Íslenska eineltis-heilkennið

  • Eineltis-heilkennið virðist vera faraldur sem fylgir flestum sveitarastjórnum í landinu. Ekki er Alþingi góð fyrirmynd í þessum efnum.

    *
  • Þessi sjúkdómseinkenni virðast einnig fylgja í stjórnum og í trúnaðarmannaráðum verklýðsfélaganna ásamt þeirri menningu sem ríkir í flestum stjórnmálaflokkum á Íslandi.

    *
  • Það væri til mikilla bóta fyrir íslenskt samfélag að þessari ómenningu verði úrýmt með öllu.

    *
  • Ekki kæmi mér á óvart að svona ástand sé einnig ríkjanndi innan íþróttahreyfingarinnar. Er þett e.t.v. íslenskur ómenningararfur?

    *
  • Það þarf sterk bein til að þora, að vera einn í minnihluta. Það þekki ég á eiginn skinni.
RUV.IS
 
Borgarfulltrúar Flokks fólksins og Sósíalistaflokksins telja sterkar vísbendingar um að í Ráðhúsinu ríki eineltismenning og hafi jafnvel ríkt lengi. Tilefnið er dómur Héraðsdóms Reykjavíkur en dómurinn felldi úr gildi skriflega áminningu sem skrifstofustjóri borgarinnar veitti ...

mbl.is Eineltismenning jafnvel ríkt lengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handhafi stóra sokkabandsins veldur stormi í vatnsglasi

  • Guðni Jóhannesson forseti Íslands heiðraði Piu Kjærsgaard með stórriddarakrossi Íslands þann 24. janúar 2017 þegar hann var í opinberri heimsókn í Danmörku.
    *
  • Á ráðuneytistíma Bjarna Benediktsonar.(11. janúar til 30 nóvember 2017)

Pia og Vigga

Íslenskir orðuþegar eru að jafnaði ríflega tugur hverju sinni. Þá sæmir forseti árlega nokkra erlenda ríkisborgara fálkaorðu.

Sérstakar reglur um orðuveitingar eru í gildi milli Íslands og nokkurra ríkja í Evrópu um gagnkvæmar orðuveitingar í tengslum við opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja.

Meðal annarra sem fengu stórriddarakross í heimsókn forsetans voru Benedikte prinsessa systir Margrétar Þórhildar drottningar, Joachim prins og Marie prinsessa eiginkona hans, Mary krónprinsessa og Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur.

Þetta eru í meira lagi sérkennilegt

ORÐUNEFND
Í orðunefnd eiga nú sæti:
Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, formaður. Framsóknarflokkur
Ellert B. Schram, fv. alþingismaður, Samfylking 
Guðrún Nordal, Embættismaður 
Jón Egill Egilsson, fv. sendiherra, embættismaður
Svanfríður Jónasdóttir, fv. bæjarstjóri og alþingismaður Samfylking
Örnólfur Thorsson, orðuritari. Embættismaður

Ráðuneyti Katrínar Jakopsdóttur tók við stjórn landsins 30 nóvember 2017.

  • Hversu margir íslenskir ráherrar hafa hafnað Fálkaorðunni?
    *
  • Hvað mun formaður VG gera?
    *
  • Píratar virðast sofa á fundum Alþingis

mbl.is Koma þingforsetans rædd fyrir ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafbílatenglar við þjóðveginn

  • Það er sama hvert farið er í dag, í allar gerðir verslunarmiðstöðva og eða á kaffistofum allsstaðar er tenglar til að hlaða farsíma fólks
    *. 
  • Engum veitingamanni dettur í huga að sleppa slíkum staðalbúnaði í húsnæði sínu.  Enda myndu margir kúnnar sniðganga slíkan stað.

Rafbíll

  • Á næstu misserum verða rafbílatenglar staðalbúnaður á hverjum veitingastað við þjóðveginn
    *.
  • Ökumenn sem fara um þjóðbraut á sínum eðalbílum á næstu árum munu örugglega velja slíka staði til að æja við á ferðum sínum
    *
  • Það tekur einmitt svipaðan tíma að hlaða bílinn og það tekur að hesthúsa í sig veitingum á vertshúsum. 


Eru ekki allir í stuði?


mbl.is Mikill ávinningur af rafbílavæðingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra vill halda utan um fjárreiður hins opinbera.

  • Fyrir mér er Steingrímur Ari Arason vandaður embættismaður sem vill hafa alla hluti á hreinu.

Steingrímur Ari

Þ.e.a.s. að allir hlutir séu unnir samkvæmt góðum stjórnsýsluháttum.

  • En vandamál hans virðist vera, að hann er afar pólitískur í starfi.  

Má segja að hann fylgi pólitískri stefnu í starfi sínu sem auðvitað getur farið á skjön við pólitíska stefnu heilbrigðisráðherra.

Þá verða gjarnan átök á milli embættismannsins og ráðherra málaflokksins. En allir vita á embættismaður að vera ópólitískur og fylgja þeim pólitísku stefnumiðum sem heilbrigðisráðherra setur ´sínu starfi.

Heilbrigðisráðuneytið hefur frá 2015 sett reglur um takmarkanir á ráðningum á fleiri sérfræðingum samkvæmt tilteknum rammasamningi ráðuneytisins við sérfræðilækna. 

Það stafar af því að sífellt aukinn kostnaður ríkisins vegna hefur þótt óhóflegur vegna þessa fyrirkomulags og ástæða þykir til þess að gera breytingar á honum nú í haust og efla göngudeildarþjónustu Landspítalans á fjölmörgum sviðum.

Steingrímur er m.ö.o. ósammála þessum takmörkunum.  Það var ekki núverandi heilbrigðisráðherra sem setti þessar takamarkanir. Það var gert í tíð Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra.

Svandís Svavarsdóttir

Svandís hefur lýst sig sammála þessum takmörkunum að sinni á meðan fundnar eru nýjar og betri lausnir sem gætu farið betur með skattfé skattgreiðenda.

Greinilegt er að Svandís vill bæði fara vel með takmarkað skattfé landsmanna og bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu.

 Allir hafa þessir ráðherrar átt í orðaskaki við embættismanninn

  • Álfheiður Ingadóttir og Ögmundur Jónason árin 2009 til 2013 í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
    *
  • Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra árið 2013  ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar 
    *
  • Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra  árið 2017. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
    *
  • Svava Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra árið 2018. Ríkisstjórn Katrínar Jakopsdóttur



 

 

 


mbl.is Telur ráðherra brjóta gegn lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnavinna á Íslandi

  • Það er viðgengin skoðun á Íslandi því er virðist, að börn hafi gott af því að vinna
    *
  • Þegar lögin um vinnuvernd tóku gildi 1980 upphófust mjög háværar umræður hversu slæm þau lög væru vegna mikilla takmarkanna á vinnu sem börn mættu vinna
    *
  • Í kjölfarið fylgdu síðan reglugerðir um vinnu barna og ungmenna.

Í gegnum árin hafa þessar reglur verið brotnar meira og minna. T.d. í fiskvinnslu og við ýmiskonar verslunarstörf hvarvetna. Ef gert við þetta athugasemdir gengur gusan yfir mann og um leið stimplaður sem einhver aumingi.

Nú kemur fram í fréttum að umboðsmaður barna hefur verið að fá upplýsingar um launaða vinnu barna á Íslandi. Þá rekur mann algjörlega í rogastans þegar í ljós kemur að börn allt niður í fimm ára aldur eru í launaðri vinnu. ( 5 ára leikskólabörn) Þetta er auðvitað ákveðinn óhugnaður.

Almenna reglan er sú að börn í skyldunámi má ekki ráða til vinnu. Víkja má frá því í eftirfarandi tilvikum:

  • Börn má ráða til þátttöku í menningar- eða listviðburðum og íþrótta- eða auglýsingastarfsemi. Sá sem ræður börn sem ekki hafa náð 13 ára aldri skal afla leyfis frá Vinnueftirliti ríkisins áður en til ráðningar kemur
    *
  • Að jafnaði skal haga vinnutíma og vinnuálagi þannig að skólaganga barna yngri en 13 ára raskist ekki og slíkt ógni ekki heilbrigði eða öryggi þeirra. Jafnframt skal taka sérstakt tillit til aldurs og þroska þeirra
    *
  • Börn sem eru 14 ára eða eldri má ráða til vinnu sem er hluti af fræðilegu eða verklegu námsfyrirkomulagi
    *
  • Börn sem náð hafa 14 ára aldri má ráða til léttari starfa og börn sem náð hafa 13 ára aldri má ráða til léttari starfa í takmarkaðan stundafjölda, svo sem léttari garðyrkju- og þjónustustörf eða önnur hliðstæð störf.

Í IV. viðauka reglugerðar nr. 426/1999 er listi yfir störf af léttara taginu sem 13 ára og eldri mega vinna. Meðal þeirra er vinna í skólagörðum undir umsjón kennara, létt skrifstofustörf, létt fiskvinnslustörf án véla, sala dagblaða, létt verslunarstörf en þó ekki við afgreiðslukassa.

Í reglugerðinni er tekið fram að ekki sé um tæmandi talningu á störfum að ræða og er það Vinnueftirlitsins að meta hvort starf sé sambærilegt við ofangreinda lýsingu þegar sótt er um leyfi fyrir starfi sem ekki er á listanum.

Þetta er reglan sem umboðsmaður gengur út frá.

Ósjálfrátt flökrar að mér að hér sé eitthvað bogið á ferð. Hvernig má það vera að börn á leikskóla aldri stundi launaða vinnu. Vissulega geta börn á þessum aldri átt fyrirtæki eða hlut í þeim og notið t.d. fjármagnstekna.

Eða er e.t.v. verið að fara framhjá skattalögum, þ.e.a.s. að foreldrar skrái hluta af sínum launum á börn sín til að lækka skattagreiðslur fjölskyldunnar. Eða að eitthvað tengist þetta gjaldþrotum.

Sérstakar reglur gilda um skattgreiðslur barna 15 ára og yngri en þegar börn verða 16 ára greiða þau skatt eftir almennum reglum og byrja einnig að greiða í lífeyrissjóð. Eftirfarandi reglur gilda um skatt- og lífeyrisgreiðslur barna og unglinga.

  • Börn 15 ára og yngri greiða 6% tekjuskatt ef laun þeirra fara yfir ákveðið frítekjumark (180,000 kr.) . Er skatturinn talinn fram á skattskýrslu foreldra. Sjá nánar lög 90/2003 um tekjuskatt
    *
  • Börn fá skattkort í byrjun þess árs sem þau verða 16 ára og fara að greiða skatta eftir sömu reglum og fullorðnir, þ.e. reiknuð er staðgreiðsla af launum og frá henni dreginn persónuafsláttur
    *
  • Börn byrja að greiða í lífeyrissjóð næstu mánaðamót eftir 16 ára afmælisdaginn. Sjá nánar lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

A.m.k. kallar þetta á rannsókn og eftirlit.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is „Staðan er galopin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjuleg umskipti í stjórn félags grunnskólakennara

  • Það var löngu kominn tími á breytingar í forystu félagsins. Ýmsar áherslu fráfarandi stjórnar mæltust illa fyrir í stéttinni.
    *
  • Fráfarandi formaður var búinn að vera allt of lengi formaður og var frá upphafi mjög umdeildur einkum fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð.

Þorgerður Laufey

Þá höfðu hans áherslur í samningagerð kallað á verulegt launamisrétti innan stéttarinnar er hefur í gegnum langa tíð framkallað átök innan félagsins.

Þá var illa gætt að hagsmunum eftirlaunakennara sem njóta eftirlauna  er taka mið af lifandi launatöxtum.

Þá hefur kona nú tekið við keflinu sem formaður félags grunnskólakennara sem er fyllilega eðlilegt enda grunnskólakennarar kvennastétt. 

Nýir kjarasamningar nú geta tæplega boðið upp á miklar breytingar þar sem þeir byggjast á grunni þeirrar vinnu sem fráfarandi stjórn hafði unnið að.

Þorgerður Diðriksdóttir tók við sem formaður 18 maí og er því búinn að vera formaður í fimm daga þar inn í hvítasunnuhelgin þegar skrifað er undir einhverjar breytingar á fyrra samkomulagi milli samninganefnda. 

Ef hægt er að tala um róttækar breytingar þá munu þær væntanlega snúast um vinnubrögð nýrrar forystu og virkni félagsmanna.  Það hefur lengi verið veruleg óánægja með kjarasamninga í stéttinni.

Nýr formaður gerir ekkert einn í þeim efnum, það er auðvitað verkefni félagsmanna að gera breytingar.
Til þess að svo geti orðið verður stéttin að vera tilbúin að takast á um kjörin.

Stétt kennara verður einnig að velja sér tíma til átaka og vera tilbúin að eiga samstarf við önnur samtök launafólks. 

Fyrri stjórn var nú búin að binda hendur núverandi stjórnar og samninganefndar. Því miður, sumarið er ekki tími til að ná árangri í kjarasamningum kennara.

Það er misskilningur að halda að kjör kennara sé bara vandamál kennara einna, þau eru fyrst og síðast vandamál nemenda. Frambjóðendur þóttust í gær hafa á þessu skilning svo er að sjá hvort sé raunverulegur.


mbl.is Grunnskólakennarar undirrita kjarasamning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt siðleysi

  • Gamli valdaflokkurinn býður borgarbúum upp á afdangaðan víking frá víkinga- og hrun tímabili flokksins sem borgarstjóraefni.

Eyþór Arnalds

Verkin lofa þennan mann og slóðinn eftir hann leynir sér ekki. Þessi aðili hefur auðvitað þegar skaðað samfélagið með gjaldþroti allnokkurra fyrirtækja.

Það voru ekki bara bankar sem fóru á hliðina, þúsundir heimila gerðu það enn frekar og eru þúsundir fjölskyldna að berjast við skuldir af þessum sökum. Einnig sveitarfélög eins og sérstaklega Reykjanesbær og Hafnarfjörður. 

Reykjavík skaðaðist einnig gríðarlega og er rétt núna að ná sér upp úr hrun skaðanum.  

Eitt ljótasta dæmið um hrunið er hér í Úlfarsárdalnum. Byggðin hefur staðið nær lömuð í 10 ár og nú síðustu misserin að byrja að jafna sig.

Því var það ekkert undarlegt, að þegar Eyþór gekk hér um hverfið í einu besta kvöldveðri vorsins að til hans mættu aðeins 8 gestir. Væntanlega allt innmúraðir flokksmenn. Þó höfðu flokksfélagar hans auglýst þennan viðburð rækilega.

Auðvitað vita borgarbúar og einnig íbúar hér í dalnum að Sjálfstæðisflokkurinn er lykilflokkurinn í hruninu sem var hafið strax 2006, ásamt Framsókn. Varla fara kjósendur hér að verðlauna þessum víkingi greiðann með því að kjósa hann.

En ef menn vilja endilega afturför í samgöngumálum, leikskólamálum og umhverfisvernd og einkarekna grunnskóla þá kjósa þeir Eyþór og uppstillingu hans.

Sjálfstæðismenn bjóða líka upp á markaðslausnir í húsnæðismálum, með fjárfesta í lykilhlutverkum. En það er einmitt markaðurinn sem hefur brugðist hrikalega í húsnæðismálunum, með því að fjárfestarnir hafa keyrt leigu og íbúðaverð upp í allra hæstu hæðir.


mbl.is Sjö flokkar fengju fulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyþór fyrirmyndar frambjóðandi??

Eyþór Arnalds lofar vel rekinni borg. 

Verkin lofa sannarlega meistarann, slóðinn leynir sér ekki.

Mogginn grípur til gamalkunnra örþrifaráða, er dugðu oft áður fyrr.

  • Forstjóri Íslandssíma 2000-2001. Tapið fyrra árið 492 millj, kr., seinna árið 900 milj. Kr. Eyþór hætti við svo búið. (Mbl. 15.mars 2002)

Eyþór Arnalds

  • Stofnandi og hvatamaður að Becromal á Akureyri. Fimm milljarða tap á árinu 2017 og voru heildarskuldir þess í árslok 10.8 milljarðar og neikvæð eiginfjárstaða 4,5 milljarðar (Frjáls verslun des. 2017)
    *
  • Einn af stofnendum Thorsil kísilmálmverksmiðju 2010. Átti fyrst að vera í Þorlákshöfn, síðan á Bakka og loks í Helguvík. Fjárfesting sögð upp á 38 milljarða. Árið 2014 var tilkynnt um stóran sölusamning á nær helmingi framleiðslu verksmiðjunnar fyrirfram. (Víkurfréttir 12.júní 2014) Hvorki sést tangur né tetur af verksmiðjunni.
    *
  • GMR Endurvinnsla á Grundartanga er eitt af fyrirtækjum Eyþórs og var hann stjórnarformaður. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota árið 2017 eftir rekstur í þrjú ár og lét Eyþór sig þá hverfa úr stöðu stjórnarformanns.
    Fyrirtækið var í gjörgæslu Umhverfisstofnunar vegna ítrekaðra brota á mengunarvörnum. Kröfur í þrotabú GMR nema 3,6 milljörðum króna og er það talið að mestu tapað fé fyrir banka og aðra fjárfesta (Fréttablaðið 12. sept. 2017)
    .

    • Nú er allt í voða í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
      *
    • Ljóst er að nýi leiðtoginn veldur ekki því hlutverki að leiða flokkinn til einhvers  sigurs í borginni, hann er algjörlega litlaus. Fylgið dalar.
      *
    • Allar patentlausnir hans hafa verið algjörlega hraktar. Hann hefur verið uppvís að þekkingarleysi í málefnum borgarinnar
      *
    • Eyþór er einnig með hagsmunatengingar í fjölmörg stór fyrirtæki sumt afar vafasamt.
    • *
      Það getur hann ekki þvegið af sér. Slíkum aðila verður ekki treyst sem borgarstjóra.

mbl.is Óvíst að meirihlutinn haldi velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðaráætlun fjármálaráðherra

  • Nú er allt í voða í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
    *
  • Ljóst er að nýi leiðtoginn veldur ekki því hlutverki að leiða flokkinn til einhvers  sigurs í borginni, hann er algjörlega litlaus.Fylgið dalar.
    *
  • Allar patentlausnir hans hafa verið algjörlega hraktar. Hann hefur verið uppvís að þekkingarleysi í málefnum borgarinnar
    *
  • Eyþór er einnig með hagsmunatengingar í fjölmörg stór fyrirtæki.Það getur hann ekki þvegið af sér. Slíkum aðila verður ekki treyst sem borgarstjóra.

Nú stígur ráðherrann fram og segir að Sjálfstæðisflokkurinn hyggist setja Sunda­braut aft­ur í sam­göngu­áætlun og kanna mögu­leika á einkafram­kvæmd sem flýta muni fyr­ir verk­efn­inu.

Bjarni benediktsson 1

Allir vita að þetta er bara sýndarmennska því Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert vald á því að ákveða þetta.

En auðvitað getur hann talað fyrir þessu máli innan ríkisstjórnar. 

En þessi framkvæmd ef að henni verður lagar ekki vandann í borginni nema að síður væri.

Göturnar bera ekki lengur þann fjölda bíla sem koma út í umferðina á álagstímum.

Breytir þá engu þótt byggð verði mislægð gatnamót út um alla borg. Þótt eflaust megi auka hraðan með breyttum ljósastýringum. En það mun auðvitað gerast þótt almenningssamgöngur verði bættar á nútímalegan hátt.

Almenningsvagnakerfið verður að laga og það þarf að ná um alla borgina sem telur mörg sveitarfélög.  Orðið borgarlína hefur farið fyrir brjóstið á frambjóðendum flokksins í Reykjavík.

Eyþór Arnalds

Reykjavík er eina sveitarfélagið á stórborgarsvæðinu sem stendur undir nafni á félagslega sviðinu þótt ýmislegt megi þar bæta.

Þar sem gamli valdaflokkurinn stjórnar eru þessi mál yfirleitt í skötulíki. Það kann að vera að lækka megi útsvar eitthvað, þá verður það ekki gert með þessum hætti.

Það er þegar stefna að byggja upp Keldnasvæðið og er það þegar komið í skipulagningu. Það er ljóst að það verður mikil framför þegar það byggist upp og tengir saman hverfin sem eru þar í kring.


mbl.is Sundabraut og lækkun útsvars á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær ætla íslensk stjórnvöld að taka afstöðu gegn þessum hryðjuverkum fasistanna sem stjórna Ísrael?

  • Her Ísraelsmanna gerir ítrekaðar skotárásir á vopnlaust fólk sem mótmælir landráðum Síonista á Paletísku landi. Með tæknilega háþróuðum Bandarískum vopnum
    *
  • Er það virkilega þannig, að íslenskur utanríkisráðherra og ríkisstjórn Katrínar Jakopsdóttur styðji þessi hryðjuverk Ísraelsmanna?

Í dag minnast Palestínumenn Nakba eða hörmunganna þegar meira en 700.000 manns voru hraktir frá heimkynnum sínum í kringum stofnun Ísraelsríkis fyrir réttum 70 árum eða árið 1948.

Hvenær ætla íslensk stjórnvöld að taka afstöðu gegn þessum hryðjuverkum fasistanna sem stjórna Ísrael? Hvenær?

Minna má á samþykkt Alþingis Íslendinga frá 2011 um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu og hefur vinasamband við þessa kúguðu þjóð.

Palestínuþjóðin er ein af vinaþjóðum íslensku þjóðarinnar.

Ekki má gleyma þátttöku Bandaríkjanna í þessari helför Ísraela gegn fólkinu í Palestínu. Fólkinu sem lifði í þessu landi og á það með réttu.

Bandaríkin komu í veg fyrir að send væri út yfirlýsing á vegum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Í drögum að yfirlýsingunni er kallað eftir sjálfstæðri og gagnsærri rannsókn á ofbeldinu við landamæri Ísraels og Gaza í dag.

Að minnsta kosti 55 Palestínumenn hafa fallið fyrir byssukúlum ísraelskra hermanna og yfir 2.400 Palestínumenn eru særðir. Hverskonar fólk eru ráðamenn í Bandaríkjunum?

  • Hvernig má það vera, að girðing sú sem herveldið setti upp utan

    um íbúa Casa með hervaldi séu viðurkennd landamæri Ísraels?
RUV.IS
 
Minnst 59 Palestínumenn liggja í valnum eftir mótmælin á Gaza í gær, flestir skotnir til bana. Að minnsta kosti 2.400 eru sárir. Boðuð eru frekari mótmæli á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna í dag.

mbl.is Táragasið drap ungbarn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband