Færsluflokkur: Kjaramál
11.11.2018 | 15:23
Ekki er allt sem sýnist
- Það var eins gott, að þetta var ekki notaður salernispappír frá
þessum manni með áberandi bremsuförum.
Það myndi a.m.k. vera eitthvað alvel orginal frá hans innstu rótum
og gæti verið gríðarlega verðmætt.
*
Sérstaklega ef fyrirbærið hefði nú verið sett upp á burstaða álplötu
og væri þannig hangandi uppi á vegg hjá fyrrverandi borgarstjóra.
*
Og ilmaði á sólskinsdögum
Segir Banksy-verkið bara plaggat | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.11.2018 | 23:27
Ekki vantar gífuryrðin
- Mér finnst Samherja forstjórinn vera heldur stóryrtur ef það er rétt sem kemur fram í þessum hluta fréttarinnar:
,,Málið var látið niður falla í tvígang. Fyrst vegna þess að heimild til að refsa lögaðilum vantaði í lögin fyrir mistök og svo vegna þess að ráðherra hafði láðst að samþykkja reglur bankans um gjaldeyrismál".
Hvaða ráðherra ætli það hafi verið?
Þetta þýðir í mínum huga, að Samherji var aldrei sýknaður af því máli sem sérstakur saksóknari og Seðlabankinn voru upphaflega að saka útgerðina um að hafa stundað.
Á endanum var Samherji sektaður en bæði héraðsdómur og Hæstiréttur töldu að í því hefði falist ólögleg endurupptaka málanna sem höfðu verið felld niður.
Samherji fór í þetta mál til að fá sektina niðurfellda og vann það mál
Samúð Bjarna hjá Samherjamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt 11.11.2018 kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.11.2018 | 12:19
Aumlegt áróðursbragð
- Könnun samtaka atvinnufyrirtækja á Íslandi er ansi grátbrosleg og varla marktæk sem opinber gögn
* - Ef slík könnun á að vera marktæk verður hún að vera gerð án þess að upplýst sé hverjir svara og gerð í samráði við verkalýðshreyfinguna.
En það er vitað að bóluhagkerfið er að láta undan einkum ef vextir hækka. Skýrasta dæmið er að bóluflugfélag gafst upp á dögunum. Í mörgum starfsgreinum mun það sama gerast þar sem öll uppbygging er byggð á lánsfé.
Þá hefur Drífa þegar bent á einn annmarka við þessa könnun. En þess ber einnig að gæta að í hverju svona fyrirtæki er starfsfólk að störfum, eðlilegt er að t.d. trúnaðarmaður verkalýðsfélagsins á hverjum vinnustað sé spurður. Einnig að viðhafðar séu fjölbreyttari spurningar til að varpa skýrari mynd á stöðuna.
Það er morgunljóst, að fyrirtæki sem ekki getur með eðlilegum hætti greitt starfsfólki laun svo dugi fyrir eðlilegum þörfum þess á að hætta störfum. Væntanlega hefur snarpur samdráttur áhrif á markaðslaunin, en það breytir því ekki að lágmarkslaunin þurfa að hækka verulega.
Setur spurningarmerki við orð SA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2018 | 14:43
Orð í tíma töluð
Mér finnst að ummæli Friðriku Benónýsdóttur séu orð í tíma töluð einkum þegar hún beinir orðum sínum að áberandi konum sem reyna að gera lítið úr öðrum konum sem skara fram úr.
Sérstaklega tiltekur hún nú Katrínu Jakopsdóttur en hefði getað nefnt til sögunnar Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrum forsætisráðherra einnig.
En auðvitað taka karlar þátt í þessum leik einnig og margir þeirra telja sig hafa hag að slíku hátterni þegar konur eiga í hlut. Einskonar valdabarátta. Bæði í opinberri umræðu t.d. á Alþingi eins og Jóhanna mátti þola og á samfélagsmiðlum.
En ég tek eftir því að Katrín nýtur fullrar virðingar þeirra sem á Alþingi sitja.
Ég veit að Katrín lætur engan vaða yfir sig og hún þarf ekki að skipta skapi gagnvart öðrum svo aðrir virði hana sem hana þekkja og eru í samskiptum við hana.
Hún hleypur heldur ekki eftir ýmsum gífuryrðum daganna. Hún lætur það einnig vera að dæma aðra.
Mér finnst einnig vænt um það, að VG er fyrst og fremst jafnréttisflokkur á alla kanta. Bentir óhikað á ójafna stöðu kynjanna en dregur einnig fram þá staðreynd að ójöfnuður ríkir fyrst og fremst milli stétta. Ójöfnuður sem þarf að eyða.
Ég lít svo á, að brek Steinunnar Ólínar geti ekki gert lítið úr Katrínu og ef hún gerir lítið úr einhverjum gerir hún mjög lítið úr sjálfum sér.
Allt virðist þetta atferli hennar gert til að selja fjölmiðilinn sem hún reynir að gefa út. Þar virðist vera gert er út á óánægjuvaðalinn í hversdeginum sem grasserar í samfélaginu sem eru ætíð á móti öllum sem einhverja ábyrgð bera.
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2018 | 20:15
Píratar er ekki stjórntækur flokkur.
- Það er ljóst að Píratar sem íslenskur stjórnmálaflokkur sem er í mótun og samsettur af fólki úr mörgum áttum stefnulega séð. Er að ganga í gegnum enn eitt óróaskeiðið af mörgum.
Margir hafa verið að ásaka VG fyrir að haf myndað ríkisstjórn með gömlu hægri valdaflokkunum. Áttu Píratar að bjarga málum. Allir geta séð að slíkt var ógjörlegt með öllu.
Þeir bentu á möguleika til þess að mynda 32 þingmanna meirihluta á Alþingi með Pírata innanborðs. Og það eftir meðferð þessa flokks á stofnanda sínum og leiðtoga til margra ára. Þar sem hnífum var svo sannarlega beitt í bak menntorsins.
Nú er greinilega heitt á könnunni þar sem eitraður eineltismjöður er svo sannarlega bruggaður. Vélráðin mótuð í skuggsælum vistaverum eins sjá má af þessari frétt.
http://www.visir.is/ /atli-segir-sig-ur-pirotum-eg-get-ekki
Vissulega sorglegt, því eitthvað virðist vanta upp á félagsþroskann á þeim bæ.
Það eru vissulega vaxtaverkir í öllum nýjum stjórnmálaflokkum það hafa báðir vinstri flokkarnir rekist ámeð miklum sársauka oft á tíðum á sínum 20 ára líftíma
Atli Þór hættir í Pírötum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2018 | 13:10
Vissulega er mikilvægt að læra af reynslunni
- Það er eitt og annað sem hefur breyst launafólki í óhag einkum láglaunafólki
* - Því er nauðsynlegt að afnema það skattamisrétti sem viðgengst á Íslandi
* - Í skjóli Sjálfstæðisflokksins.
Hér er dæmi fengið að láni hjá Indriða Þorlákssyni um skattaþróun frá 2012 til 2016.
Fylgir dæminu mynd sem sýnir hvernir skattar hafa hækkað á láglaunafólki og lækkað á hálaunafólki. Sýnir einnig hvernig skattar hafa hækkað á eftirlaunafólki. Það þarf að pikka í myndina svo hún stækki.
Myndin sýnir að skattahækkair samtals í hverrri tekjutíund upp að þeirri sjöundu er á milli 1 og 2 milljarðar króna.
Níunda og neðri helft hinnar tíundu fengu lækkun um ca. einn milljarð hvor í sinn hlut en efst 5 % kasseruðu 9,5 milljörðunum á breytingunum.
Heildargróði og tap er svo að sjá í eftirfarandi mynd sem sýnir að hátt í 12 milljarðar hafa með skattabreytingum verið færðir frá hinum tekjulægri hópum til hinna tekjuhærri.
Breytingar á sköttum 2012 til 2016 | Indriði H. Þorláksson
Svona var 12 milljarða skattbyrði færð yfir á lágtekju- og millitekjufólk ...
Ekki megi glutra árangrinum niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2018 | 20:39
Sársaukinn vegna mistaka Loga kvelur Samfylkingarfólk, skiljanlega
Úrslit alþingiskosninga 2017:
- þingfl. D 49.543 25,2% -3,8% 16 þingmenn
* - Þingfl. V 33.155 16,9% +1,0% 11 þingmenn
* - Þingfl. S 23.652 12,1% +6,4% 7 þingmenn
* - Þingfl. M 21.335 10,9% +10,9% 7 þingmenn
* - Þingfl. B 21.016 10,7% -0,8% 8 Þingmenn
* - Þingfl. P 18.051 9,2% -5,3% 6 Þingmenn
* - Þingfl. F 13.502 6,9% +3,4% 4 Þingmenn
* - Þingfl. C 13.122 6,7% -3,8% 4 þingmenn
Margir eru með stór orð vegna veru VG í ríkisstjórn með tveimur hægri flokkum með sína 11 þingmenn. Jafnvel er talað um svik VG við kjósendur sína, með því að taka þátt í svona ríkisstjórn. E.t.v. eru þetta fyrst og fremst þeir sem ekki kusu VG en sérstaklega félagar okkar í Samfylkingunni.
Ég er einn af þeim sem varð argur vegna þessa. Ég hef hugsað mikið um þetta og hef reyndar komist að þeirri niðurstöðu að þetta hafi verið rétt ákvörðun ef hagsmunir þjóðarinnar eru hafðir í huga. En það má vel vera að flokkurinn tapi atkvæðum vegna þess í næstu kosningum.
Í mínum huga er staðan sú, að ef einhver hefur svikið er það Samfylkingin með sína 7 þingmenn og þannig komið Framsóknarflokknum í ráðuneytin. SF brást.
SF- er auðvitað en í sárum vegna þessara mistaka sinna. Stærstu mistökin eru auðvitað hjá kjósendum sem kýs fólk með vafasaman feril.
Það er ekki bara Bjarni, þarna er Guðlaugur enn, Sigríður og Ásmundur. Sigmundur Davíð í nýjum íhaldsarmi Framsóknar.
Það hefði verið ólíkt sterkari staða fyrir vinstrimenn að hafa 18 þingmenn samanlagt í rískistjórn með innbyrðis málaefnasamning gegn, 16 þingmönnum Sjálfstæðisflokks. Slík stjórn hefði í raun virkað sem tveggja flokka stjórn með hægri menn í minnihluta.
- Hægri stjórn lá á borðinu sem hefði verið: D+M+B+C= 35 þingmenn. Ég veit vel að SF reyna að telja fólki í trú um það að þessi mynd hefði ekki fyrir hendi
* - En það er bull og það veit Logi allra manna best. Maðurinn sem sífellt lýsir aðdáun sinni á núverandi forsætisráðherra og það í sjónvarpi.
Það er auðvitað löngu kominn tími til þess að vinstrimenn átti sig á þessari stöðu og hætti að láta sára SF-menn rugla sig í ríminu og aðra íhaldsmenn.
Einnig er mikilvægt að skoða þá staðreynd að vinstri menn hafa aðeins 18 þingmenn af 63 þingmönnum Alþingis eða vel neðan við þriðjung þingmanna. Almenningur kaus yfir sig hægri stjórn sem komið var í veg fyrir að yrði mynduð.
En siðferðilega er það auðvitað ótrúlegt að kjósendur skuli kjósa menn á Alþingi sem eru með óhreint mjöl í pokahorninu.
Sama má auðvitað segja um stjórnmálaflokka sem hampa slíkum aðilum. M.ö.o. það er ekki hægt að mynda ríkisstjórn í landinu án þess að hafa einhverja slíka með um borð.
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.10.2018 | 10:35
Gáfulegt eða hitt þó heldur
- Það getur hvert mannsbarna vitað það að eftir þetta langa hagvaxtaskeið sem þjóðin hefur búið við um mjög langt skeið mun draga úr þenslu á næstu misserum
* - Það þarf engan langskólagenginn dreng til að sjá það. Það blasir við.
Það vita einnig allir hverjar afleiðingarnar verða, þ.e.a.s. minnkandi vinna fólks og um leið færri krónur hjá launafólki er þýðir minni einkaneyslu sem hefur verið í toppi.
Íbúðaverð er þegar farið að lækka á höfuðborgarsvæðinu og efnahags umhverfið verður allt heilbrigðara. Það virðist vera greinilegt atferli hjá almenningi að hann hefur líklega dregið úr verslun.
- Stórvaxandi netverslun og um leið vaxandi erlend samkeppnir er farin að hrjá innflutningsverslun alvarlega og það er góðs viti. Það er þegar farið að lækka vöruverð og álagning kaupmanna hefur minnkað.
Ég held að almenningur sé minna skuldsettur en hefur verið eftir fyrri þensluskeið, það er annað mál með atvinnulífið sem virðist lítið hafa lært. Það hefur verið ótrúleg þensla og skuldsetning í verslun og í ferðaþjónustu svo það má búast við miklum hremmingum á þeim bæjum.
En hvað sem atvinnurekendur og bankamenn segja munu kröfur um aukinn jöfnuð eitt og sér ekki valda verðbólgu. Slíkt er ævinlega í höndum þeirra sem fara með peningavöldin í landinu.
Ég er ekki viss um að fyrirtækin geti svo glatt velt auknum kostnaði út í verðlagið. Það gerir þessi öfluga erlenda samkeppni í verslun.
Vaxtahækkun og aukið atvinnuleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2018 | 13:14
Varnarbarátta elítunnar
- Er vill halda í sína sérstöðu með ofurhá laun og hlutfallslega litlar skattagreiðslur til samfélagsins
* - En eru svo sannarlega í hópi þeirra sem gera mestu kröfurnar til samfélagsins.
Áróður yfirstéttarinnar hefur leitt til þess að nær allir fjölmiðlar hafa hellt sig yfir verkalýðsfélögin með órökstuddum og yfirgengilegum áróðri.
Þessi aðilar vilja óbreytt ástand, þ.e.a.s. óbreytt sérréttindi elítunnar í launa-og skattamálum.
Hagfræðingarnir sem þiggja laun og dúsur af þessum aðilum dansa algjörlega eftir vilja yfirstéttarinnar. Það hafa þeir gert með ýmiskonar fullyrðingum og ganga vissulega út frá óbreyttu samfélagi. Þeir keppast við að þjóna sínum herrum.
En hófsamar launakröfur verkalýðsfélaganna um að lágmarkslaun verkafólks nálgist örlítið markaðslaunin. Að tekið verði upp skattajafnrétti í landinu. Að vextir af nauðþurftarhúsnæði almennings beri eðlilega vexti.
Þ.e.a.s. að almenningur losni úr ánauð skatta- og bankakerfisins. Allt kröfur sem valda ekki verðbólgu ef þær verða til lífskjarajöfnunar.
Það er ekki höndum verkalýðshreyfingarinnar að viðhalda óraunhæfu markaðslaunakerfi í Landinu.
Það er algjörlega í höndum þeirra sem stjórna fyrirtækjum landsins, en það eru einmitt þeir sem skapa verðbólgu í landinu en ekki láglaunafólk. Hæstu laun verða að standa í stað eða lækka en þau lægstu að hækka. Jú vissulega sósíalísk sjónarmið.
Það er einnig mikilvægt að lækka vexti á nauðþurftar húsnæði almennings, en það kostar lagabreytingar og eykur ekki verðbólgu í landinu og heldur ekki sú bráðnauðsynlega breyting sem er að koma á skattajafnrétti í landinu.
Þetta eru í hnotskurn fram komnar kröfur verkalýðshreyfingarinnar.
Sjá grein Stefáns Ólafssonar: Hér má sjá marktækt línurit um skattaníðslu Sjálfstæðisflokksins allar götur frá því að Davíð Oddson kom í ráðuneytið
https://efling.is/2018/10/17/stora-skattatilfaerslan/
Kjaramálin ráðandi í verðbólguþróun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2018 | 13:58
Líklega brot á EFTA-reglum að mismuna viðskiptavinum
- Það er ljóst að samkvæmt regluverki EFTA er bannað að mismuna viðskiptavinum
* - Sérstaklega á þetta við um opinber fyrirtæki sem rekstur farþegaferjunnar er svo sannarlega
*. - Slíkar reglur ná yfir alla íslendinga og íbúa á Evróska efnahagsvæðinu.
T.d. ef reynt verður að koma þessum hugmyndum um fargjöld til leiðar. Samkvæmt þessum hugmyndum kveður á um að að fullorðnir íbúar Vestmannaeyja greiða 800 krónur fyrir ferðina en aðrir 1.600 krónur.
Fyrir börn 12-15 ára mun kosta 800 krónur en 400 krónur eigi barnið lögheimili í Eyjum. Sama á við um ellilífeyrisþega. Þá verður frítt fyrir börn yngri en tólf ára.
Sama gildir um farartæki. Séu þau á vegum íbúa í Vestmannaeyjum verður gjaldið helmingi lægra en í tilfelli þeirra sem eiga lögheimili annars staðar. Þá var samþykkt að ferjan muni sigla á 75 mínútna fresti úr Landeyjahöfn og Vestmannaeyjahöfn.
- Það er auðvitað ekkert athugavert við að selja afsláttarkort sem allir sem
ferðast með ferjunni ætti kost á að kaupa og eru íbúar á
Evrópska efnahagsvæðinu.
Síðan má minna á það, að það eru allir íslendingar sem standa straum af kostnaði vegna kaupa á þessu nýja skipi og af Landeyjahöfn.
Það eru eiginlega allar líkur á því, að Vestmanneyingar einir kaupi sér slík afsláttarkort eða þeir sem myndu nota skipið mikið og reglulega.
Allir landsmenn fagna því auðvitað að senn kemur að því að þessi nýja ferja kemst í gagnið og breyti samgöngum milli lands og eyja til hins betra
Eyjamenn greiði helmingi minna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)