum kærleika í verki.

Gullna reglan eins og hann setti hana fram er byltingarboðskapur og sem slíkur er hann undirstaða allra hugmynda okkar nútímamanna um jafnrétti, manngildi og mannréttindi. Jesú var drepinn fyrir boðskap sinn af fasistaöflum.

  • Svipuð regla er í nær öllum megin trúarbröðum heimsins.

Bara þetta segir okkur, að háttarlag þessara ríkja eru algjörlega ókristilegt og einnig viðbrögð NATÓ og ESB. Í raun er þetta hreinn fasismi af verstu gerð. Það er auðvitað löngu ljóst að flest ríki heimsins eru algjörlega undir hælnum á valdamesta stórveldinu.

Heimsvaldastefna sem er í algjörri andstöðu við tærustu viðhorf vinstri manna, er eiga sér rætur í boðskap smiðssonarins eða iðnemans forðum.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.
 
 

mbl.is Heimurinn stendur aðgerðalaus hjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband